Réttur


Réttur - 01.01.1967, Qupperneq 55

Réttur - 01.01.1967, Qupperneq 55
21. nóv. 1965, undir fyrirsögninni „Kommúnistar," og lauk henni á þessa leið: „I fljótu bragði myndi erfitt að finna skyldleika með hinum unga vélvirkja frá Alicante og hinum roskna lögmanni frá Bloeinfontein, en þó eru þeir tengdir traustum höndum. BáSir hafa fest órofa tryggS við hugsjónir kommúnismans um jafnrétti og bræðralag allra manna; báðir hafa þeir, hvor á sínum stað og hvor með sínum liætti, unnið þeim hugsjónum allt sem þeir máttu og báðir eiga þann manndóm og karlmennsku að hvika ekki frá sannfæringu sinni, hve mjög sem á móti blæs. í aldarlangri sögu hinnar kommúnistísku hreyfingar hafa þessir jafnan verið eiginleikar þeirra, sem báru kommúnistaheitiS með rentu. Þeir eru sjálfsagt færri en skyldi sem standa undir því nafni en öllum er gefinn kostur á að vinna til þess.“ World Morxist- Review. 11. hefti. Prag 1966. Hefti þetta er sérstaklega eftir- tektarvert fyrir margar og merki- legar greinar um vísindin og þjóð- félagið, sérstaklega um tæknibylt- inguna nýju og allar afleiðingar hennar. Fjöhnargar aðrar fróðlegar greinar eru í heftinu víða að. Síðast í þessu hefti er minnst þriggja leiðtoga meðal margra, sem frelsishreyfingarnar í rómönsku Ameríku hafa misst í hetjulegri baráttu sinni undanfarið. Þeir eru þessir: Luis Turcio, er var einn af höf- uSleiðtogum frelsisharáttunnar í Guatemala. Ilann var ekki orðinn 25 ára, er hann féll í skæruhern- aðinum, en frá því í nóvember 1960 barðist hann ásamt fleiri lærðum liðsforingjum úr amerískum her- skóla í broddi fylkingar gegn aftur- haldsstjórn Fuentes. Hreyfing þeirra var kennd við „13. nóvember,“ er uppreisnin hófst. Hreyfing komm- únista var kennd við „20. október" og hreyfing stúdenta við „12. apríl.“ Turcio var foringi sendinefndar upp- reisnarmanna á þriggja heimsálfa þinginu í Ilavana á Kúhu í janúar 1966. Skömmu síðar gekk hann í Alþýðuflokk Guatemala (Kommún- istar). En síðar á árinu féll hann í bardaga við her afturhaldsstjórn- arinnar. Fabrico Ojeda var einn höfuðleið- togi þjóðfrelsishreyfingarinnar í Venezuela. Ilann liafði sem ungur menntamaður hyrjað baráttuna í róttækum borgaraflokkum. kynst 1953 fangelsum afturhaldsstjórnar- innar, sem var leppur fyrir banda- ríska olíuauðvaldið, verið harð- skeyttur hlaðamaður á daginn, en aðalskæruliðaforingi á laun. 1957 hafði Kommúnistaflokkur Venezu- ela ásamt ýmsum fleiri samtökum skipulagt „uppreisnarsamtök ætt- jarðarvina" og 23. janúar 1958 tókst þeim að steypa herforingjastjórn Jimenez og um tíma komst á lýð- ræði. Ojeda var kosinn þingmaður fyrir Caracas-borg. Þegar afturhaldsstjórn Belan- courts hóf ofbeldisaðgerðir sínar og uppreisn hófst á ný, hélt Ojeda enn til fjalla til að berjast með vopn í hönd. En ríkisstjórninni tókst að ná honum, níðast á honum og lét dæma hann í 18 ára fangelsi. En 1963 tókst Ojeda að flýja á æfin- týralegan liátt, komst til fjalla og varð forseti þjóðfrelsisfylkingarinn- ar, er ræður yfir hluta af Venezuela. En í júní 1966 náði stjórnarherinn honum og nú var liann kvalinn til bana í pyntingarklefum SIFA, en svo nefndist leynilögregla hersins í Venezuela. Camillo Torres varð leiðtogi frelsishreyfingarinnar í Kolumbiu, kaþólskur prestur, fæddur 1929, son- ur ríkra foreldra. Vígður 1954. 1960 kapelán og síðan deildarforseti þjóðar-háskólans. Gerðist hinn bezti forustumaður í víðfeðina þjóðfylk- ingu, er náði allt frá kommúnistum til kaþólskra. Kom mikilli hreyfingu upp í horgum Kolumbiu, en komst á þá skoðun, að ekki yrði sigurs auðið nema með vopnaðri baráttu. Kommúnistaflokkurinn var honum ósammála um þetta, vildi heyja bar- áttuna með háðum aðferðum: vopn- aðri og friðsamlegri, en samt var hin mesta vinátta og virðing á milli þeirra. I október 1965 hélt Torres til fjalla og gerðist skæruliði. Þann 7. janúar 1966 skoraði hann í ávarpi til þjóðarinnar á hana að grípa til vopna. 15. fehrúar 1966 féll hann í viðureign við stjórnarherinn. — Var það mikið áfall fyrir þjóðfrels- ishreyfinguna. World Marxist Review. 12. hefti. Prog 1967. Þetla hefti tímaritsins, sem gefið er út af kommúnistaflokkum og fleiri verkalýðsflokkum, er 100. hefti í röðinni frá upphafi. Fyrsta heftið kom út í september 1958. Alls hafa komið greinar úr 118 löndum í timaritinu. Ritstjórn þess og ýmsir flokkanna, er að því standa, hafa skipulagt eins konar málþing um ýms vandamál stefnunnar alls 26 sinnum, og er efni þeirra þá jafnóð- um birt í tímaritinu. Þetta tímarit kemur út á 26 tungumálum í 33 þjóðlöndum og er lesið í 142 löndum heims. í þessu hefti eru margar merkileg- ar greinar um vandamál hreyfingar- innar í hinum ýmsu löndum. En höfuðefnið er það, sem fram kom á ráðstefnu, er ritstjórnin efndi til 1. til 3. nóvember 1966 í Prag. Var aðalviðfangsefni þeirrar ráð- stefnu: Baráttan gegn auðvalds- skipulaginu á stigi einokunarhringa og ríkisauðvalds, — fyrir friði, lýð- ræði og sósíalisma og þáttur og 55 L

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.