Réttur


Réttur - 01.01.1933, Side 57

Réttur - 01.01.1933, Side 57
rekur slíkt ofsóknaræði gegn kommúnistiskum verka- mönnum, þá mun hinn f jölmenni ódrepandi úrvalskjarni fljótt læra hið rétta. Þeim mun brátt lærast að tengja ólöglegt starf sitt nánum böndum við víðtæka lýðfrelsis- hreyfingu fjöldans. Aldrei hafa orð Lenins, sem hann skrifaði í grein sinni „Tveir heimar“ árið 1910, átt betur við ástandið í Þýzkalandi heldur en nú: „KiildhæSni sögunnar olli því, að yfirstéttir Þýzkalands, sem á siðari hluta 19. ald'ar höfðu stofnað eitt hið voldugasta ríkisvald, sem liöföu öll skilyrði til hraðfara auðmagnsþróunar og öruggs stjórn- skipulags, að þær nálgast nú augljóslega slíkt óstand, a'S þetta stjóm- skipulag, þeirra stjórnskijmlag, verði að brjóta í nafni og í þágu borgarastéttarinnar sjálfrar ... Þeir tímar nólgast, að þetta tíma- hil þýzku sögunnar, sem staSið hefir í hálfa öld, verSur af óviðráð- anlegum orsökum að víkja fyrir öðru nýju tímabili. Tímabilið þegar ■ borgarastéttin gat notað það stjórnskipulag, sem hún hafði skapa'ð, , vcrður að víkja úr vegi fyrir tímabili stórkostlegrar byltingasinn- aðrar baráttu, sem í eðli sínu felur í sér eyðileggingu alls hins borg- aralega stjórnskipulags, alls hins borgaralega ríkisvalds. En á yfir- bor'Sinu hlýtur borgarastéttin í ráSaleysi sínu að gera ítrustu til- raunir til þess (og hún gerir það líka) að losa sig við stjórnskipulag sitt, sem hún sjálf hefir skapað, og sem nú er oröið óþolandi fyrir liana! ... Hinn sósíalistiski verkalýður mun ekki gleyma því eitt augnablik, að framundan er óhjákvæmileg byltingabarátta, sem mun sprengja sérhvert stjómsldjjulag hins dauðadæmda þjóðfélags. ... I þessu eru fólgin einkenni undirbúnings tímabils byltingarinnar á Þýzkalandi á okkar dögum“. Þýzki fasisminn hefir nú hafið ofsóknarherferð á hend- ur marxismanum og kommúnismanum. En eigi að síður lifir marxisminn og kommúnisminn og munu lifa. Her- ópum Hitlers og borgarastéttarinnar, sem gripið hafa til þessa síðasta hálmstrás, til að flýja undan skapadómi kreppunnar, mun verða svarað með orðum Marx og Engels í kommúnistaávarpinu: „Látum hinar ríkjandi stéttir skelfást af ótta við bylt- ingu kommúnismans!“ S. M. H. þýddi. 57

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.