Réttur - 01.05.1932, Blaðsíða 23
aldrei á meðan þeir endast, en endingartími þeirra er
venjulegast um 20 ár. Það er tilkomumikil sjón að sjá
yfir háofnahéraðið að næturlagi“.
2. nóv. kom nefndin til Moskva. Skoðaði nefndin þar
sögunarverksmiðju, heimsótti „Pravda", aðalblað rúss-
neska kommúnistaflokksins, sá betrunarhús, skoðaði
byltingasafnið og ýmislegt fleira. Ef til vill fær „Rétt-
ur“ leyfi og tækifæri til að birta síðar hlutann úr nefnd-
arskýrslunni um betrunarhúsin, sem er mjög merki-
legur.
5. nóv. sat nefndin ásamt ýmsum öðrum verkamanna-
sendinefndum fund og veizlu í „hinni risavöxnu fornu
krýningarhöll í Kreml“ með ýmsum gömlu Bolsévik-
unum. Forseti ráðstjórnarríkjanna, Kalinin, talaði þar
auk ýmissa annara. Svo segir skýrslan:
„Margir sendinefndarmenn töluðu og létu í ljósi álit
sitt á því, sem þeir höfðu séð á ferðum sínum um land-
ið og voru allir sammála um að sú víðtæka uppbygging,
sem ætti sér stað í Rússlandi, ætti hvergi sinn líka í
hinum kapitalistiska heimi“. — Eftir fundinn nutu svo
verkamenn hinna ýmsu landa kvöldverðar í fyrri mat-
sölum keisarans.
7. og 8. nóv. voru hátíðahöldin í tilefni af 14 ára af-
mæli byltingarinnar. Voru nefndarmenn hrifnir mjög
af hinum voldugu hersýningum, af skrúðgöngum vopn-
aðra verkamanna og hinum geysimiklu kröfugöngum
verkalýðsins í Moskva.
Næstu dagana var svo skoðað flest, sem nefndin ósk-
aði að sjá. 9. nóv. var haldið til LeningracL og var þar
margt að sjá í hinum forna arni byltingarinnar.
Segir skýrslan einkum frá Vetrarhöllinni, hinu fræga
málverkasafni, og Péturs-virkinu. Eru lýsingarnar á
dýflissu þessari ægilegar. Endar frásögnin svo:
„Nú er fangelsi þetta safn, en nokkur hluti þess er
notaður fyrir peningasláttu ríkisins. Úti í garðinum
stendur hið forna gálgatré, sem minnisvarði yfir hinni
hræðilegu sögu, sem hér hefir verið skrifuð með blóði
margra þúsunda varnarlausra verkamanna“.
87