Réttur - 01.05.1932, Blaðsíða 26
irfarandi ávarp til rússneska verkalýðsins. Kemur þar
fram álit nefndarinnar á ástandinu í Sovétríkjunum og
gildi þeirrar baráttu, sem þar er háð, fyrir verkalýð
veraldarinnar.
Félagar!
Samkvæmt boði Alrússneska Verklýðssambandsins
hefir íslenzkum verkamönnum í fyrsta skifti gefizt
kostur á að senda fulltrúa sína í kynnisför til sovét-
lýðveldanna rússnesku.
Tíu fulltrúar, kosnir af verklýðsfundum víðs vegar
um landið áttu því láni að fagna að fara þessa för.
I nefndinni eru 2 kommúnistar, 2 sósíaldemokratar,
2 Sjálfstæðisflokksmenn, 1 í',ramsóknarflokksmaður og
3 flokksleysingjar.
Við höfum ferðast víða um Suður-Rússland og
Kaukasus og séð hina stórkostlegu uppbyggingu á sviði
iðnaðar og landbúnaðar. Við höfum átt tal við fjöl-
marga verkamenn og setið fundi með þeim; allar upp-
lýsingar fengið í áheyrn þeirra og af þeim sjálfum.
Okkur hefir engu verið leynt, öllum spurningum svar-
að hispurslaust og leitast hefir verið við að verða við
hverri ósk okkar.
Ferðaáætlun okkar höfum við sjálfir gert og ákveð-
ið hvað skoðað yrði. Fullyrðing hinna borgaralegu blaða
um það, að í Sovétlýðyeldunum væri öllu leynt, sem
miður væri, en aðeins það bezta sýnt þeim sem bang-
að kæmu, eru rakalaus ó.«&nnindi eins og aðrar óhróð-
urssögur þeirra í þá átt.
Rússnesku félagar! Við komum utan úr auðvalds-
heiminum, þar sem nú ríkir hin geigvænlegasta við-
skiptakreppa, framkomin vegna ósamrýmanlegra mót-
setninga auðvaldsskipulagsins. Við íslendingar höfum
ekki farið varhluta af faraldri þessum. Aðalframleiðsla
okkar, sjávarútvegurinn, er að mestu leyti stöðvaður
og þúsundum verkamanna varpað út í atvinnuleysið.
Framundan bíður hin óumflýjanlega vöntun allra lífs-
nauðsynja, þó vörugeymsluhús braskaranna séu hvar-
vetna full af óseljanlegum vörum. — Og enn á íslenzk
verklýðsstétt yfir höfði nýja og harðvítuga sókn frá
hendi fjandmanna sinna.
hjá ykkur, félagar, er engin kreppa. Framleiðsl-
an vex örara en nokkurn tíma hefir áður þekkst. Þjóð-
90