Réttur


Réttur - 01.05.1932, Side 50

Réttur - 01.05.1932, Side 50
brautryðjendastarfið í verkalýðssamtökunum, fyrir dag-leg-a forustu sína í hagsmunabaráttu verkalýðsins. Hún er ekki básúnuð út sú barátta, hennar er ekki minst í útvarpinu nje í ræðum prestanna, — og skáldin okkar verða að skyggnast djúpt inn fyrir yfirborðið í hreyf- ingunni til að skynja og upplifa þann hetjuþrótt, sem fjölmargir verkamenn sýna í hinni daglegu baráttu við alla örðugleika, sem þeir hafa við að stríða, allt frá andlega drepandi deyfð og líkamlega drepandi fátækt öreigalífsins í smáþorpum Islands til hungurtilrauna,. særinga og árása yfirvalda og þýja þeirra. Eg vil minna þessi skáld okkar á orð Stephans G.: „. . . Minna reynir styrk hins sterka stæltur dauði og þyrnikrans, heldur en margra ára æfi eydd í stríð við hjátrú lands, róg og illvild .. Eg vil líka taka upp orð Krapotkins úr snildarriti hans „Samhjálp", er hann lýsir kynnum sínum af hin- um nafnlausu hetjum verklýðshreyfingarinnar: „Eg hefi séð fjölskyldur, sem ekki vissu hvað hafa skyldi til næsta máls, af því maðurinn var einangraður í bænum,. sökum starfa síns við blaðið, en konan hafði ofan af fyrir fjölskyldunni með saumum, og þetta ástand hélst árum saman, unz fjölskyldan, án nokkurs ásökunarorðs, dróg sig í hlé, eins og hún vildi segja: „Nú getið þið haldið fram, við getum ekki meir“. Eg hefi séð menn, sem þjáðust af tæringu og vissu það, ganga engu að: síður um til að undirbúa fundi, þó í þoku væri og hríð, eða tala á fundum fáum vikum fyrir dauða sinn og fara þá fyrst á sjúkrahúsið, ef til vill með þessum orðum: „Vinur, það er búið með mig; læknirinn segir, að eg geti ekki lifað nema fáar vikur; segið þið félögunum, að mér þætti vænt um, ef þeir kæmu að heimsækja mig“. Eg hefi séð atburði, sem myndu vekja mestu að- dáun, ef eg segði frá þeim hér; en jafnvel nöfnin á mönnunum, er við atburðina voru riðnir, eru varla.. 114

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.