Fréttablaðið - 23.06.2006, Qupperneq 29
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 2.55 13.30 24.04
Akureyri 1.26 13.15 1.01
Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona
reynir að hafa heitan mat á hverju
kvöldi enda er það fasti punkturinn í
heimilishaldinu.
„Ég er náttúrulega oft að leika á kvöldin en
þá hef ég matinn bara aðeins fyrr. Maður
verður nú að sjá til þess að börnin fái almenni-
legt að borða svo þau lifi ekki á sjoppufæði,“
segir Sigrún Edda en hún er fastráðin leik-
kona hjá Borgarleikhúsinu. „Ég reyni að hafa
hollustuna í fyrirrúmi og hugsa svolítið um
hvað við látum ofan í okkur þó maður leyfi
sér alveg ýmislegt. Þetta er bara spurning
um sitt lítið af hverju,“
Sigrún Edda kynntist uppskriftinni sem
hún gefur lesendum á Krít í fyrrasumar, en
það er sumarrétturinn gýros. „Í Grikklandi
borðar maður réttinn í sérstöku brauði sem
minnir helst á pítubrauð en ég nota bara
salat með þessu. Þetta er alveg óhemju gott,
marineringin á kjúklingnum og tzatziki-
sósan sem maður borðar með eru æðislegar
og svo er þetta líka hollur matur. Ég geri
þetta allt frá grunni nema ég rækta nú ekki
hænurnar, en annars fæ ég bara allt hráefni
í Bónus,“ segir Sigrún Edda.
Uppskriftin hljómar ef til vill flókin en
Sigrún Eddda segir að það taki enga stund
að matreiða þetta þegar maður er kominn
upp á lagið. „Það tekur um það bil klukku-
tíma að gera þennan mat með öllum undir-
búningi og þetta er ósköp einfalt og þægi-
legt. Ég geri þennan rétt oft á
föstudagskvöldum svona þegar mig langar í
eitthvað voða gott og hafa það kósý í
leiðinni,“ segir Sigrún Eddda.
Uppskriftina að réttinum má finna á síðu 3.
erlabjorg@frettabladid.is
Grískt sumarsalat
með kjúklingi
Sigrún Edda leikkona gerir gjarnan sumarréttinn gýros á föstudagskvöldum þegar hana langar að hafa svolítið kósí. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn
23. júní, 174. dagur ársins
2006.
Harðfiskur hefur verið vinsæll
meðal landsmanna frá ómunatíð
og þykir meinhollur en nú á að
kanna til hlítar hvaða efni það
eru sem gera hann eftirsóknar-
verðan fyrir heilsuna. Verkefnið
Harðfiskur sem heilsufæði fékk
nýlega eina milljón króna í styrk
úr AVS rannsóknasjóði. Sjóður-
inn veitir styrki til rannsóknar-
verkefna sem auka verðmæti
sjávar- fangs.
Vínblaðið kom út í byrjun júní. Í
blaðinu má finna grilluppskriftir,
hugmyndir að sumarkokkteilum
og annan skemmtilegan fróðleik
fyrir sumarið. Hægt er að nálgast
eintak í vínbúðum um allt land.
Tax free dagar verða haldnir í
Hagkaupum fram á sunnudag.
Þessa daga verður virðisauka-
skatturinn afnuminn af öllum
snyrtivörumerkjum. Álagður
virðisaukaskattur á snyrtivörur á
Íslandi er 24,5 prósent sem jafn-
gildir 19,68 prósenta afslætti.
ALLT HITT
[MATUR TILBOÐ]
FRÁ GRUNNI AÐ
GIRNILEGUM MAT
Óvenjuleg bók um íslenskt hrá-
efni og matargerð kemur út í
dag. Hún heitir Delicious Ice-
land og ritstjóri er Völundur
Snær Völundarson.
MATUR 2
EKKI MIKIÐ FYRIR
LÍFSGÆÐAKAPPHLAUP
Listamaðurinn Snorri Ásmundsson
segist ekki oft gera slæm kaup.
TILBOÐ 6
2x10
Fallegur og
bragðgóður
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
1
4
2