Fréttablaðið - 29.08.2008, Page 40
29. ÁGÚST 2008 FÖSTUDAGUR
Nemendur á lokaári við Kon-
unglega sænska ballettskól-
ann eru væntanlegir til lands-
ins í tengslum við ljósanótt.
Það er hin sautján ára gamla
Fjóla Oddgeirsdóttir, sem er
frá Reykjanesbæ og er nem-
andi við skólann, sem stendur
fyrir heimsókninni.
„Ég fékk þessa hugmynd fyrir
næstum því ári, að það gæti verið
gaman að fá bekkjarfélagana hing-
að heim. Mamma hvatti mig til að
láta bara verða af þessu,“ segir
Fjóla sem sjálf safnaði styrkjum
fyrir ferðinni.
„Ég prófaði að fara í bankana
og fleiri fyrirtæki og athuga hvort
einhver vildi styrkja þetta verk-
efni. Það vildi svo til að allir voru
rosalega áhugasamir og fyrr en
varði var bara komin dagsetning.“
Það eru tuttugu og átta dansarar í
hópnum auk kennara og fiðluleik-
ara og dugðu styrkirnir sem Fjóla
safnaði til að borga alla flugmið-
ana og leigu á Borgarleikhúsinu.
Reykjanesbær borgar svo gist-
inguna. „Það er rosalega gaman
að sjá þetta verða að veruleika.“
Hópurinn mun sýna tvisvar,
fyrst í Borgarleikhúsinu, fimmtu-
dagskvöldið 4. september og síðan
í íþróttahúsinu í Njarðvík klukkan
fimm á sunnudaginn 7. septemb-
er.
Nemendurnir koma til með að
sýna bæði klassískan ballett og
nútímadans. „Við erum að sýna
brot úr klassísku verki sem heit-
ir Coppelia,“ segir Fjóla, en það
verk er eftir Arthur Saint-Léon
við tónlist Léo Delibes. „Nútíma-
deildin er að sýna ný verk og svo
er eitt neo-klassískt. Það er að-
eins nútímalegri dans en í klass-
ískum táskóm með klassískar
hreyfingar. Þetta er í annað skipti
sem þetta verk er sýnt, en það var
frumsamið í skólanum fyrir rúmu
ári.“ Dagskráin er því fjölbreytt
en hún var sett saman sérstaklega
fyrir Íslandsheimsóknina.
Nemendurnir, sem eru á aldrin-
um sautján til nítján ára, fá ekki
mikinn frítíma í ferðinni en mest-
ur tíminn fer í æfingar. „Þau fá að
vera aðeins frjáls á laugardaginn
og skoða Reykjarnesið og fara í
Bláa lónið,“ segir Fjóla brosandi
og bætir við að þau muni hegða
sér vel. „Svona fyrirmyndarnem-
endur eins og við. Fyrir okkur er
þetta bara vinna.“ - ges
Glæsilegur limaburður dansaranna mun væntanlega gleðja íslenska áhorfendur.
Það verður bæði klassískur ballett og nútímaballett á fjölbreyttri sýningu hins Konunglega sænska ballettskóla. MYND/ODDGEIR KARLSSON
Konungleg ballettsýning
Fjóla Oddgeirsdóttir segir að fínu
tutu-ballettkjólarnir hafi líklegast vakið
áhuga hennar á ballett í upphafi.
● VERÐMÆTI ÚR VERÐLAUSU EFNI Kennarar á leikskólan-
um Holti standa um ljósanæturhelgina fyrir lista- og vísindasmiðju
undir yfirskriftinni Vísindasmiðja - leikur, sköpun, endurvinnsla.
„Markmið smiðjunnar er að ná fjölskyldunni saman og vinna
með ýmiss konar verðlausan efnivið,“ segir Kristín Helgadóttir
leikskólastjóri. „Fjölmargir ættu að geta fundið barnið í sjálfum sér í
faðmi ljósanæturhátíðarinnar.“ Listsköpun barnanna er í hávegum
höfð í skólanum, sem starfar í anda Reggio Emilia. „Það hefur verið
ánægjulegt að sjá hvernig litlir en stórhuga einstaklingar láta óskir
sínar verða að veruleika með því að prófa sig áfram,“ segir Kristín um
liststarfið.
NÝR OG
STÆRRI
STAÐUR
LJÓSANÆTUR-
TILBOÐ Á
BARNUM
568 7574 og 822 3858
Við viljum óska
suðurnesjamönnum
til hamingju með
Ljósanótt.