Réttur - 01.05.1932, Page 20
því svo soltinn var eg, aS eg át svo að segja allt sem
eg náði í. Vanalega svöruðu bændurnir mér því einu,
að þeir spörkuðu mér frá sér, aðrir tóku mig og lú-
börðu og sögðu, að eg væri þjófur og flakkari. Vegna
þess að eg var að mestu leyti nakinn, fann eg sárt til
högga böðulsins og mig sveið innar. Eg fylltist hatri
til mannanna. Eg fann, að eg tilheyrði þeim ekki, en
hvað átti eg að gera? Eg var barn, þar að auki grind-
horaður og sundur flakandi í sárum eftir högg og illan
aðbúnað. Þegar kaldast var, skreið eg inn í eitthvert
útihús, þegar eg átti þess kost. Annars lá eg oftast úti.
Þannig leið æfi mín til hér um bil 14 ára aldurs, eftir
því sem eg held, því eg hefi ekki hugmynd um aldur
minn. Hatrið var orðið svo brennandi, að mig langaði
oft til að drepa böðla mína. Þegar eg var kominn á þenn-
an aldur, fór eg að biðja bændurna um vinnu, en svarið
var enn hið sama, þó var stundum fleygt til mín ein-
hverju rusli að éta, en oft var það verra en hundar eða
svín gerðu sér að góðu.
Eg veit ekki hvað hefði orðið um mig hefði eg ekki
af tilviljun frétt af „Rauða hernum“, sem þá var ný-
stofnaður. Eg gekk og leitaði dag eftir dag, unz eg
að lokum hitti deild úr „Rauða hernum“. Eg gekk þeg-
ar til hins fyrsta, sem eg náði til, og tjáði honum sögu
mína. Maður þessi kom mér á framfæri og eg var tek-
inn í herinn. Mér voru gefin föt, þau hafði eg aldrei
átt, aðeins tuskur, sem eg hnýtti saman utan um mig.
Eg var spurður um nafn og aldur, en, hvorugt vissi eg.
Þá var eg nefndur því nafni, sem eg heiti nú. —
Þá kom byltingin. Eg barðist eins og eg gat við hlið
þessara verndara minna. Eg var sannfærður um, að
við höfðum rétt mál að verja. Eg slapp í gegn um alla
byltinguna, eins og þið sjáið, og svo var eg settur til
mennta. 1 fyrstu vissi eg hvorki upp né niður í neinu
því, er mentir heita, en brátt varð eg læs og skrifandi
og þá fór málið að skýrast fyrir mér. Eg lagði stund á
almenn fræði og ýms þjóðfélagsfræði, svo sem uppeld-
ismál. Á seinni árum hefi eg lært mest í gegn um út-
varpið. Það tíðkast orðið mikið hér, því útvarp er svo
að segja í hverju húsi. Eg hefi nú lokið ýmsum prófum
og nú er eg bústjóri hér í nágrenninu.
Eg ætla ekki að lýsa því, hve skoðun mín á lífinu hef-
ir breyzt. Nú hata eg engan mann, þvert á móti, mér
þykir vænt um alla menn, en eg hata af öllu hjarta
84