Réttur


Réttur - 01.01.1967, Side 46

Réttur - 01.01.1967, Side 46
árið 1962 varð hann að greiða 39 poka fyrir jepp- ann. Þróunarlöndin töpuðu á áratugnum 1951—61 yfir 1 3 milljörðum dollara vegna verðfalls á hrá- efnum, — sumir segja miklu hærri upphæð. Fjár- festing auðhringanna ! þróunarlöndunum þýðir, að þeir draga auð til s!n frá þeim, — ekki öfugt eins og áróðursmenn auðvalds halda fram. A árunum 1952 til 1962 nam fjármagns,,flóttinn" frá Suð- ur-Ameríku til Bandaríkjanna 10 milljörðum doll- ara. BANDARÍSKA LAUSNIN Það eru „þögul þjóðarmorð," sem þannig er verið að fremja. Það svelta fleiri í heiminum ! dag en nokkru sinni fyrr ! sögu mannkynsins. Og sér- fræðingar spá mestu hungurneyð sögunnar á ára- tugnum 1980—90, ef svo heldur áfram sem horf- ir. . Og ef þjóðirnar rísa upp gegn þessu hungri og arðráni, þá bíður þeirra bráður dauði af völdum Bandaríkjahers: eitur, logi, sprengjur; morð ! hvers konar mynd, sem nýtízku stóriðja hinna ríku getur úthugsað hinum fátæku. Æðisgengin drápsherferð Bandaríkjahers í Vietnam er ólygnust raunin. HRAKSPÁR „JÁRNHÆLSINS" RÆTAST Jack London lýsti þv! fyrir hálfri öld ! skáldsögu sinni „Járnhællinn," hvernig bandaríska auðvald- ið myndi fara að þv! að viðhalda með ógnarstjórn veldi sínu ! heiminum. Aðferð þess var sú að kaupa mikinn hluta verkalýðsins með því að veita hon- um sæmileg lífskjör, — og tekst þannig að svæfa hann og svifta baráttuþrótti, — en hinn hluta al- þýðunnar í heiminum kúgar auðvaldið með vægð- arlausri harðstjórn. Eru lýsingar Jack Londons á aðferðum svipaðastar sannspá um aðferðir þýzkra nazista forðum og bandarískra hersveita nú ! Viet- nam. Með því að kljúfa alþýðu heimsins þannig í tvennt, tekst ameríska auðvaldinu að viðhalda yf- irdrottnun sinni ! heiminum í nokkrar aldir —— ald- ir Járnhælsins. Þessi óhugnanlega lýsing Jack Londons þótti fjarri öllum likum, er hún var skrifuð um 1912. En þýzkir fasistar og amerískir afturhaldsmenn hafa nú þegar sýnt þá grimmd og villimennsku ! viðureign við alþýðu þá, er berst fyrir frelsi slnu, sem menn í upphafi þessarar aldar gátu ekki trúað að til væri á tuttugustu öld. Og drottnunaraðferð Járnhælsins er einmitt sú, sem amerlska auðvaldið beitir á heimsmælikvarða: reyna að sefa verkalýð Norður-Ameríku og Evrópu í krafti kjarabóta og áróðurs og helst sættast við sósíalistískar rikisstjórnir Evrópu, — en skipuleggja valdarán, manndráp og múgmorð um allan hinn „þriðja heim," til þess að hindra þar þróun til al- þýðuvalda, en kæfa ella í blóði alþýðustjórnir, ef til valda komast. Alþýða heims þarf að átta sig til fulls á þessari sérstöku aðferð við að „deila og drottna." Róttæk- ir menntamenn og sósíalistar jafnt ! Evrópu sem Bandarikjunum sjálfum, sýna í vaxandi mæli skiln- ing á þessu og breyta samkvæmt því. Við íslendingar megum ekki láta vorn hlut eftir liggja. — E. O. I j 46

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.