Réttur - 01.01.1967, Side 23
'þjóðarinnar á þessu tímabili er bein afleiðing
af sjálfri viðreisnarstefnunni: þeirri trúar-
setningu að óheft einkaframtak sé þess um-
komið að grundvalla traust atvinnulíf í hinu
litla þjóðfélagi okkar, að ekki þurfi annað
en gefa auðmagninu og hand'höfum þess frelsi
og þá muni þarfir atvinnuveganna uppfyllast
um leið! íslenzka viðreisnarstjórnin mun vera
eina ríkisstjórnin í V-Evrópu er játast ennþá
þessari kreddu hins klassíska kapitalisma.
Auðmagn einkaframtaksins leitar eðlilega í
þær greinar atvinnulífsins sem gefa skjótastan
og auðteknastan gróða á 'hverjum tíma. Það
er því engin tilviljun þótt hið margprísaða
frjálsræði viðreisnarinnar — innflutnings-
frelsið og afnám verðlagseftirlits — hafi hleypt
ofvexti í viðskiptageirann (verzlunar-, banka-
og tryggingarstarfsemi). Þar eð innanlands-
verzlunin er í eðli sínu óbundin öðru en kaup-
getu almennings og neyzluháttum hans, hefur
'hún getað blómgazt jafnhliða því sem sigið
hefur á ógæfu'bliðina fyrir framleiðslugrein-
unum. Sé viðskiptalífið eitt lagt til grundvall-
ar er ómótmælanlegt að „viðreisnin” hefur
heppnast; það hefur aldrei verið meira „fjör
í bissnessinum“ á íslandi en hin síðustu árin.
Það sýnir aðeins að viðreisnarstjórnin er í
raun og sannleika umboðsstjórn verzlunarauð-
valdsins.
Ofvöxt viðskiptageirans má ekki einungis
marka af verzlunarhöllunum og bönkunum
sem vaxið hafa upp eins og gorkúlur í Reykja-
vík sl. ár, heldur og af beinum tölum. Á tíma-
bilinu 1962-—1965 hefur hlutfallsleg skipting
fjármunamyndunar (fjárfestingar), miðað við
Verðlag ársins 1960, breytzt sem hér segir í
eftirtöldum atvinnugreinum: *
1962 1965
% %
Fiskveiðar 6.6 3.9
Iðnaður 14.7 11.4
Flutningatæki 9.8 15.0
Verzlun og skrifstofuhús 4.8 5.6
Athyglisvert við þessar tölur er að hlutur
framleiðslugreinanna hefur stórlega minnkað
á kostnað hinna, einkum flutningatækjanna.
Þar valda hin miklu flugvélakaup reyndar
mestu um, en aukinn bílainnflutningur á einn-
ig mikinn þátt í hækkuninni. A sl. ári voru
* Skv. töflu sem birtist í „Úr þjóffarbúskapnum,"
15. tbl.
23