Réttur - 01.05.1932, Blaðsíða 19
stöð, og hinn mikla Volga-Don-skurð, sem á að verða
100 km. á lengd og kosta 175 milj. rúbla.
Síðan var haldið til borgarinnar Rostov, sem fræg er
m. a. fyrir tóbaksframleiðslu sína. Skoðaði nefndin þar
tóbaksverksmiðjuna „Rosa Luxemburg“. Framleiddi hún
1913 16 milj. vindlinga á dag, með 5.000 verkamönnum,
en nú framleiðir hún 48 milj., með 3.200 vkm. En vinnu-
tíminn er samt aðeins 7 tímar og launin margfalt betri.
Meira en helmingur af starfsmönnum verksmiðjunnar
eru konur.
Nefndin skoðaði ennfremur landbúnaðarvélaverk-
smiðjuna ,,Selmastroj“, sem reist var 1927—’30, og
kostaði 77 milj. rúbla. Eru þar 18.000 verkamenn. Al-
gengasti launataxti 230—280 rúblur á mánuði. Dáðist
nefndin sérstaklega að hinum miklu og góðu varúðar-
ráðstöfunum í verksmiðjunni, er hindra slys.
24. okt. var nefndin á fundi með fylkisstjóra Norður-
Kaukasus og fékk frá honum margskonar upplýsingar
um vöxt framleiðslunnar og kjör verkalýðsins þar. —
Daginn eftir var haldið af stað suður í Kaukasus, og
dáðist nefndin mjög að hinu dásamlega útsýni er opn-
aðist, þegar Kaukasus-fjallgarðurinn blasti við. — Var
haldið til Kislovodsk, frægs sumardvalarstaðar, sem
einkum er kunnur fyrir hinar heilnæmu Narsan-lindir.
31 hressingarhæli er í borginni, og fer skýrslan mjög lof-
samlegum orðum um útbúnað þeirra. Þar næst var
haldið til Sjeljesnovodsk, sem einnig er sumardvalar-
staður verkamanna. Meðal annars sem nefndin kynnt-
ist þar, var eftirfarandi æfisaga, sem alþýðumaður sagði
henni. Birtist sá kafli skýrslunnar, er frá henni segir,
sem heild hér:
„I Sjeljesnovodsk hittum við mann nokkurn, semsagði
okkur æfisögu sína. Af því að hún er dálítið sérstök og
lærdómsrík fyrir fjöldann, ætlum við að birta hana
hér, eins og hann sagði hana:
„Eg er fæddur einhvers staðar úti á sléttunni; hefi
aldrei þekkt föður eða móður. Eg man fyrst eftir mér,
er eg var að ganga á milli bændanna, og sníkja brauð;
83