Réttur - 01.05.1932, Blaðsíða 13
hendur morðingjunum. 1 Þýzkalandi vaða vopnaðir
fasistaflokkar uppi, sitja fyrir stéttvísum verkamönn-
um og meiða þá eða myrða, án þess að aðgerðir dóm-
stólanna gegn þessu séu fólgnar í öðru en máiamynda-
káki. Alls staðar herðir nú borgarastéttin ofsóknir
sínar á hendur verkalýðnum, og þó sérstaklega hinum
stéttvísa hluta hans, því að þaðan stafar henni aðal-
hættan á þessum tímum, þegar komið er í tvísýnu um
þjóðfélagsvöld hennar og öll yfirráð í framt.ðmni.
Fasisminn, svartliðastefnan, er örþrifaráð auðvaldsins
til þess að halda í völdin og berja niður öfl hins nýja
tíma, byltingahreyfingu verkalýðsins. Stefna þessi
dregur nafn af einvalds- og harðstjórnarstefnu þeirri,
sem kom upp í Ítalíu eftir stríðsárin, þar sem Musso-
lini tók sér einveldi í umboði ítölsku borgarastéttarinn-
ar og hefir síðan ríkt með blóðugu hervaldi og grimmd-
arstjórn. Fasisminn er ekki annað en ógrímuklætt al-
ræði auðvaldsins, þar sem hið grímuklædda alræði,
borgaralega „lýðræðið“ svonefnda, reynist ekki lengur
nógu öflugt stjórnarfyrirkomulag, þar sem frelsis-
hreyfing undirstéttanna er orðin svo mögnuð, að
blekkingastarfsemi sósíaldemokratisku forkólfanna
reynist ekki lengur einhlít til þess að kæfa hana eða
þagga niður. Fasismi hlýtur allt af að vera stjórnar-
fyrirkomulag dauðvona auðvaldsskipulags, þegar þró-
uninni er svo langt komið, að borgarastéttin er farin
að missa hin andlegu yfirráð yfir m'klum hluta undir-
stéttanna, þegar kirkja, skólar, bækur og blaðakost-
ur hennar, aðal-grundvöllur hinna andlegu yfirráða,
eru hætt að geta leyst að fullu þetta hlutverk s'tt, og
grípa verður til óhjúpaðrar kúgunar og ofsókna, and-
legra og líkamlegra, í ennþá stærra stíl en áður. Árið
1930—’31 voru t. d. 93 verkamenn myrtir í Þýzkalandi
af fasistum og lögreglu í sameiningu.
Rauða samhjálpin setur sér það hlutverk, að veita
öllum, sem verða fyrir slíkum ofsóknum, pólitíska,
efnalega og andlega aðstoð. Hún styrkir fjárhagslega
77