Fréttablaðið - 23.06.2006, Qupperneq 78
46 23. júní 2006 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
LA
ND
SB
AN
KA
DE
IL
DI
N FÓTBOLTI Á Laugardalsvelli á mið-vikudag mátti sjá borða á meðal stuðningsmanna Keflavíkur þar sem á stóð Knattspyrna án for-
dóma. Með þessu sýndu stuðnings-
menn Suðurnesjaliðsins stuðning
sinn í verki gegn kynþáttafordóm-
um en mikil umræða hefur verið
um þá undanfarna daga. Eftir að
stuðningsmenn FH urðu uppvísir
að athæfinu í garð Andrew
Mwesigwa, leikmanns ÍBV, fór
boltinn að rúlla og nú hafa fleiri
sýnt samhug.
Þeirra á meðal eru sjálfir stuðn-
ingsmenn FH, sem héldu sérstak-
an fund vegna málsins en þar kom
meðal annars fram að þeir ætli sér
að nota krafta sína frekar í að
styðja lið sitt áfram í stað þess að
úthúða dómurum leiksins eða and-
stæðingunum.
Jóhann Albertsson, eða Joey
Drummer eins og hann er gjarnan
kallaður, var forsprakki að stuðn-
ingi gegn kynþáttafordómunum
en hann á veg og vanda að borðan-
um sem sést á myndinni hér til
hliðar. „Við vildum undirstrika
andúð okkar á kynþáttafordómun-
um sem hafa því miður voru við
lýði hér á Íslandi. Við tökum öllum
kynþáttum opnum örmum og að
sjálfsögðu eru allir jafnir í okkar
augum. Fótbolti án fordóma er
slagorðið okkar og við vildum
sýna það í verki,“ sagði Jóhann, en
hann er meðlimur í Pumasveit-
inni, sem stuðningsmenn Kefla-
víkur kalla sig.
„Við ætlum að taka borðann
með okkur á alla leiki í sumar og
flagga honum skilmerkilega til að
sýna okkar stuðning. Við ætlum
meira að segja að taka hann með
okkur til Noregs þegar við mætum
Lilleström, hvort við þýðum hann
yfir á norsku skal nú ósagt látið,“
bætti Jóhannes við, léttur í bragði
að vanda.
Skagamenn sýndu sinn stuðn-
ing einnig í gærkvöldi. „Við ákváð-
um að sýna samstöðu gegn kyn-
þáttafordómum og ákváðum að
mála okkur svarta í framan. Við
fengum Eyjamenn með okkur í lið
og þetta hefði orðið misskilið ef
þetta hefði ekki fengið umfjöllun
en við gerum þetta til að sýna sam-
hug,“ sagði Þórður Már Gylfason,
forsprakki stuðningsmannaklúbbs
ÍA sem kallast Skagamörkin.
„Það var tímabært að gera
þetta núna og útrýma þessum for-
dómum í fæðingu. Þetta er ekki
þekkt á Íslandi enda ekki margir
þeldökkir leikmenn sem spila á
Íslandi en okkur fannst tilvalið að
gera þetta á heimavelli þess leik-
manns sem lenti í þessu. Það er
bónus að fá stuðningsmenn Eyja
með okkur,“ sagði Þórður en fylk-
ingin gekk á völlinn af skemmti-
stað í bænum saman á völlinn í
gærkvöldi.
Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, var ánægður
að sjá samhuginn og minnti á átak
KSÍ. „KSÍ hefur verið með átak í
nokkur ár sem kallast Leikur án
fordóma og mun að sjálfsögðu
vera áfram í gangi, þetta er okkar
slagorð. Við munum alltaf hafa
augun opin fyrir þessu auk þess
sem athygli verður vakin á málinu
í bækling sem við gefum út fljót-
lega. Við erum á tánum og vitum
að þjóðfélagið er að breytast,“
sagði Geir.
hjalti@frettabladid.is
Stuðningsmenn sameinast gegn
kynþáttafordómum í knattspyrnu
Stuðningsmenn knattspyrnuliða á Íslandi hafa sameinast í baráttunni gegn kynþáttafordómum í ljósi
nýlegra atburða hér á landi þegar Úgandamaðurinn Andrew Mwesigwa varð fyrir aðkasti í Hafnarfirði.
