Fréttablaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 34
Fyrir hverju ertu veikust?:
„Ég held að ég sé veikust fyrir mega
háum hælum.“
Uppáhaldsbúðin?:
„Á Íslandi finnst mér langskemmti-
legast að fara í KronKron og Trilog-
iu, annars er Henrik Vibskov-búðin í
Köben líka í miklu uppáhaldi.“
Eftirlætis flíkin í fataskápnum?:
„Bernhard Wilhelm-peysan mín, hún
er uppáhaldsflíkin mín,“
Nauðsynlegt í fataskápinn?:
„Háir sokkar, góðir vetrarskór, stór
taska og lakk-kápa.“
Hvað langar þig mest í fataskápinn
þessa stundina?:
„Mig langar mest í þröngar leðurbuxur
og Marc Jacobs skó.
fatastíllinn
Birta Ísólfsdóttir nemi í fatahönnun
Föt gegna stóru hlutverki í lífi Birtu
Ísólfsdóttur, nema á fyrsta ári í fata-
hönnun við Listaháskóla Íslands. Hún
útskrifaðist af myndlistarbraut Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti en á meðan
hún var í skólanum seldi hún hönn-
un sína í Nakta apanum. Birta er nú
á leiðinni til Parísar með bekkn-
um sínum í Lista háskólanum en
árlega fer hópur fyrsta árs nem-
endanna og starfar fyrir hönnuði
í mekka tískunnar.
Hvernig myndir þú lýsa eigin stíl? „Þröngar
buxur, peysur í yfirstærð og hælaskór.“
Hvaðan sækir þú innblástur þegar kemur að
fatastílnum? Áttu þér einhverja fyrirmynd? „Ég
skoða tískutímarit, les bloggsíður og hugsa að
innblásturinn komi helst frá því. Mín helsta
fyrirmynd er fatahönnuðurinn Made leine
Vionnet en hún var ein af áhrifamestu fata-
hönnuðum 20. aldar.“
Hvar verslar þú helst? „Ég
versla eiginlega bara úti
um allt og get fundið
ótrúlegustu hluti
á fáránlegum
stöðum.“
Átt þú þér þinn uppáhaldshönnuð?
„Þýski fatahönnuðurinn Bern-
hard Willhelm er einn af mínum
uppáhaldshönnuðum.“
En uppáhaldsfatamerki? „Það
er oft hægt að finna eitthvað
fallegt og ódýrt í Top Shop
og H&M.“
Bestu kaupin? „Ég
geri góð kaup í hvert
skipti sem ég kaupi mér
eitthvað nýtt enda rétt-
læti ég alltaf öll fata-
kaup.“
Verstu kaupin? „Ég hef
tvisvar keypt mér lágbotna
„vintage“ spariskó en sólinn datt
af báðum pörunum eftir að ég
hafði notað þá einu sinni og þeir
verða því eiginlega að teljast mín
verstu kaup.“
Hvað finnst þér um íslensku tískuna? „Hér
eru margar einkareknar tískuverslanir, sem
sjálfsagt eru reknar af hugsjóninni einni
saman. Það gerir tískuna líflega.“
bergthora@frettabladid.is
2
3
1Fær innblástur af bloggsíðum
1 „Henrik Vibskov-peysan
mín en hún er uppáhaldsflík-
in mín í fataskápnum.“
2 Adidas-skór.
3 Ein af uppáhaldstöskum
Birtu.
4 Pallíettuefripartur.
5 „Skyrta sem ég gerði sjálf,
sokkar frá h&M og skór
keyptir á E-bay.
4
5
6 • FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008