Fréttablaðið - 23.06.2006, Síða 66
23. júní 2006 FÖSTUDAGUR
Við hlaupum
Blátt áfram...
... alla leið frá Hellu til Reykjavíkur
Mætum við Reykjavíkurhöfn
og tökum vel á móti hlaupurunum!
Boot Camp þjálfararnir Arnaldur Birgir Konráðsson, Evert
Víglundsson og Róbert Traustason ætla að leggja af stað
frá Hellu á miðnætti aðfaranótt laugardagsins 8. júlí og
hlaupa til Reykjavíkur.
Hver og einn þeirra mun
hlaupa tvö og hálft maraþon!
Hvað getur þú gert
til að styrkja Blátt áfram?
Við skorum á fyrirtæki að styrkja hlauparana
blátt áfram með myndarlegum framlögum
og að hvetja sitt fólk til að vera með.
Lítið skref fyrir þig, stórt skref fyrir börnin
Stígðu skrefið laugardaginn 8. júlí
www.blattafram.is
Blátt áfram frábær dagur
laugardaginn 8. júlí
Vertu með!
Hlaupastöð 1
Kl. 10.00 Litla Kaffistofan – Hafnarbakkinn
= 26,3 km
Hlaupastöð 2
Kl. 12.00 Húsgagnahöllin – Hafnarbakkinn
= 7,6 km
Leiðin sem farin verður: Ártúnsbrekka, Grensás-
vegur, Suðurlandsbraut, Laugavegur niður á höfn.
Frjálst er að koma inn í hlaupaleiðina á hvaða stað sem er.
Kl. 14.00 Reykjarvíkurhöfn – Skemmtun
*Þú getur keypt bolina á næstu Esso stöð,
á www.blattafram.is eða við hlaupastöðvarnar þann 8. júlí.
• Þú getur hringt í 907 2000
þá dragast 1.000 kr. af símreikningnum þínum
• Þú getur keypt bol*
og fylgt Boot Camp strákunum síðasta spölinn
• Þitt fyrirtæki getur heitið á strákana
Hringdu í 533 2929 og styrktu Blátt áfram
Þegar ég var að
alast upp var alls
ekkert alltaf
hægt að ná í alla
í síma. Þó að
það væri sími á
hverju heimili
gat fólk verið
upptekið við eitthvað annað en
að vakta hann. Þetta þótti sjálf-
sagt og flestir sýndu bara þolin-
mæði. Með tilkomu GSM-sím-
anna er hins vegar allt í einu
mögulegt að ná í alla, hvar og
hvenær sem er og þolinmæðin
er ekki mikil ef einhver svarar
símanum sínum ekki strax.
Ég var frekar sein til að fá
mér GSM-síma og fékk að heyra
það hjá símavæddum vinum
mínum að það væri ómögulegt
að það væri ekki alltaf hægt að
ná í mig. Ég lét því undan og
fljótlega var ég farin að skamma
þá fáu sem ég þekkti sem ekki
áttu síma. Ég vandist því nefni-
lega eins og aðrir að geta alltaf
náð í alla og þoldi engar undan-
tekningar frá þeirri reglu.
Stundum finnst mér fárán-
legt hvað við erum upptekin af
símanum. Pabbi sagði mér einu
sinni að eftir að langamma mín
fékk heimasíma hefði hún helst
ekki viljað fara út úr húsi ef að
hann myndi hringja á meðan og
þrátt fyrir að sagan væri svolít-
ið ýkt þótti þetta ótrúlega fynd-
ið. Fæst erum við samt miklu
skárri núna því þó að við förum
alveg út úr húsi erum við alltaf
með símann og að vakta hann.
Síðustu ár hef ég því farið að
taka mér frí frá símanum ef
þannig liggur á mér. Oft hef ég
símann hljóðan á meðan ég geri
það sem mig langar til og athuga
síðan bara hverjir hafa hringt
þegar mér hentar. Þetta fer auð-
vitað óstjórnlega í taugarnar á
mörgum sem ég þekki en þó að
ég eigi GSM-síma áskil ég mér
allan rétt til þess að þurfa ekki
alltaf að vera á símavaktinni. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA Símavaktin
EMILÍA ÖRLYGSDÓTTIR VILL STUNDUM FÁ AÐ VERA Í FRIÐI
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
TÝNT & FUNDIÐ
Við sjáum þetta
aftur... Owen er
þarna í róleg-
heitunum...
Skyndilega kemur
Beckham...
Og tekur hann
FAST aftanfrá!
Ég er feginn
að um er
að ræða
fótbolta!
Sama
segi
ég!
Sjáðu Palli! Glósubók
sem lítur út eins og
fartölva!
Vá!
Takk!
Hér færðu faðmlag
sem lítur út fyrir að
vera venjulegt!
Ahhh...
Ég ætla að klóra mig í
gegnum þetta sumar.
Barnapían
er komin.
Það var annað hvort
það eða að sjón-
varpið væri bilað.