Réttur - 01.01.1933, Síða 47
kommúnistaflokkinn, hvað þá að hún hafi getað upp--
rætt hann. Þrátt fyrir ógnarstjórnina óx honum stöð-
ugt fylgi og verkamenn og bændur streymdu í hundruð :
þúsunda tali undir áhrif hans. Búlgarski böðullinn Zan-
kow hefir, þrátt fyrir múgmorð og róttæka róg- og lyga-
starfsemi, enn ekki getað gert út af við kommúnistaflokk- ■
inn, sem nú hefir safnað meirihluta verkalýðs Búlgaríu.
og miklum f jölda smábænda undir merki sitt. Ungverska
verklýðsböðlinum Horhty hefir ekki tekizt að uppræta
minningar verkalýðsins um hetjudáðir Sovét-Ungverja-
lands, og oft heyrist nafn félaga Bela Kun nefnt, sem ráðr
herrarnir nota til að skjóta smáborgurunum skelk í
bringu, meðan verkalýðs- og bændaskarinn fylkir sér-
stöðugt þéttar undir stríðsfánann, til baráttu fyrir al-
ræði öreiganna í Ungverjalandi. Meira að segja hinu 10'
ára blóðveldi og klækjótta pyndingar- og ofsóknar-
kerfi Mussolinis hefir ekki tekizt að eyðileggja komm-
únistaílokk Ítalíu, sem stöðugt eykur áhrif sín meðal
verkalýðsf jöldans. Hversu vonlauster það þá ekki, að of-
sóknartæki eins og „vafasamar sögusagnir“ frá neðan-
jarðargöngum í Karls-Liebknechtshúsinu, „fölsuð leyni-
skjöl alþjóðasambandsins“ og skröksögur um: „sendi-
boða frá Moskva“ og „peninga frá Moskva“, geti út-
rýmt þýzka kommúnistaflokknum, og því síður munu
þær þess umkomnar að uppræta marxismann, æðstu hug-
sjón 6 milljón manna af undirstéttum Þýzkalands, sem
eru reiðubúnar til baráttu fyrir eyðileggingu auðvalds-
þjóðfélagsins.
Lygasagan um „kommúnistasamsæri“ í Þýzkalandi,
sem byrjar með íkveikjunni í ríkisþinghúsinu, hefir ekki
einu sinni verið tekin trúanleg af alræmdustu aftur-
haldsböðlum Evrópu, því það er orðið öllum heimi vit-
anlegt, eftir hvaða leiðum og aðferðum kommúnista-
flokkurinn hyggst að ná takmarki sínu. Uppspuni slíkra
„samsæra“ er gamalt herbragð, sem oft hefir áður'ver-
ið notað af gagnbyltingunni,- það er ekkert annað en
skálkaskjól til þess að gera upp'reikningana við kömm-
47;