Réttur - 01.01.1933, Side 46
voru skyndilega opna'ðar í leigublöðuni borgaranna, og þannig átti
að drekkja hinum ha.taða óvin í ógurlegu syndaflóði varmennsk-
unnar. Þessi rógburðarherferð á engan sinn lika í sögunni, vegna
þess, hve starfssvið hennar er alþjóðlegt og vegna þess, hve samræm-
ið er einstaklega mikið í andstæðustu flokksblöðum yfirstéttarinnar.
Eftir að stórbruninn í Chikago er orðinn þekktur um allan heirn
með símskevtum, sem djöfullegt tilræði alþjóðasambandsins, þá
gegnir það næsturn furðu, að fárviðrið, sem geisaði í Yesturindíum,
skyldi ekki vera reiknað því til syndar“.
62 árum eftir að Marx ritaði þessi orð, 28. febr. 1933,.
flutti ritsíminn út um víða veröld frétt, sem gerir lyga-
sögur valdhafanna um hinar skipulögðu íkveikjur I. Al-
þjóðasambandsins í Chikogo að smámunum einum:.
„Kommúnistar hafa kveikt í þýzka ríkisþinghúsinu!!!“
Þessi níðingslega ofsóknaraðferð þýzku fasistastjórnar-
innar, sem hefir sett sér það mark og mið, að uppræta
stærsta kommúnistaflokk auðvalds-heimsins, er skipu-
lögð svo heimskulega, að hún hefir ekki einu sinni hlotið
stuðning í almenningsáliti borgaranna, svo mjög sem
borgarastéttin þó annars fagnar hinni ofstækisfullu of-
sóknarherferð á hendur kommúnistunum. „Slík yfirlýs-
jng, að þýzku kommúnistarnir séu nokkuð við íkveikjuna
riðnir, er hin mesta heimska“, stóð í Lundúr.ablaðinu
„New Chronicle“. Sama segja öll merkari blöð Þýzka-
lands, Frakklands, Tékkoslovakíu o.s.frv. Og þó átti þetta
herbragð að skapa grundvöllinn að banni kommúnista-
flokksins og vera átylla til að fangelsa þúsundir verka-
manna, og loks átti þetta að vera bragð til þess að hræða
smáborgarana á kommúnistahættunni fyrir kosningarn-
ar. I>að átti með þessu að undirbúa jarðveginn fyrir nýja
„Bartólómeusarnótt“ meðal verkalýðsins, eða að skapa
morði á þýzkum verkamönnum „lagalegan grundvöll“.
Hin ríkjandi stétt berst gegn A. K. (alþjóðasambandi
kommúnista) og marxismanum með lygum, rógi og föls-
uðum skjölum vegna þess, að vald vopnanna, sem þeir
hafa í hendi sér, nægir ekki til að lægja þá voldugu öldu,
sem þeir hafa sjálfir vakið á móti sér. Fasistastjórn
Pilsudskis hefir ekki verið þess megnug að lama pólska.
46