Réttur - 01.05.1932, Blaðsíða 27
artekjurnar vaxa að sama skapi, síðan 1921 hafa þær
fimmfaldast og eru nú 1931, 49 miljarðar rúbla. Sam-
yrkjuhreyfingin hefir vaxið svo hratt, að nú eru um
70% allra bænda í samvinnubúum og yrkja þeir 90%
af öilum sáðfletinum. — Hið mikla böl auðvaldsskipu-
lagsins, atvinnuleysið, er nú með öllu upprætt, og á
þessu ári hefir iðnaðurinn aukið mannafla sinn um
tvær miljónir. Hrátt fyrir það nægir það ekki hinni
sívaxandi eftirspurn eftir vinnuafli.
Á íslandi er vinnudagurinn 9—16 stundir og jafnvel
ótakmarkaður, en hjá ykkur aðeins 7—8 stundir. Þið
hafið fimmta hvern dag frían, en við sjöunda hvern,
er það þó eins algengt, að atvinnurekendur svifti okkur
einpig þeirri hvíld.
Rússneski verkalýðurinn hefir 2—6 vikna sumarfrí
með fullum launum og auk þess ókeypis dvöl á hvíldar-
heimilum og baðstöðum og báðar ferðir fríar. Auk
þess hefir hann fullkomnar sjúkra-, elli- og slysatrygg-
ingar, sér að kostnaðarlausu. Verkamenn, sem verða
fyrir slysum eða veikindum, halda fullum launum auk
þess sem þeir fá ókeypis lyf og læknishjálp í sjúkra-
húsi. Á íslandi eru tryggingar sumpart engar eða sára-
litlar. Sumarfrí fær aðeins lítill hluti verkalýðsins,
enda er það sjaldgæft að nokkur hafi efni á að veita
§ér slíkt.
Konan í Sovétlýðveldunum fær sömu laun fyrir sömu
vinnu og karlmenn, og vinnur hún oftast aðeins 6
stundir á dag. Auk þess hefir hún frí 2 mánuði fyrir
og 2 mánuði eftir barnsburð með fullum launum. Til
þess að gera henni kleift að taka þátt í framleiðsl-
unni jafnt karlmönnum, eru byggð stórfengleg al-
menningseldhús, þar sem verkalýðurinn getur fengið
ódýran, Ijúffengan og næringarmikinn mat. Þar eru og
einnig byggðir barnagarðar og dagheimili fyrir börn
verkakvenna. Þannig eru konunni fengin skilyrði til
þess loks að verða alfrjáls.
Sendinefndin hefir jafnan á ferð sinni etið í mat-
skálum verkalýðsins, skoðað bústaði hans og kynnt sér
vöruverð, og getur því hrakið að fullu hinar svívirði-
legu lygar borgarablaðanna um lífskjör verkalýðsins
í Sovétríkjunum. Við fullyrðum að lífskjör séu mörg-
um sinnum betri en þekkist meðal íslenzkrar alþýðu.
I Sovétríkjunum er framleiðslan bundin föstu skipu-
lagi. Hin risavaxna fimmáraáætlun, sem borgararnir
91