Réttur - 01.07.1930, Blaðsíða 87
Rjettur]
INDLAND
303
Múhameðstrúarmenn og Hindúar rísa nú sameinaðir
gegn kúgurunum. í Peschawar neituðu Gharwali-skytt-
urnar (Hindúar) að skjóta á Múhameðstrúarmenn. Og
í S'cholapur neitaði herdeild Múhameðstrúarmanna að
skjóta á Hindúa.
Svo verðskuldað hatur héfir Simon-nefndin hlotið í
Indlandi, að hún er alment kölluð »lyganefndin«. En
skýrslu þessarar nefndar hafa enskir sósíaldemókratar,
og eins þeir, sem hæst hafa gasprað, gert að biblíu
sinni. En enskir sósíaldemókratar skifta vel með sjer
verkum. Þeir sem eRki eru önnum kafnir við stjórnar-
störfin, við hinar praktisku athafnir í umboði enskra
auðdrottna, gráta tárum hræsnarans yfir Indlandi og
ganga jafnvel svo langt að »finna að« gerðum Mac-
Donald stjórnarinnar. En í verkinu styðja þeir kúgun-
arpólitík hennar í öllum atriðum og hvetja indverska
alþýðu til að þola harðstjórnina möglunarlaust.
Enskir sósíaldemókratar hafa átt góða lærifeður í
lygum og blekkingum, þar sem enska borgarastjettin
er, og þeir hafa reynst góðir lærisveinar. Mikill þorri
verkalýðsins trúir þeim ennþá. Mac-Donald reynir að
skapa flokk »vinstri sósíaldemókrata« í kringum sig,
sem hafa betra tækifæri en hann sjálfur og samstarfs-
menn hans, að hylja þjónustuna við auðvaldið. Áður
hafði Mac-Donald sama hlutverkið á hendi og fjelagar
hans til vinstri nú. Þá skrifaði hann bækur um Ind-
land, sem hann hefir sjálfur gert upptækar í Indlandi
nú.
En stjarna sósíaldemókrata í Englandi er nú að
lækka. Atburðir þeir, sem gerst hafa innan breska
heimsveldisins, síðustu árin, hafa flýtt mjög fyrir þró-
uninni.
Eini flokkurinn í Englandi, sem berst á móti ný-
lendukúguninni og veitir indversku frelsishreyfingunni
fullan stuðning, er kommúnistaflokkurinn.
í ávarpi, sem ensku kommúnistarnir sendu út í vor,