Fréttablaðið - 25.09.2008, Síða 2
2 25. september 2008 FIMMTUDAGUR
FÓLK „Það er engin kreppa hér. Því
dýrari sem fötin eru því hraðar
seljast þau. Við lifum því góðu
lífi,“ segir Axel
Gómez, einn
eigenda Sævars
Karls, sem
hefur ekki
undan að selja
Íslendingum
dýran merkja-
fatnað.
Sérsaumuð
föt frá Armani
eru meðal þess sem selst vel í
versluninni, en þau kosta frá
150.000 krónum og upp úr. „Hafi
menn prófað þetta vilja þeir ekki
annað, enda passa fötin fullkom-
lega, burtséð frá vaxtarlagi,“ segir
Axel, sem telur að kreppan aftri
mönnum ekki frá því að kaupa
hágæða fatnað.
- tlg/sjá Allt í miðju blaðsins
flugfelag.is
Aðeins eitt símtal í 570 3400 og málið er afgreitt.
Sækjum og sendum
– hratt og örugglega
á hagstæðu verði.
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
FÆREYJARVESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
GRÆNLAND
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
NARSARSSUAQ
KULUSUK
CONSTABLE POINT
NUUK
Til/frá Reykjavík
Akureyri 8-12 ferðir á dag
Egilsstaðir 5-7 ferðir á dag
Ísafjörður 2-3 ferðir á dag
Vestmannaeyjar 2-3 ferðir á dag
AXEL GÓMEZ
Starfsmenn Sævars Karls:
Moka út dýrum
hátískufatnaði
Diddú, ert þú nýja Rússa-
grýlan?
„Ég ætla rétt að vona ekki. Ég
vona að ég boði fagnaðarerindi frá
Rússlandi.“
Söngkonan Diddú er nýkomin heim frá
Rússlandi þar sem hún hljóðritaði efni
fyrir væntanlega hljómplötu og söng á
tónleikum. Hún segist hafa tekið ástfóstri
við land og þjóð.
LÖGREGLUMÁL Rannsókn lögreglu á
máli karlmanns sem grunaður er
um að hafa beitt þrjú börn sín
harðvítugu ofbeldi er á lokastigi.
Niðurstöður verða sendar
ákæruvaldinu síðar í þessari viku.
Maðurinn, sem er á fertugs-
aldri, á dreng og tvær stúlkur á
aldrinum átta til fjórtán ára.
Börnin bjuggu hjá föður sínum.
Málið kom inn á borð rannsókn-
ardeildar lögreglu höfuðborgar-
svæðisins frá barnaverndarnefnd
í sveitarfélaginu þar sem brotin
komust upp. - jss
Meintur ofbeldisfaðir:
Málið brátt til
ákæruvaldsins
VIÐSKIPTI Fjárfestingarfélagið
Berkshire Hathaway, sem
bandaríski auðkýfingurinn
Warren Buffett hefur stýrt í rúm
fjörutíu ár, flaggaði í fyrradag
hlut í bandaríska bankanum
Goldman Sachs. Kaupverð nam
fimm milljörðum dala, jafnvirði
480 milljarða íslenskra króna.
Kunnugt er að Buffett opnar
ekki veskið nema hann komi auga
á fyrirtæki sem hafa lækkað í
verði.
Bankinn, sem fékk viðskipta-
bankaleyfi á sunnudag, hefur auk
þess selt ný hlutabréf fyrir fimm
milljarða til viðbótar í almennu
útboði. - jab
Auðkýfingur sér tækifæri:
Buffett kaupir í
Goldman Sachs
SKIPULAGSMÁL „Ég held að þeir ættu
að segja sem minnst um þetta. Þeir
eru ekki einir í heiminum,“ segir
Gunnar I. Birgisson um gagnrýni
umhverfis- og skipulagsyfirvalda í
Reykjavík vegna framkvæmda við
landfyllingu í Kársnesi.
Kópavogsbær hefur kynnt tillögu
um breytingu á svæðisskipulagi
höfuðborgarsvæðisins, í því skyni
að stækka Kárs-
nesið töluvert
með landfyll-
ingu.
