Réttur


Réttur - 01.05.1932, Side 49

Réttur - 01.05.1932, Side 49
pólitík sósíaldemokratanna, sem fyrir stríðiS flæmdi á brott hetjuskapinn, sem þá síðast blossaði upp í verk- lýðshreyfingunni 1905 (í rússnesku byltingunni og bar- áttu verkalýðsins gegn stríðinu það ár). Það var sú af- sláttar- og bræðingspólitík, sem leiddi af sér bleyði- mennskuna og svikin, sem ofurseldu verkalýðinn auð- valdsblóðbaðinu 1914, — unz rússneska byltingin aftur hóf hetjuöld sósíalistiskrar verklýðsbaráttu og hóf upp þann fána, sem Marx og Engels áður höfðu borið, en Lenin og Liebknecht verndað meðan á stríðinu stóð og .svikin og liðhlaupin náðu hæst. Það er fordæmi rússnesku byltingarinnar, sem síð- an skapar það af sósíalisma og frelsisbaráttu, sem til er í verklýðsbaráttu á íslandi. — En þau áhrif hafa geymzt og dulizt með fjöldanum — hið „neðra“, en á yfirborðinu hafa broddarnir synt — og yfir „baráttu“ þeirra (í bæjarstjórnum og Alþingi) hefir verið allt annað en hetjubragur. Þeim skáldum, sem nú eru á leið til sósíalismans, er því vorkunn mikil, þótt þau hafi ekki ennþá skapað hetjusögu íslenzkrar verklýðshreyfingar. Hvan er þá hetjuskapur sá, í þessari hreyfingu, — sem enginn maður ennþá opinberlega hefir látið lífið fyrir —, sem verða mætti skáldunum að yrkisefni, munu sumir spyrja. Hann er til. Við meinum ekki þar með þann hetjuskap, sem fjöl- margir menn og konur úr íslenzkri verklýðsstétt dag- lega sýna, í að líða og þjást, í að þola allt, jafnvel dauðann sakir auðvaldsskipulagsins, láta fórna sér jafn- vel tugum saman, eins og togarasjómönnunum hvað eftir annað. Sá hetjuskapur er efnið í sorgarsögu verka- lýðsins, en ekki í þann frelsisóð, það leiftrandi fordæmi, það hetjuljóð, sem bókmenntirnar nú fyrst og fremst þurfa að gefa verkalýðnum, til að verða vopn í baráttu hans, vopn í sigurför sósíalismans. Við eigum við hetjubaráttu þess verkalýðs, sem of- .sóttur er fyrir sósíalistiska sannfæringu sína, fyrir 113

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.