Stuðningsmenn Keflavíkur, ÍA og ÍBV sýndu það í verki í gær og líklegt er að fleiri fylgi í kjölfarið.
STUÐNINGSMSMENN KEFLAVÍKUR Riðu á vaðið og flögguðu þessum borða á leiknum
gegn Val á Laugardalsvelli á miðvikudaginn. Jóhannes er lengst til vinstri.
NORDICPHOTOS/AFP
„Þetta er annað markið sem ég skora
en ég skoraði líka fyrir KR þegar ég
var þar 2002 eða 2003,“ sagði Þóra B.
Helgadóttir, landsliðsmarkvörður Íslands
í kvennaflokki, en hún skoraði eitt af
mörkum liðsins í 7-0 sigri á Fylki í
Landsbankadeild kvenna á mið-
vikudag. „Tölurnar gefa reyndar ekki
alveg rétta mynd af leiknum, tvö
mörk hjá okkur komu úr vítum
og svo eitt sjálfsmark. Sigurinn
kannski fullstór.“
Staðan var 2-0 þegar Þóra
var send á vítapunktinn en
skömmu áður hafði Edda
Garðarsdóttir skorað
fyrir Blikastúlkur úr
vítaspyrnu. „Ég er búinn
að vera að væla svo
mikið að þurfa að vera í marki og ekkert
fá tækifæri til að
skora. Stelpurnar
í liðinu eru svo
indælar að þær
leyfðu mér að taka
vítið. Mér finnst annars
skandall að ég sé ekki vítaskytta
liðsins,“ sagði Þóra í léttum tón.
Talað er um að Íslandsmótið í
kvennaflokki sé nánast aðeins
einvígi milli Vals og Breiðabliks,
önnur lið séu einfaldlega ekki í
sama klassa. Svo gæti því farið að
úrslitin ráðist á endanum á marka-
tölu. „Það er ekkert gaman að ein-
beita sér að því að vinna með sem
mestum mun. Við förum
bara í alla leiki til að sigra
og ef Valur stendur samt sem áður uppi
sem sigurvegari í lokin þá á liðið það
bara skilið. Stefna okkar er bara að taka
stigin þrjú og svo er það bara bónus ef
við náum að bæta markatöluna,“ sagði
Þóra.
Breiðablik mætir Stjörnunni á laugar-
daginn en liðin hafa jafnmörg stig að
loknum sex leikjum. „Það má búast við
hörkuleik, Stjarnan er með sterkt lið og
gæti alveg haft mikil áhrif á lokastöð-
una í deildinni. Svo eru margar stelpur
í liðinu sem voru í Breiðablik en fengu
ekki tækifæri. Það er gaman að sjá þær
blómstra svona núna og ég held að þær
leggi sig enn meira fram gegn gamla
félaginu. Ég þekki það sjálf frá því ég fór
til KR og var þar í tvö ár,“ sagði Þóra B.
Helgadóttir.
LANDSLIÐSMARKVÖRÐURINN ÞÓRA B. HELGADÓTTIR: SKORAÐI ÚR VÍTI FYRIR BLIKASTÚLKUR
Vældi svo mikið að ég fékk vítið
FÓTBOLTI Það var mikill fögnuður í
Afríku í gær, sér í lagi í Gana, þar
sem landsliðið komst áfram í 16-
liða úrslit heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu með 2-1 sigri á
Bandaríkjamönnum. Ganamenn
tryggðu sér þátttökurétt á HM í
fyrsta sinn í sögu landsins í fyrra
og eru nú komnir áfram upp úr
riðlakeppninni. Ekki er ólíklegt að
þeir verði einir Afríkuþjóða á því
stigi keppninnar en Túnismenn
eiga reyndar enn möguleika á sæti
í útsláttarkeppninni.
