Fréttablaðið - 25.09.2008, Side 10
FJÖLSKYLDUBÍLLINN
SEM EYÐIR SVO
MIKLU MIKLU MINNA.
Skoda Octavia 1,9 TDI® - 4,9 lítrar á hundraðið
Skoda Octavia er vandaður og ríkulega útbúinn verðlaunabíll í fullri stærð með pláss fyrir alla
fjölskylduna og rúmgott farangursrými. Nýja TDI® dísilvélin, skilar miklu og jöfnu afli og býr yfir
frábærum aksturseiginleikum (einnig fáanlegur með bensínvél).
Skoðaðu Skoda Octavia - bílinn sem eyðir svo miklu miklu minna.
Allir kaupendur Skoda Octavia fá frítt fyrir fjölskyldu sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í eitt ár.
10 25. september 2008 FIMMTUDAGUR
LÖGGÆSLUMÁL „Þegar ég ákvað að
auglýsa lögreglustjóraembættið á
Suðurnesjum færði ég fyrir því
skýr efnisleg rök. Að lögreglu-
stjóri bregðist við á þann veg,
sem fyrir liggur, kom mér á
óvart,“ segir Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra.
„Ég óska honum og samstarfs-
mönnum hans, sem nú kveðja
embættið, velfarnaðar og þakka
þeim samfylgdina síðan 1. janúar
2007, þegar embættið færðist frá
utanríkisráðuneyti undir dóms-
og kirkjumálaráðuneyti,“ bætir
Björn við.
Hann segir nú blasa við að fylla
skörð þeirra, sem kveðja, og
tryggja framtíð hins mikilvæga
starfs, sem unnið sé af lögreglu,
tollvörðum og öryggisvörðum við
embættið. Í því efni þurfi í senn
að taka á stjórnsýslulegum og
fjárhagslegum þáttum með skýr
framtíðarmarkmið í huga í
samræmi við eðlilega verkaskipt-
ingu innan stjórnarráðsins.
Björn skrifar jafnframt um
málið á heimasíðu sinni í gær. Þar
vísar ráðherrann því á bug að það
sé fyrirsláttur að segja ákvörðun
um auglýsingu lögreglustjóra-
embættisins vera byggða á því að
embættið sé breytt. „Ef Jóhann
veit meira um það en ég, hvers
vegna ég tók þessa ákvörðun,
væri gott að hann upplýsti mig og
aðra um það.“
- jss
Dómsmálaráðherra:
Kemur á óvart
BJÖRN BJARNASON Dómsmálaráðherra
segir nú blasa við að fylla skörð þeirra
sem kveðja.
LÖGGÆSLUMÁL „Sú ákvörðun að láta
af störfum nú er mjög þungbær,“
sagði Jóhann R. Benediktsson, lög-
reglu- og tollstjóri á Suðurnesjum,
við Fréttablaðið í gærkvöld. Hann
óskaði í gær eftir því við dómsmála-
ráðuneytið að fá að láta af störfum
1. október næstkomandi. Ráðuneyt-
ið hefur fallist á beiðnina. Jóhann
tilkynnti jafnframt samstarfsfólki
sínu þetta.
Þrír lykilstarfsmenn hjá embætt-
inu óskuðu einnig eftir að láta af
störfum frá sama tíma. Það eru Eyj-
ólfur Kristjánsson, staðgengill lög-
reglustjóra, Guðni Geir Jónsson
fjármálastjóri og Ásgeir J. Ásgeirs-
son starfsmannastjóri.
Jóhann hafði áður tilkynnt að
hann myndi hætta störfum ef Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra
myndi skipta embættinu á Suður-
nesjum upp, en þá ákvörðun boðaði
ráðherra í mars. Jóhann sagði sam-
skipti ráðuneytisins og embættisins
hafa frá þeim tíma verið afar stirð.
Embættið hafi þó á undanförnum
mánuðum lagt sig fram við að vinna
markvisst að lausn deilunnar. Sú
vinna hafi ekki fengið hljómgrunn
innan ráðuneytisins. Sé nú svo
komið að algjör trúnaðarbrestur sé
til staðar að mati embættisins.
