Réttur


Réttur - 01.07.1973, Page 56

Réttur - 01.07.1973, Page 56
annað unnt en dást að einurð fundarmanna og framsýni. Með tilliti til þess sem hér hefur verið frá sagt, má okkur þykja dálítið einkennilegt að heyra fund þennan kallaðan æsingafund og „lokleysu" eins og sr. Matthías gerði á gam- alsaldri. En þá er þess líka að minnast til að bera í bætifláka fyrir gamla manninn, að sem ungur þátttakandi í fundinum virðist hann sjálfur hafa hrifizt af þeim frelsisanda, sem svo ljóslega fékk útrás hjá hinni róttæku lýðræðishreyfingu landsmanna við Oxará um Jónsmessuleytið 1873. En þá hrifningu sína tjáði hið verðandi þjóðskáld einmitt í kvæði, sem mun ort um þetta leyti: „Getið verdur þess, er þorðu þingdjarfir Islendingar inna einum munni orð hvell á Þingvelli: Frjáls kjöri þjóð til frelsis fjallbyggð Snœlands alla. Lýður skal lögum ráða, landsrétt hefur guð settan." Við þessa frásögn mína um Þingvallafund- inn 1873 er litlu að bæta. Mig langar þó að lokum að vitna orðrétt í kafla, er ég skrifaði um fundinn í riti mínu um Jón Guðmunds- son ritstjóra: „Þegar leita skal að hagkvæm- um leiðum í frelsisbaráttu í von um ávinning, getur vissulega stundum verið matsatriði, hve langt skuli gengið í kröfum á hverjum tíma. Þótt róttækustu kröfurnar séu ekki settar á oddinn um stundarsakir, þarf það auðvitað ekki að tákna undanslátt á neinn hátt. Það er spurning um raunsæi öðru fremur. Afstaða Jóns Sigurðssonar og Jóns Guðmundssonar 1873 kann að þykja, fljótt á litið, bera merki tilslakana, a.m.k. væri hægt að halda því fram að óathuguðu máli. En þegar málin eru skoðuð ofan í kjölinn verður hið gagnstæða ofan á. Mat þeirra á ástandinu var rétt, fram- undan gat verið viðunandi tilboð hinna er- lendu drottnara, sem veita mátti viðtöku til að leggja grundvöllinn að enn frekari frelsis- kröfum síðar. Með þá staðreynd í huga fellur enginn skuggi á frammistöðu þeirra nafn- anna á Þingvallafundinum 1873. I stuttu máli má segja, að hjá öðrum aðilanum komi fram raunsætt mat á þáverandi ástandi, en hjá hinum eftirminnileg og djörf róttækni, sem skemmtilegt er ávallt að vitna til fyrir síðari tíma. Mega þá báðir aðilar una við sinn hlut eftir atvikum." Einar Laxness. Helztu heimildir: Fundargerð Lbs. 535, fol. Alþingistíðindi. Bréf Jóns Sigurðssonar. Göngu-Hrólfur. Þjóðólfur. Víkverji. Matthías Jochumsson: Sögukaflar. Þorvaldur Thoroddsen: Minningabók. Páll E. Ólason:: Jón Sigurðsson, 5. bindi. Vaka, 3. árg. 1929. Einar Arnórsson: Alþingi og frelsisbaráttan 1845—’74. Réttur, 1.—2. hefti 1951. Arnór Sigurjónsson: Einars saga Ásmundssonar, 2. bindi. E. Laxness: Jón Guðmundsson alþm. og ritstj. Þorsteinn Thorarensen: Gróandi þjóðlíf. 200

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.