Tékkar töpuðu fyrir Ítölum í
gær, 2-0, og þurfa því að bíta í það
súra epli að halda heim á leið. 2-0
tap liðsins fyrir Gana á laugardag-
inn var dýrkeypt og reyndist hafa
úrslitaáhrif á lokastöðuna í riðlin-
um.
Bandaríkjamenn sitja einnig
eftir og hafa fengið að kenna á
dómgæslunni á mótinu. Þjálfari
liðsins, Bruce Arena, neitaði að
gagnrýna dómara leiksins við Ítali
þar sem tveir Bandaríkjamenn
sáu rautt en hann lét Þjóðverjan
Markus Merk heyra það í gær
fyrir að „gefa“ Ganamönnum víti
sem reyndist ríða baggamuninn í
leiknum. Haminu Dramani kom
Gana yfir snemma leiks en Clint
Dempsey jafnaði metin skömmu
síðar.
„Við þurftum að hafa mikið
fyrir því að komast aftur inn í leik-
inn. Ég varð fyrir vonbrigðum
með ákvörðun dómarans um að
dæma víti,“ sagði Arena en Merk
dæmdi vítið eftir að Oguchi Ony-
ewu virtist brjóta á Razak Pimp-
ong. „Við hefðum vilja hefja síðari
hálfleikinn og eiga góða mögu-
leika á sigri í leiknum.“
Michael Essien fékk gult spjald
í leiknum og verður því ekki með
liðinu í 16-liða úrslitum. Vissulega
mikil vonbrigði en það skyggði
ekki á gleði Ganabúa. „Þetta er
söguleg stund fyrir okkur og við
erum mjög ánægðir,“ sagði Rat-
omir Dujkovic þjálfari liðsins.
„Við óttumst ekkert lið. Við erum
Brasilíumenn Afríku,“ bætti hann
við.
Marco Materazzi kom Ítölum
yfir gegn Tékkum aðeins níu mín-
útum eftir að hafa komið inn á sem
varamaður. Ekki bætti úr skák
fyrir Tékkana er Jan Polak var
vísað af velli undir lok fyrri hálf-
leiks vegna tveggja áminninga.
Filippo Inzaghi gerði svo endan-
lega út um leikinn með marki í
blálokin.
„Það var einfaldlega of erfitt
að spila einum færri í seinni hálf-
leik,“ sagði Karel Bruckner þjálf-
ari Tékka eftir leikinn. „Við mis-
stum marga menn fyrir leikinn og
leikbönnin fóru illa með okkur í
þessu móti.“
- esá
Ítalir kláruðu E-riðil með stæl og sendu Tékkana heim:
Gana áfram í sinni fyrstu keppni
FÖGNUÐUR Leikmenn Gana fögnuðu hreint ógurlega er þeir unnu Bandaríkjamenn í gær
en þeir eru óvænt komnir í sextán liða úrslit. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
> Golfarar á ferð og flugi
Íslenskir kylfingar hafa verið víða að á
meginlandi Evrópu undanfarna daga
en Heiðar Davíð Bragason úr Kili í
Mosfellsbæ lauk í gær keppni á móti í
dönsku mótaröðinni þar sem hann lenti
í 18.-20. sæti. Síðasta hringinn lék hann
á þremur yfir pari og samtals var hann
á fjórum yfir pari hringina þrjá. Ófeigur
Jóhann Guðjóns-
son, íslenskur
kylfingur búsettur
í Noregi, lenti í 5.-6.
sæti á tveimur undir
pari. Þá hóf Birgir Leifur
Hafþórsson, GKG, keppni á
móti í áskorendamótaröð
Evrópu sem fram fer í Sviss
og lék hann fyrsta hringinn á
einu höggi undir pari.
Arftaki Berglindar
fundinn
Valsmenn hafa samið við tékkneska
markvörðinn Pavla Skavronkova en
henni er ætlað að fylla það skarð sem
landsliðsmarkvörðurinn Berglind Íris
Hansdóttir skildi eftir sig er hún hélt til
Danmerkur. Pavla er tékkneskur lands-
liðsmarkvörður, 27 ára gömul og á að
vera mjög öflug.