Fréttablaðið - 23.06.2006, Síða 51
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { hús og garður } ■■■■ 15
„Softub eyðir sjálfsagt minnstri
orku allra nuddpotta, eða 1.100-
1.400 krónum í rafmagn á mánuði
á meðan dæmigerður pottur eyðir
eitthvað á bilinu 4-6.000 krón-
um,“ útskýrir Örn Jónsson hjá Jóni
Bergssyni ehf., söluaðila Softub
hérlendis.
Örn segir að hægt sé að tengja
Softub í venjulega innstungu svo
ekki þurfi sérstakar lagnir, auk þess
sem nota megi hann innan- jafnt
sem utandyra í hvaða veðri sem er.
„Svo er hann tiltölulega léttur, hægt
er að velta honum í gegnum dyra-
op og ekki tekur nema einn til einn
og hálfan sólarhring að hita vatnið
með hitastýrisbúnaði,“ segir hann.
„Softub-nuddpotturinn er lát-
inn vera í sambandi allan sólar-
hringinn og heldur alltaf réttu
hitastigi,“ segir Örn . „Við eru
aðallega með fjögurra til sex
manna potta til sölu en einnig
fást pottar fyrir tvo. Pottarnir hafa
að vonum vakið mikla lukku hér-
lendis.“
Pottar sem henta alls staðar
Fyrir þá sem vilja prófa skemmtilega öðruvísi nuddpotta, má benda á Softub sem farið
hefur sigurför um heiminn. En hefur Softub einhverja kosti umfram aðra nuddpotta?
Softub þykja barnvænir nuddpottar. Brúnirnar eru mjúkar viðkomu, öryggislæsing er á pottlokinu og engin hætta er á að börn brenni sig
þar sem hitastýrisbúnaður hindrar að vatnið verði of heitt. MYND Í EIGU JÓN BERGSSON EHF.
Örn segir Softub henta við alls kyns aðstæður, þar sem hann er úr veðurþolnum vinýldúk.
Örn segir veðurþol Softub sannast af því að pottur hafi verið lánaður upp á Langjökul.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Softub-nuddpotturinn er búinn ýmsum kostum, enda hefur hann farið sigurför um heim-
inn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA