Réttur - 01.07.1930, Síða 65
Byltingarhreyfingin í Kína.
Hvað er að gerast í Kína.
Síðustu mánuði hafa við og við birtst erlendar fregn-
ir í íslenskum blöðum um kínverska »bófaflokka«, er
færu með ránum og gripdeildum um borgir og þorp í
Kína, myrtu menn og varnarlausar konur og gerðu yf-
irleitt það af sjer, sem allir góðir borgarar hafa and-
stygð á, að minsta kosti á »venjulegum« tímum. Einn-
ig hefir borist með skeytum þessum, að yfirvöldin kín-
versku hefðu gert ýmsar varúðarráðstafanir til að eyða
undirróðri kommúnista þar austur frá. Af þessu virð-
ist því mega ráða, að toluvert náið samband sé milli
»bófaflokkanna« og kommúnistanna í Kína.
Þannig hljóða frjettirnar, sem við höfum af stórvið-
burðum þeim, sem eru að gerast austur í Kína. Erlend-
ar frjettir íslensku blaðanna eru aðalfæða hins íslenska
miðlungs-smáborgara í þeim efnum, er lúta að heims-
stjórnmálum og heimsviðburðum. Það er því engin
furða, þótt honum renni kalt vatn milli skinns og hör-
unds, er hann heyrir um aðfarir þessara kínversku
»stigamanna« og kommúnista. Skelfing smáborgar-
anna íslensku verður líka skiljanlegri, þegar þess er
gætt, að þeir hafa nú um all-langt skeið borið Kína
mjög fyrir brjósti. Þeir hafa nefnilega gefið Kína ís-
lenskan trúboða, og svo að hann færi ekki alveg slypp-
ur og snauður austur þangað, stungu þeir að honum
Passíusálmunum í kínverskri þýðingu í nesti. Hin ís-
19