Réttur - 01.01.1933, Side 45
:sem leiddi öreigana til sigurs í nóvemberbyltingunni
1917.
„Sigur öreigalýðsbyltingarinnar á Rússlandi ýtti undir kommún-
istiska floklca í miðstöðvum auðvaldsins og nýlendunum. Með
stofnun Alþjóðasambands kommúnista 1919 var í fyrsta sinni í
sögunni sameinaður, í framkvæmd hinnar byltingasiunuðu baráttu,
ameríski, kínverski og indverski verkalýðurinn og hinir blökku
vinnuþrælar Afríku og Ameríku forvörðum öreigalýðs Evrópu og
Ameríku“.
(Stefnuskrá A. K.).
Marxisminn hefir þróast upp í það, að verða voldugt
vald í heimi veruleikans, sem hefir íklæðst holdi og blóði
í ráðstjórnarríkjunum og hinum fjölmennu fylkingum
kommúnista um allan heim, sem hafa tileinkað sér kenn-
ingar Marx. Gegn hinum marxistiska heimsflokki munu
nú allar efnislegar og andlegar orkulindir auðvaldsins,
s. s. árásarsveitir fasista, gassprengjur og lögreglubryn-
bílar, settar í gang, og þar mun skipulögð hin fáránlegasta
og ósvífnasta lyga- og fölsunarstarfsemi.
Frá því á dögum Marx hefir margt breyzt í auðvalds-
heiminum. Þó hafa baráttuaðferðir borgarastéttarinnar
gegn byltingaflokki verkalýðsins naumast nokkuð breyzt.
Ofsóknirnar gegn hinni byltingasinnuðu verklýðshreyf-
ingu og undirbúningurinn undir nýjan ófrið, er nú, al-
veg eins og á dögum Marx, stjórnað af „heilögu banda-
lagi“, af „stríði“, eins og Marx kemst að orði, gegn A. K.
I>au meðul, sem borgarastéttin nú notar gegn komm-
únistum og marxismanum yfirleitt, líkjast eins mikið, og
vatnsdroparnir hvorir öðrum, þeim tækjum, sem notuð
voru gegn verkalýðnum á dögum Parísarkommúnunnar,
,sem Marx hefir lýst í skýrslu aðalráðsins í Lundúnum til
þingsins í Haag í sept. 1872:
„011 þau kúgunartæki, sem hin samoinuSu stjórnarvöld' Evrópu
megnuðu að upphugsa, þyrlast eins og rjdc og mökkur fyrir þeirri
fölsunar- og rógburðarherferð, sem öll lyga- og blekkingaöfl liins
menntaða heims tóku sér fyrir hendur. „Vafasamar sög’usagnir“,
sögmburður um leynifylgsni alþjóðasambandsins, blygðunarlausar
falsanir opinberra sk.jala og einkabréfa, æsingaskeyti o. s. frv. rigndi
.uiður um allar jarðir. Allar gáttir hins víðtæka rógburðarstraums
45