„Ég tel að vandinn sé brýnn og
alvarlegur,“ sagði Jóhann, „og ég
tel einfaldlega að því fyrr sem ég
vík þeim mun greiðar muni ganga
að leysa úr málum.“
Jóhann sagði embættið ekki hafa
fengið málefnalega meðferð né
notið sannmælis hjá dómsmála-
ráðuneytinu.
„Strax og einhver annar sest í
minn stól tel ég að hann fái sann-
gjarnari meðferð en ég hef fengið,“
útskýrði hann.
„Yfirmannsstaða í lögreglunni er
með allra erfiðustu störfum sem
menn gegna. Gífurlega mikilvægt
er að lögreglustjórar í landinu njóti
öflugs stuðnings sinna yfirmanna
og ráðamanna. Sú staðreynd, sem
við öllum blasir, að ég geri það ekki,
gerir erfitt starf nánast óbærilegt.
Það er þungbært þegar forstöðu-
maður er með óleyst vandamál og
hefur áhyggjur af framtíð og starfs-
öryggi starfsmanna sinna.“
Jóhann sagði það hafa hjálpað sér
við ákvörðun sína um að hætta
störfum, að hann vissi að hún væri í
þágu starfsmanna embættisins.
„Ég tel mig vera að þjóna hags-
munum embættisins best með þess-
um hætti og þá um leið hagsmunum
íbúa umdæmisins.“ jss@frettabladid.is
LÖGREGLUSTJÓRINN KVADDUR Jóhanni R. Benediktssyni hafði borist tilkynning
frá dómsmálaráðherra um að toll- og lögreglustjóraembættið á Suðurnesjum yrði
auglýst þegar skipunartími hans rynni út. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þungbær ákvörðun
Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir það þungbæra
ákvörðun að láta af starfi nú. Algjör trúnaðarbrestur sé milli embættisins og
dómsmálaráðherra. Því muni ganga greiðar að leysa úr málum hverfi hann frá.
LÖGGÆSLUMÁL „Það hefur alltaf
áhrif þegar skipt er um fólk í
æðstu stöðum en það má ekki
gleyma því að breytingar eru
tækifæri,“ segir Ólafur Helgi
Kjartansson, sýslumaður á
Selfossi, um
brotthvarf
Jóhanns
Benediktssonar.
„Auðvitað er
leitt að málið
skyldi enda með
þessum hætti en
forsagan virðist
svolítið gleymd.
Fyrst og fremst
vona ég að þeir
sem starfa fyrir embættið eigi
góða tíð fram undan, hvernig svo
sem embættinu verður ætlaður
staður. Ég vona líka að Jóhann
Benediktsson eigi eitthvað gott í
vændum,“ segir Ólafur. - gar
Sýslumaðurinn á Selfossi:
Breytingarnar
eru tækifæri
ÓLAFUR HELGI
KJARTANSSON
LÖGGÆSLUMÁL Lögreglumenn á
Suðurnesjum eru ósáttir við að
staða sitjandi lögreglustjóra sé
auglýst til umsóknar.
„Teljum við mikilvægt að
hagsmunafélög lögreglumanna, og
aðrir sem láta sig málið varða, taki
þessa ákvörðun til ítarlegrar
skoðunar og kanni réttmæti
hennar,“ segir í ályktun félags-
fundar Lögreglufélags Suður-
nesja. „Um jafn mikilvæga
starfsemi lögreglu og tollgæslu
þarf að ríkja sátt og eining.
Nauðsynlegt er að slík starfsemi
sé óháð duttlungum einstakra
stjórnmálamanna.“
Hjálmar Hallgrímsson, formað-
ur félagsins, segir einn besta
lögreglustjóra landsins hafa lotið í
gras fyrir dómsmálaráðuneytinu:
„Við erum mjög svekktir.“ - jss
Lögreglufélag Suðurnesja:
Mjög svekktir
Strax og einhver annar
sest í minn stól tel ég að
hann fái sanngjarnari meðferð en
ég hef fengið.
JÓHANN R. BENEDIKTSSON
LÖGREGLUSTJÓRI