Réttur


Réttur - 01.01.1933, Síða 48

Réttur - 01.01.1933, Síða 48
únistana. Óteljandi yfirlýsingar, sem gefnar voru út af fasistaforingjunum kvöldinu áður en kveikt var í ríkis- þinghúsinu, sanna fullkomlega, að það voru einungis þeir, sem höfðu áhuga á því að hindra, að þingið kæmi saman, og það var ennfremur augljóst, að þeir höfðu sett sér það takmark, að skipuleggja lygastarfsemi, sem undirbyggi jarðveginn til eyðileggingar á kommúnista- flokknum, sem berst nú einn flokka gegn afnámi síðustu leifa lýðræðisins, fyrir vinnu, brauði og valdi til handa vinnandi alþýðu. Þetta herbragð átti jafnframt að notatil þess að þjarma svo að sósíaldemokrötum, að þeir yrðu virkilega friðsamir borgarar hins „þriðja ríkis“, sem yrðu trúir þjónar Cavaignac nútímans í baráttunni gegn byltingarflokknum. Þessi herferð á hendur kommúnista- flokknum og marxismanum í Þýzkalandi, sem auðmanna- stéttin nú hefir hafið, er sönnun þess, að auðvaldið er að undirbúa ægilega borgarastyrjöld á hendur allri verka- lýðsstéttinni þýzku, jafnframt því, sem það undirbýr nýja heimsstyrjöld. Hernaðarundirbúningur þýzka her- valdsins, herferðin gegn innlenda verkalýðnum, stríðið gegn alþjóðasambandi kommúnista, kommúnistaflokkn- um og marxismanum er náskylt hvert öðru. Marx hafði þegar 1872 slegið því föstu, að herferðin gegn I. Al- þjóðasambandinu væri ekkert annað en fyrirboði þýzk- franska stríðsins og borgarastyrjaldarinnar í Frakk- landi. — AUur öreigalýður Þýzkalands er nú í hinni mestu hættu staddur. í stéttastyrjöld þeirri, sem nú stendur fyrir dyrum, á að ræna hann öllum sínum beztu for- ingjum. Þó sanna hinar sívaxandi ofsóknir fasistanna, og sú pólitíska stigamennska, að taka upp ógnarstjórn sem fast stjórnskipulag, að endir auðvaldsins nálgast óðum. Valdatímar borgarastéttarinnar eru nú bráðum á enda. 48

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.