Réttur


Réttur - 01.01.1933, Side 6

Réttur - 01.01.1933, Side 6
ríkjunum í því efni. — Annað, sem gerði það að verkum, að Rússum var lífsnauðsyn, að leggja aðal- áherzluna á þennan undirstöðuiðnað, var hin hernað- arlega aðstaða landsins. Það er umkringt á alla vegu af gráðugum imperialistum, sem sitja um færi til að ráðast á landið, skipta því upp á milli sín og sundra þessu sterkasta vígi heimsbyltingarinnar, sem þeir ótt- ast jafn-mikið og þeir hata það. Atburðirnir í Austur- Asíu sýna þetta áþreifanlegar en svo, að um það sé hægt að deila. Ef verklýðsríkið átti ekki að verða ó- viðbúið árásum auðvaldsríkjanna, hlaut það að verða að koma iðnaði sínum í það horf, að það gæti fram- leitt nýtízku varnartæki í nægilega stórum stíl. Þetta varð til þess, að ýmsar verksmiðjur urðu að hætta við hina venjulegu framleiðslu sína í 4 mánuði, til þess að framleiða hergögn, og það er aftur ástæðan til þess, að ekki tókst að Ijúka við nema 93,7% af heildaráætlun iðnaðarins, þeirri, sem 5 ára áætlun- in gerði ráð fyrir. Það tók 3 mánuði umfram 4 ár að framkvæma 5 ára áætlunina á sviði iðnaðarins í heild sinni. Aftur var við lok 4. ársins búið að framkvæma meira en 5 ára áætlunin gerði ráð fyrir í sjálfum þungavöruiðnaðinum, eða 108 %. Enda er nú svo kom- ið, að Rússland er orðið eitt hið voldugasta ríki í hernaðarlegu tilliti og undir það búið að verja hend- ur sínar gegn árásum hvaða auðvaldsríkis sem er. Það hefði verið óafplánanlegur glæpur við verkálýð Sovét- ríkjanna og verkalýð alls heimsins, ef vanrækt hefði verið að byrja á þessu, jafnvel þótt það hafi orðið til þess, að rússneski verkalýðurinn varð um sinn að leggja á sig miklar fórnir og neita sér um margt, sem hann hefði annars getað veitt sér. Nú á öreiga- bylting allra landa ósigrandi vígi þar sem Ráðstjórn- arríkin eru, og það verður ekki metið til neinna ann- arra verðmæta. 6

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.