Réttur - 01.07.1930, Page 45
Rjettur]
MARXISMINN
2(51
Loks er viðhorf hins marxiska sosialisma til smá-
rekstursins, sem einnig mun haldast á tímabili því, er
eignaræningjarnir eru eignum rændir. Um það skal
vísað til Engels, er flytur oss þar skoðanir Marx:
»...Þegar vér höfum ríkisvaldið í vorum höndum kemur auð-
vitað eigi til mála að svifta smábændurna eignum sínum með of-
beldi (hvort sem heldur væri með eða án endurgjalds) eins og'
vér urðum að gera við stórjarðeigendurna. Verkefni vort gagn-
vart smábændunum er fyrst og fremst í því fólgið, að fá einka-
rekstur þeirra og einkaeign yfir í samvinnuhorf, eigi með valdi,
heldur með fordæmum og með því að láta í té félagslega aðstoð
í þessum tilgangi. Og þá höfum vér nú þegar næg tæki til að
sýna honum og sanna yfirburði, sem honum hljóta þegar að
vera fullljósir. (Engels: »Vandamál bænda í Frakklandi og
Þýzkalandi« í »Neue Zeit«, XIII. árgangur 1, 1894; bls. 301—
302).
Bardtigaaðfcrð öreiganna í stéttabaráttunni.
Eftir að Marx 1844—45 hafði afhjúpað einn aðal-
galla gömlu efnishyggjunnar, sem var í því fólginn, að
hún kunni eigi að skilja né meta skilyrði og gildi bylt-
ingasinnaðrar starfsemi, fékkst hann alla ævi sína, á-
samt vísindalegri starfsemi, við rannsókn vandamál-
anna í bardagaaðferð öreiganna í stéttarbaráttunni. —
ÖU rit Marx, en sérstaklega bréfaskifti hans og Engels.
sem gefin eru út í 4 bindum 1913, leggja fram afar-
mikið efni í þessu skyni. Efni þessu er þó eigi nánda
nærri nógu fullkomlega safnað né nógu samdregið og
rannsakað, og úr því unnið. Þess vegna verðum vér
hér að láta oss nægja almennar og stuttar athuga-
semdir, en undirstrika hins vegar, að Marx taldi þá
efnishyggju, er væri án þessa viðhorfs, hálfa, einhliða
og dauða. Aðalverkefni baráttuaðferðar öreiganna á-
kvað Marx í nákvæmu samræmi við öll rök og allar
forsendur hinnar efnislegu og þróunarlegu heimsskoð-
uiiar sinnar. Aðeins óhlutdrægt tillit til heildar-víxl
sambanda allra stétta í vissu þjóðfélagi og því jafn-