Réttur


Réttur - 01.01.1967, Side 41

Réttur - 01.01.1967, Side 41
Á síðari hluta fimmta tugs þessarar aldar fór áhugi manna fyrir áhrifum barna'heimilis- vistar á ungbörn að vakna fyrir alvöru. Á styrjaldarárunum varð geysilegur fjöldi barna að skiljast við foreldra sína af hernaðarástæð- um og vistast á barnaheimilum. Menn veittu því þá eftirtekt, að ungbörnin döfnuðu ekki eins og skyldi, dauðsföll voru óeðlilega tíð og andleg veiklun fylgdi einatt í kjölfar 6líkrar vistunar. Þetta varð til þess, að sálfræðingar fóru að rannsaka þessi mál, og má óefað telja niðurstöður þeirra til þess merkara, sem fram hefur komið í barnasálfræði og geðlæknis- fræði barna á síðari tímum. Flestar menning- arþjóðir, sem láta sig aðbúð og uppeldisskil- yrði barna einhverju varða, hafa talið sér skylt að taka þessar rannsóknir til yfirvegun- ar og breyta fyrirkomulagi barnaheimila sinna í samræmi við það, sem talið var heilsusam- legast. Forgöngumenn í þessum rannsóknum voru brezki læknirinn John Bowlby og svissneski læknirinn René A. Spitz. Rannsóknir þeirra munu hafa verið mörgum kunnar hér á landi um árabil, enda mikið verið um þær ritað bæði á Norðurlandamálum og öðrum tungum. Sitthvað mun einnig hafa verið um þær skrif- að á íslenzku á liðnum árum. Hér vil ég vitna í tvo höfunda, sem útlista og gera grein fyrir þessum rannsóknum og niðurstöðum þeirra. í bók sinni, Uin mttleiSingu, Rvík, 1964. bls. 109—11, kemst höfundurinn, prófessor Símon Jóh. Ágústsson, svo að orði: „Nútíma rannsóknarmenn hafa leitt að því mjög sterk rök, að allt frá þriggja mánaða aldri og einkum úr því að barnið er 6 mán- aða, er það í hættu, þegar það er vanrækt til- finningalega. Skaðsamlegar afleiðingar fyrir barnið hefur úr því tilfinningaleg vanræksla, sem stendur lengur en þrjá mánuði og ef hún stendur lengur en eitt ár, má búast við því, að barnið kunni að bera hennar menjar alla ævi. Hér er átt við börn á aldrinum sex mán- aða til tveggja ára. Án hæfilega fjölbreyttra ytri skynhrifa og félagslegrar örvunar sljóvgast og visnar sál- arlíf barnsins. Þessi örvun fer fram á margvís- legan hátt: með líkamlegri nálægð og snert- ingu móðurinnar .... Ef barnið fer að miklu leyti á mis við þessa önrun, einkum úr því að það er þriggja mánaða, hefur það skaðsam- leg áhrif á allan sálarþroska þess og persónu- gerð .... Mikið vandhæfi er á að reka vöggu- stofur á þann hátt, að börn fái þar næga örv- un. Þeim er yfirleitt ekki sinnt nóg, svo að þau skortir hvatningu, sem mannlegur félags- skapur og um'hverfi annars veitir þeim í góð- um og sæmilegum fjölskyldum. Oft er aukið á þessa einangrun með óheppilegu og úreltu fyr- irkomulagi .... Fjölmargar rannsóknir á börnum, sem lengi 'hafa verið á vöggustofum reknum á þennan hátt, hafa ótvírætt leitt í ljós, að einangrun, skortur á örvun og félags- tengslum við aðra, stórheftir allan andlegan þroska þeirra. Kemur það fram á ýmsan liátt: sem deyfð, áhugaleysi, þunglyndi og tilfinn- ingaslj óleiki.“ Ennfremur segir sami höfundur: ,,.... má fullyrða, að of fábreytt umhverfi, þar sem ungbarnið skortir skynjunarörvun og er ekki í eðlilegum félagstengslum við móður sína (staðgengil hennar) og síðar við annað fólk, sé mjög óhagstætt öllum andlegum þroska þess. Ef á þetta brestur mikið sakir afskipta- leysis og einangrunar, er andlegur þroski barna að miklu leyti kyrktur í fæðingunni og per- sónugerð þeirra raskast. Slík meðferð ung- barna er sama eðlis og hinn óhugnanlegi „heilaþvottur,“ sem flestir eiga ekki nógu sterk orð til að fordæma.“ I bók minni, Ur hugarheimi, Rvík., 1964, er komizt svo að orði á bls. 190—192: „Veiga- mikil undirstaða andlegs heilbrigðis er eðli- leg þróun geðtengsla. Hefur verið lögð áherzla á, að skilyrði fyrir slíkri þróun sé stöðugt og náið samband barnsins við heilbrigða foreldra, einkum móðurina. Ef það samband rofnar, má búast við sálrænum truflunum, sem geta verið alvarlegs eðlis. Einkum gildir þetta um ungbörn og er aldurinn 6—18 mánuðir tal- 41

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.