Umhverfis- og
samgönguráð
Reykjavíkur
hefur ítrekað
„verulegar
áhyggjur“ af
umhverfisáhrif-
um landfylling-
arinnar og harm-
ar að
framkvæmdir
séu hafnar „þó
að lögformlegt
ferli sé vart
hafið“.
Í bréfi frá
skipulagssviði
Reykjavíkur til
skipulags- og
umhverfissviðs
Kópavogsbæjar segir jafnframt að
það sé „ekki ásættanlegt að eitt
sveitarfélaganna við Skerfjafjörð
fari með landfyllingu svo langt í sjó
fram, nánast að sveitarfélagamörk-
um sínum“.
Er og vísað til þess að ríkið hafi
þá stefnu að vernda Skerjafjörðinn,
en strandlína höfuðborgarsvæðis-
ins, frá Seltjarnarnesi og suður
fyrir Álftanes, er á náttúruverndar-
áætlun.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, for-
maður umhverfis- og samgöngu-
ráðs, segir að neikvæð umsögn
borgarinnar sé nú í höndum skipu-
lagsráðs en endurspegli vel þver-
pólitískar skoðanir umhverfisráðs-
ins. Hún vill ekki tjá sig hvað verði
úr ef yfirvöld í Kópavogi koma ekki
til móts við sjónarmið borgarinnar.
Gunnar rifjar upp framkvæmdir
Reykjavíkur við Örfirisey og í
Sundahöfn. „Þar fór borgin fram án
þess að spyrja kóng né prest og
menn ættu því að anda djúpt og
vinna að þessu verkefni saman,“
segir hann. Kópavogur vilji fram-
kvæma í sátt við alla.
Yfirstandandi fyllingar séu unnar
eftir skipulagssamþykktum frá
árinu 2000. Frekari framkvæmdum
fylgi svo umhverfismat.
klemens@frettabladid.is
Reykjavík segi sem
minnst um Kópavog
Bæjarstjóri Kópavogs segir Reykjavíkurborg ekki vana að biðja um leyfi fyrir
sínum framkvæmdum og að borgarfulltrúar ættu að „anda djúpt“ áður en þeir
gagnrýni Kársnesslandfyllinguna. Fulltrúarnir hafa „verulegar áhyggjur“.
EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Íslands
er ekki aðili að 40 milljarða dala
gjaldeyrisskiptasamningi sem
seðlabankar Norðurlandanna og
Ástralíu hafa gert við Seðlabanka
Bandaríkjanna. Samningurinn er
liður í aðgerðum Seðlabanka
Bandaríkjanna til að styrkja
fjármálakerfi heimsins og létta á
lausafjárkreppu þeirri sem nú
ógnar mörgum bankastofnunum.
Seðlabanki Íslands tjáir sig ekki
um þennan samning, en forstöðu-
menn greiningardeilda bankanna
segja að það væri mjög jákvætt ef
Íslendingar næðu sambærilegum
samningi. - msh
Gjaldeyrisskiptasamningar:
Ísland ekki með
GUNNAR INGI
BIRGISSON
ÞORBJÖRG HELGA
VIGFÚSDÓTTIR
S K E R J A F J Ö R Ð U R
Grótta
Kársnes
Arnarnes
Álftanes
Bakkatjörn
Engey
Hlið-
Fólkvangur
Náttúruvætti
Fyrirhugaðar uppfyllingar
Friðland
Tillaga að friðlýsingu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/J
Ó
N
A
S
FYRIRHUGUÐ
LANDFYLLING Fjaran
og grunnsævið er
á náttúruverndar-
áætlun Umhvefis-
stofnunar, að tillögu
stofnunarinnar og
Náttúrufræðistofn-
unar Íslands.
ORKA „Við megum ekki eiga nema
tíu prósent í framleiðslunni en
eigum 16 prósent. Við verðum því
að selja sex prósent í það minnsta,
og kannski viljum við losa okkur
við meira,“ segir Hjörleifur B.
Kvaran, forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur (OR).
Fyrirtækið á ríflega 16 prósent
í Hitaveitu Suðurnesja (HS) og
var búið að semja við Hafnar-
fjarðarbæ um kaup á fjórtán pró-
sentum til viðbótar. Samkeppnis-
eftirlitið hefur svo úrskurðað að
OR megi ekki eiga nema tíu pró-
sent í HS. Hafnarfjörður og OR
deila nú um hvernig þessu verði
háttað.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu vilja Geysir Green
Energy og Reykjanesbær kaupa
hlut OR í HS. Einnig mun Norður-
ál-Century Aluminium hafa sóst
eftir hlutnum en Hjörleifur vill
ekki tjá sig um það.
