Réttur - 01.05.1932, Blaðsíða 31
Vér byggðum oss hallir í barndómi, þá
er brosandi framtíð oss skein,
því kennt var oss ungum í himninum há
sæti herra, er læknaði öll mein.
En strax og vér lífinu leigðum vort starf,
þessi ljómandi boðskapur hvarf.
Vér unnum, og starf vort bar unað og arð
inn í auðkýfings hallir, og sól.
Auðmannsins milli og okkar þann garð
vér efldum, er þeim verður skjól.
I>að vald, sem þeir kalla sitt ríki og rétt
skal ryðja, hin kúgaða stétt.
Vér berjumst og föllum því, bræður, í dag
fyrir bjartari og fegurri lönd.
Vér berjumst og sigrum, og blásum það lag,
sem blæs okkur þrótti í hönd.
Vér föllum sem bræður, og frelsum af dáð
þá fjötrana báru, af ná'ð.
SKÁLD Á LEIÐ
TIL SÓSÍALISMANS
i.
Sósíalisminn er að brjótast í gegn í íslenzkum bók-
menntum, og um leið er — einmitt þess vegna —
að fæðast nýtt líf í skáldsagna- og einkum smásagna-
list á íslandi.
50 ár eru liðin síðan ,,Verðandi“ flutti íslenzku
alþýðunni samstilltan boðskap borgaralegu, þjóðlegu
byltingarinnar, — sem á íslandi tók á sig mynd þjóð-
95