Réttur


Réttur - 01.05.1932, Side 43

Réttur - 01.05.1932, Side 43
uffi og í veitingasölum. Hann þekkir þrældóm og líf verkalýðsins — og hann þekkir líka auð og óhóf yfir- stéttarinnar. Það, sem hann hefir gefið út, —• kvæðasafnið „Glett- ur“ og sögusafnið „Bárujárn“, — ber það með sér, að þar er listamannseðli að brjótast fram eftir þeim leið- um leiðsagnarlaust, sem Halldórarnir hafa auðveldar brotið með leiðsögnum fyrirmyndarskálda sinna og lítt látið alþýðu sjá vörður sínar á þeim vegi. Ýmsu af því, sem Sigurður hefir gefið út, myndi hann tvímælalaust helzt vilja brenna eftir nokkurn tíma. Svo fljótt ger- um við okkur von um að hann vaxi upp úr sumum þeim áhrifum, sem ennþá gera vart við sig í skáldskap hans, — og þá einkum að honum takist að skapa sér sjálf- stæðari og skarpari stíl. — En það er ekki tilætlunin hér, að halda sér við það ófullkomna í skáldskap Sig- urðar til að gagnrýna það, — heldur hitt, að sýna ein- mitt þá frjóanga, sem hann frá lífinu, sem hann þekk- ir, kemur með inn í skáldskapinn og auðgar hann með. Með Sigurði er skáld úr verkalýðsstétt að brjótast fram til fullkomnari listar, er öreigafulltrúi að reyna að leggja undir sig listina og beita henni — ýmist óaf- vitandi eða vísvitandi — sem vopni í baráttu stéttar- innar. Iiann mótast að vísu til að byrja með af þeim borgaralegu, venjulegu bókmenntum, sem almennt drottna yfir hugum verkalýðs og miðstéttanna. Eldri sögurnar í „Bárujárn“ og flest-öll kvæðin bera þess greinilegar menjar. En undir lifir samt baráttuhugur verklýðssinnans og brýzt fram öðru hvoru gegnum ástarkvæðin og eldri sögurnar. Hann skilur þá breyt- ingu á íslenzka þjóðfélaginu, sem lýst er í 1. hluta þess- arar greinar, og spyr: „Einokun Dana drengir sannir hata og drottnunargirni sömu herrum frá, sem úr oss fyrrum fjörmagnið píndu, sú foráttu tíð er löngu gengin hjá. 107

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.