Réttur


Réttur - 01.01.1967, Side 26

Réttur - 01.01.1967, Side 26
er sköpuð aðstaða til íþróttakennslu, ýmissar sérkennslu og félagsstarfsemi nemenda innan veggja skólans. Það upplýstist t. d. nýlega að 37% unglinga á barna- og gagnfræðastigi í Reykjavík njóta ekki lögboðinnar kennslu í leikfimi vegna skorts á íþróttahúsnæði. Þetta er aðeins eitt dæmi um það í hvílíku ófremd- arástandi skólamál okkar eru. Við framkvæmd þeirra ræður það sjónarmið enn miklu að hægt sé að bjargast af með hálfnaktar kennslu- stofur sem nemendum er troðið í til að inn- byrða bóklega fræðsiu og þar sem lítil tök eru á að virkja hæfileika þeirra og iífsþrótt til sjálfstæðrar og skapandi vinnu. Viðreisn- arstjórnin hefur engar úrbætur gert á þessu ástandi, og á sumum sviðum fræðslumála á hún beinlínis sök á því að enn hefur sigið á ógæfuhliðina. Það sem hér hefur verið sagt um skólahús- næðið gildir engu síður um aðrar stofnanir sem inna af hendi félagslega þjónuslu. Otald- ar fjölskyldur í Reykjavík og öðrum stærstu kaupstöðum landsins sem eiga börn á unga aldri, hafa rekið sig á hinn tilfinnanlega skort sem er hvarvelna á dagheimilum fyrir börn. Enda þótt engum geti dulizt að brýna nauðsyn ber til að þeim sé fjölgað stórlega, 'hefur borgarstjórnaríhaldið í Reykjavík ekki enn losað sig við þann frumstæða hugsunar- 'hátt að barnaheimili séu í ætt við hið illa, kommúnisma eða eitthvað þaðan af verra. Það hefur ekki enn fengizt til að viðurkenna þá staðreynd að konur eru í dag orðnar virk- ur aðili í atvinnulífinu og þar af leiðandi eigi þær kröfu á því að samfélagið taki þátt í barnauppeldinu. Það er alkunna að barna- heimilin í Reykjavik geta einu sinni ekki hýst börn allra fráskilinna kvenna, ógiftra mæðra og ekkna sem eiga að þeim forgangsrétt. Hér er því um stórkostlegt þjóðfélagsvandamál að ræða sem bagar ekki aðeins hlutaðeigandi fjöl- skyldur, heldur sviptir einnig þjóðfélagið dýr- ír.ætum vinnukrafti. Um sjúkrahúsmálin þarf naumast að fjöl- yrða, svo mjög hefur ásigkomulag þeirra ver- 26 ið rætt að undanförnu. Rýmið og starfaðstað- an sem sjúkrahús höfuðborgarinnar bjóða upp á, eru í engu samræmi við þörfina svo að algengt er að fólk verði að bíða mánuðum saman eftir leguplássi. Verður heilsutjónið sem af því hlýzt, ekki mælt í tölum. — Bygg- ing Borgarsjúkrahússins er lýsandi dæmi um óhagkvæmni og óráðssíu við verklegar fram- kvæmdir: vegna þess hve byggingarfram- kvæmdirnar hafa dregizt óhóflega á langinn sökum fjárskorts hefur tíminn kallað á nýjar og nýjar breytingar, miðað við upphaflega teikningu, og byggingarkostnaðurinn rokið upp úr öllu valdi. Hann nemur nú orðið 220 milljónum og vantar þó enn mikið á að starf- ræksla spítalans geti hafizt! Sami skorturinn, sama eymdin, sama van- rækslan verður uppi á teningnum þegar litið er á bóka- og listasöfn þjóðarinnar. Hin 6ár- fátæka íslenzka þjóð taldi ekki eftir sér að kosta byggingu Landsbókasafnshússins sem lokið var við 1906 og enn stendur við Hverfis- götu — veglegur minnisvarði um stórhug alda- mótakynslóðarinnar. Enn þann dag í dag — að sex áratugum liðnum — er Landsbókasafn- inu fyrir komið í þessari þunglamalegu bygg- ingu, ásamt Þjóðskjalasafni og Handritastofn- un landsmanna. Engum getgátum þarf að því að leiða hvílík spennitreyja hún er orðin þeim öllum, einkanlega hinum tveim fyrrnefndu, og hefur lengi verið. Oljúgfróðir menn segja að rniklu magni óbætanlegra, skriflegra heimilda um líf og sögu þjóðarinnar hafi bókstaflega verið kastað á glæ af þeirri óskáldlegu ástæðu að engin smuga fyrirfannst í Þjóðskjalasafn- inu er gæti tekið við þeim. Um Landsbókasafn- ið er það sannast sagna að fjárveitingar til bóka- og tímarilakaupa og bókbands hafa lengi verið svo hraksmánarlegar (1967: 1.3 millj. kr. eða jafngildi einnar 5 herbergja íbúðar!) að bókakostur þess liefur rýrnað stórlega að tiltölu við tímans rás. í núverandi ástandi er það ófært um að gegna hlutverki sínu sem fræðamiðstöð. — Til þess að gera langa rauna- sögu stutta skal svo aðeins minnt á að íslenzka

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.