Réttur - 01.05.1932, Blaðsíða 22
inni. Neðarlega á stofn trésins er fest eirplata og á hana
er skráð saga staðarins, í aðal-atriðum.
Það var árið 1920, er hvítliða árásirnar á verka-
mannaríkið voru sem ákafastar, að 27 manna deild úr
„Rauða hernum“ var sett til að halda vö.rð um göngin
gegnum f jallið, því að búist var við að hvítliðar myndu
reyna að brjótast þar suður yfir, en það var eina leiðin
sem þekktist, yfir fjallið. Þegar hvítliðar fréttu að her-
vakt væri við göngin, urðu þeir að hverfa frá áformi
sínu, en af einhverjum ástæðum hittu þeir ábóta klaust-
ursins áður nefnda, og sögðu honum vandamál sín.
Þessi gamli guðsmaður kvað lítinn vanda að komast að
baki varðmönnum og króa þá inni. Hvað þeim hefir
farið meira á milli getur sagan ekki um, en eitt er víst
að hvítliðum var vísað á leynistíg einn yfir fjallið.
Hversu miklu verði þeir hafa keypt leiðsögnina er ekki
gott að segja, en trúlegt er að hinn æruverði faðir hafi
fengið nokkra skildinga hjá þeim.
Hermennirnir voru allir drepnir upp við fyrnefnt tré.
Sagt er að þeir hafi verið skotnir, en skotfæri voru dýr
og bjargið er ískyggilega hátt. Líkunum var hrundið
niður í gljúfrið fyrir neðan.
Það lítur svo út sem níðingsverkið hafi hrunið á
trénu, því á því vaxa engin blöð, heldur er það þakið
grænni mosaslepju, sem er aðseturstaður orma og skor-
kvikinda. Það minnir á kapitalismann í andarslitrun-
um“.
Er nefndin hafði þannig fengið nokkra hugmynd um
hina furðulegu náttúru Kaukasus, þjóðfélagsleg skilyrði
hinna mörgu þjóðflokka þar fyrr og nú og skygnst
nokkuð aftur í tímann til að sannfærast um hina stór-
fenglegu breytingu og alla þá fórn, er hún hafði kostað,
— var nú haldið norður á bóginn aftur, yfir námuhér-
aðið mikla Don-Bass í Ukraine, gegnum stórborgina
Charkov og til Moskva. Lýsir ritari nefndarinnar útsýn-
inu í Donhéraðinu þannig:
„Með fram brautinni, svo langt sem augað eygir, rísa
margskonar stórvaxin iðjuver. Fjallháir kolahaugar,
sem grafnir hafa verið upp úr iðrum jarðar eru ótelj-
andi. Hinn eilífi eldur háofnanna sendir rauðlitan
bjarma út yfir slétturnar. 1 ofnum þessum sloknar
86