Réttur


Réttur - 01.01.1967, Síða 43

Réttur - 01.01.1967, Síða 43
að börnin bíði sem minnst tjón af. Ég tek þó ekki nema helztu drættina, þá sem ég hygg að flestir geti verið sammála um, og þá sem í rauninni liggja alveg í augum uppi, ef menn á annað borð vilja taka niðurstöður þessara rannsókna og annarra hliðstæðra til greina. Eins og áður getur, ber af öllum mætti að forðast, að tengsl móður og barns rofni meira en nauðsynlegt er. Það er þungamiðja alls og allar ráðstafanir stefna að því, að hamla gegn aðskilnaði eða þá að reyna að bæta barn- inu liann upp með öllum ráðum. Af þessum sökum er móðurinni gert að skyldu — þegar hægt er að koma því við — að heimsækja barnið á hverjum degi og annast það að ein- hverju leyti, t. d. gefa því að borða. Er mæðr- unum þá séð fyrir viðeigandi aðstöðu til að sinna börnum sínum. Þar sem mörg börn þola þessi tengslarof sérstaklega illa á aldrinum 6—18 mánaða, er á sumum hinna beztu barna- heimila ætluð sérstök herbergi til þess að mæð- ur geti dvalizt þar hjá börnum sínum tíma og tíma. Ég sagði, að mæðrum væri gerl að skyldu að heimsækja og annast barnið. A því er vissulega reginmunur og liinu, að mæðrum sé leyft að heimsækja barnið, en að öðru leyti látnar afskiptalausar. Gott barna'heimili grein- ist frá slæmu ekki minnst í því, að á hinu fyrr- nefnda er góður skilningur á þýðingu móður- innar fyrir barnið og allt gert til þess að treysta og viðhalda nánu sambandi á milli þeirra. Nú er það svo með margar mæður, sem setja börn sín á vistheimili, að þær eru óþroskaðar, fá- kunnandi um þarfir barna og lítt til móður- um'hyggju fallnar af mörgum ástæðum. 011- um ber saman um, að nauðsynlegt sé að kenna þessum mæðrum umönnun barna sinna, brýna fyrir þeim skyldur þeirra og ábyrgð. Því þarf forstöðukona heimilisins og sérfræðilegir ráðunautar að leggja mikla alúð við þessa hlið málsins. Sé þessu atriði gefinn góður gaumur kemur fljótt í ljós hvaða mæður geta tekið börnin aftur, er aðstæður þeirra breyt- ast og hverjar þarf að svipta forræði. Þetta er mjög þýðingarmikið, vegna þess að með því móti er hægt að ganga fljótt úr skugga um, hvaða börnum þarf að sjá fyrir varanlegu einkafóstri. Miða ber að því að hafa barna- heimilisdvölina eins skamma og mögulegt er, en sjá barninu sem fyrst fyrir móðurstaðgengli. Allir eru sammála um, að það sé í hæsta máta óheppilegt að reka vöggustofur sem sjúkrahús. Séu þau börn, er koma á vöggu- stofuna veik — eða veikist þau — á vitaskuld að stunda þau á barnadeildum sjúkrahúsa eins og önnur börn. Engin rök mæla með því, að vöggustofur skuli líkjast sjúkrahúsum. Margar röksemdir eru hins vegar á móti. All- ur svipur vöggustofunnar verður einhæfari og óheimilislegri, umönnun oft ópersónulegri, ó- þörf áherzla lögð á kerfisbundna reglusemi, og sérvizkulegt hreinlæti. Allt þetta er í andstöðu við þá eðlilegu grósku og lífræna frjálsræði, sem þarf að umlykja barnið til þess að það fái notið sín. Samkvæmt þessu á því forstöðukona vöggu- stofu að vera fóstra með haldgóða sérmennt- un og þjálfun í meðferð ungbarna. Hún þarf að búa yfir traustri þekkingu á þörfum barna og þroskaskilyrðum þeirra og vera vel vitandi um þær hættur, sem geta verið sam- fara starfrækSlu vöggustofu. Forstaða slíkrar stofnunar er vissulega vandasöm staða og ekki á færi annarra en úrvalskvenna að gegna henni svo að vel fari. Það er vonandi ekki úr vegi að geta þessa hér, þar sem nú mun standa fyrir dyrum ráðning íorstöðukonu á þá stofn- un, sem hefur orðið tilefni til þessarar grein- argerðar. Nánasti ráðgjafi forstöðukonunnar er barnasálfræðingurinn og hún þarf einnig að eiga greiðan aðgang að félagsráðgjafa varð- andi samstarfið við mæðurnar, en sá starfs- maður hefur einnig með höndum að aðstoða mæðurnar í einkamálum þeirra og stuðla sem bezt að því, að þær geti tekið við börnum sín- um og búið þeim viðunanleg uppeldisskil- yrði. í þriðja sæti kernur svo hinn ráðgef- andi barnalæknir, einnig hann má gjarnan 43

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.