„Ég get ekki neitað því að fleiri
aðilar hafa verið að fylgjast með
málinu,“ segir hann. Þau fyrir-
tæki séu innlend sem erlend.
Þeirra á meðal séu erlendir fjár-
festingarsjóðir.
Hjörleifur segir þetta þó ekki
skýrast fyrr en búið verði að
skipta HS upp eftir nýjum lögum.
„En ein hugmyndin er sú að
auglýsa þetta einfaldlega til sölu
og óska eftir tilboðum og sjá hvað
gerist,“ segir Hjörleifur.
- kóþ
Innlend sem erlend fyrirtæki sýna Hitaveitu Suðurnesja áhuga:
Orkuveitan selur í Hitaveitunni
STJÓRNMÁL Góðkynja æxli hefur
fundist í höfði Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur utanríkis-
ráðherra. Kom það í ljós við
rannsókn á sjúkrahúsi í New
York, en
Ingibjörg er
þar stödd á
allsherjarþingi
Sameinuðu
þjóðanna. Hún
fundaði með
Sergei Lavrov,
utanríkisráð-
herra Rússa, í
gærkvöldi.
Ingibjörg
fékk aðsvif í pallborðsumræðum
á allsherjarþinginu á mánudag og
var í kjölfarið flutt í skoðun á
sjúkrahús. Búist er við að hún
fljúgi til Íslands á föstudag og
undirgangist þá meðferð við
meinum sínum. Ekki er gert ráð
fyrir langri fjarveru ráðherrans
frá störfum.
Á tvíhliða fundi með utanríkis-
ráðherra Rússa í gærkvöldi var
ætlunin að ræða samskipti
ríkjanna tveggja og almenn
heimsmál. - kg
Utanríkisráðherra í New York:
Ingibjörg með
góðkynja æxli
Lögregla og fjölmiðlar í Dóminíska lýðveldinu um morðið á Hrafnhildi:
Hugsanlega ástríðumorð
LÖGREGLUMÁL „Það hafa nokkrir verið yfirheyrðir en
eins og er erum við með þrjá í haldi,“ segir Cristian
Ferreira, yfirmaður rannsóknarlögreglunnar í
Puerto Plata í Dóminíska lýðveldinu. Hann fer með
rannsókn morðsins á Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur.
Í veffréttamiðlinum Listín Diario segir að lögregl-
an telji að um ástríðuglæp sé að ræða og í fyrradag
hafði veffréttamiðillinn El Nacional það eftir
lögreglunni að miklar líkur væru á því að það væri
tilfellið.
Cristian Ferreira segist ekki vilja tjá sig um það.
„Niðurstöður krufningar liggja ekki fyrir og þangað
til getum við ekkert sagt um dánarorsök,“ segir
hann.
„Hins vegar vil ég að Íslendingar viti að við
vinnum að rannsókn málsins af fullum þunga og
viljum leysa það. Bæði til þess að réttvísin hafi sinn
framgang og svo til að stuðla að frekara öryggi.“
Hrafnhildur var stungin í brjóst, hendi og öxl auk
þess sem hún hafði fengið höfuðáverka og önnur sár.
Hún fannst látin á mánudaginn var á hótelinu þar
sem hún dvaldi og starfaði í þorpinu Cabarete.
- jse
HRAFNHILDUR
LILJA GEORGS-
DÓTTIR Þrír eru
í haldi vegna
morðsins en
haft hefur verið
eftir lögreglu að
hugsanlega sé
um ástríðu-
morð að ræða.
INGIBJÖRG
SÓLRÚN
HJÖRLEIFUR B. KVARAN Forstjóri Orku-
veitunnar segir fyrirtækið ætla að selja
í það minnsta sex prósent í Hitaveitu
Suðurnesja
Ökumaður undir áhrifum
Lögreglan í Borgarnesi hafði í gær
afskipti af ökumanni sem er grunaður
um akstur undir áhrifum fíkniefna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SPURNING DAGSINS