Réttur - 01.07.1930, Síða 56
272
ALÞJÓÐASAMHJÁLP VERKALÝÐSINS [Rjettur
verklegar framkvæmdir í Rússlandi, og þá einkum að
stuðla að vexti og viðgangi þeirra fyrirtækja, sem sam-
bandið hefir tekið að sér þar, svo og að hrekja lygar
um Rússland og breiða út sem sannastar fréttir af
framkvæmdum verkalýðsins þar í landi.
3. grein.
A. S. V. íslandsdeildin, er óháð öllum pólitískum
flokkum og veitir hjálp sína allri alþýðu, án tillits til
pólitískra skoðana hinna bágstöddu og veitir því við-
töku sem meðlimum öllum þeim, sem af einlægum hug
bjóða fram aðstoð sína til hjálpar alþýðunni þegar
neyðin sverfur að. (6. grein alþjóðalaganna).
4. grein.
Stjórn félagsins hefir aðsetur sitt í Reykjavík. Hana
skipa fæst 5 menn, flest 9, og verða að minsta kosti 5
af þeim að vera búsettir i Reykjavík. Ef færri eru í
stjórninni en 9 getur hún sjálf bætt við sig mönnum,
uns hún er fullskipuð.
5. grein.
Meðlimir geta orðið bæði einstaklingar og félög er
starfa að verklýðsmálum.
6. grein.
Meðlimir félagsins, hvar á landinu sem er, geta
myndað deildir úr því og þurfa minst 7'menn til að
mynda deild. Ekki má vera nema ein deild í hverjum
kaupstað, kauptúni eða sveit. Verklýðsfélög geta þó
ekki verið meðlimir deilda.
7. grein.
Allar deildir skulu hafa samhljóða lög, er samin eru
og gefin út af stjórn félagsins.