Fréttablaðið - 22.02.2008, Page 25
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Rauða húsið á Eyrarbakka býður
upp á glæsilegar þriggja og fimm rétta
kvöldmáltíðir um helgina í tilefni hátíðar-
innar Fóður og fjör sem haldin verður á
landsbyggðinni í fyrsta skipti.
austurlamb.is er vefsíða þar
sem hægt er að kaupa lambakjöt
beint frá ákveðnum bóndabýlum
á Austurlandi. Á síðunni má fá
upplýsingar um býlin, finna upp-
skriftir og lesa ummæli kaupenda.
Fermingartímabilið
er fram undan og um að gera
fyrir þá sem eru að ferma
börnin sín í ár að fara að
huga að veisluföngum ef
bjóða á mörgum gestum.
Ragnheiður Harvey, dagskrár- og fjölmiðlafull-
trúi Norræna hússins, hefur mikinn áhuga á mat
og matargerð.
„Ég er hrifin af alls konar mat úr grænmeti og ávöxt-
um, ég borða lítið kjöt en mikinn fisk. Mér þykir gott
að nota kúskús, hrísgrjón og pasta,“ segir Ragn-
heiður. Á einum rétti hefur hún miklar mætur þessa
dagana og það er svokallað hrísgrjónasalat sem hún
rakst á í matreiðslubók. Fljótlegur og bragðgóður
réttur fyrir þá sem vilja öðruvísi hrísgrjón með matn-
um.
„Ég rakst á þennan rétt í matreiðslubók fyrir græn-
metisætur og ákvað að prófa og hann sló í gegn.
Réttur inn er mjög seðjandi og fínn en umfram allt
mjög einfaldur, hann er alveg laus við meiri háttar
eldamennsku,“ útskýrir Ragnheiður og bætir við:
„Ég nota réttinn bæði sem aðalrétt og einnig sem
meðlæti þegar ég er með annað hvort fisk eða kjöt.“
Innihaldslýsing og aðferð fylgja með: „Rétturinn
er afar einfaldur í gerð og samanstendur hann af 250
grömmum af brúnum hrísgrjónum, hálfri teskeið af
túrmerik og hafsalti, safa og börk af hálfri sítrónu,
sex matskeiðum af blönduðum ferskum jurtum t.d.
steinselju, myntu, graslauk og estragoni. Svo er það
einn stór avakadó og sextíu grömm af pistasíuhnet-
um án hýðis og ristuðum kasjúhnetum. Aðferðin er
þannig að hrísgrjónin eru soðin, sítrónubörkurinn er
rifinn og safinn geymdur. Jurtirnar eru niðurskornar
og blandað við soðin hrísgrjónin og það kælt.
Avókadóið er skrælt og steinninn tekinn úr, skorið í
bita og velt upp úr sítrónusafanum. Síðast er svo
hnetunum og avókadóinu blandað saman með hrís-
grjónunum og jurtunum,“ lýsir Ragnheiður.
Nýlega hófst matarhátíðin Kræsingar og kæti í
Norræna húsinu þar sem kynning á nýrri norrænni
matargerð stendur yfir. Þar eru mættir bestu mat-
reiðslumenn Norðurlandanna sem ætla að sýna listir
sínar næstu daga. Ragnheiður hvetur sem flesta til
að koma í Norræna húsið um helgina enda nóg í boði
sem gæti kitlað bragðlaukana. mikael@frettabladid.is
Einfalt og seðjandi
Ragnheiður fer oft nýjar leiðir í matargerð sinni og notar mikið af grænmeti og ávöxtum í matargerð sína. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Síðustu sætin
Heimsferðir bjóða frábær tilboð á síðustu sætunum á skíði í Austurríki
í febrúar og mars. Bjóðum vikuferðir 23. febrúar og 1. mars; frábær
sértilboð á flugsætum og frábær tilboð á flugi og gistingu. Þú bókar
tvö flugsæti en greiðir aðeins fyrir eitt. Tryggðu þér skíðafrí á besta
verðinu og bókaðu strax. Mjög takmarkað framboð flugsæta.
Verð Kr. 49.990
Flug og gisting í viku
Netverð á mann, m.v. gistingu í
tvíbýli á gististað ”án nafns” í Zell
am See / Schuttdorf / Lungau með
morgunverði í 7 nætur (sjá skilmála
”stökktu tilboðs”). Sértilboð 23.
febrúar og 1. mars.
Verð Kr. 59.990
Vikuferð með hálfu fæði
Netverð á mann, m.v. gistingu í
tvíbýli á Skihotel Speiereck *** í
Lungau með hálfu fæði í 7 nætur.
Sértilboð 1. mars.
Verð Kr. 19.990
Flugsæti með sköttum. 23. febrúar
eða 1. mars. Netverð á mann.