Réttur - 01.01.1978, Side 34
Héðinn Valdimarsson.
Sigfús A. Sigurhjartarson
unni um þetta leyti til útlanda til að tryggja
meiri hluta sambandsstjórnar flokkslegt sam-
band við sósíaldemókrata-flokka Norðurlanda
og ná í 200.000 kr. lán fyrir tilstilli sænska
sósíaldemókrataflokksins, á bak Alþýðusam-
bandsins, en til herkostnaðar fyrir Framsókn-
arliðana og til þess að ná algerlega undir sig
Alþýðublaðinu og Alþýðuprentsmiðjunni. Er-
lendis kölluðu þeir sig hina einu sönnu sósía-
lista. Loforð fyrir þessu fékkst gegn auka-
tryggingum frá þeim „helztu" persónulega, en
útborgun dróst lengi vel. Haraldi Guðmunds-
syni var því att á foraðið og settur í farar-
brodd í hinni nýju stóru klofningsárás, þó að
honum væri klofningurinn upprunalega á móti
skapi, aðallega vegna þess að hann var óviss-
ari um árangurinn, en þeir trúuðustu. Meiri
hluti sambandsstjórnar liafði látið stela með-
limaskrá Jafnaðarmannafélagsins á skrifstofu
þess utan skrifstofutíma og voru nú fjölda-
margir meðlimir þess boðaðir á undirbúnings-
sprengifund kvöldið áður og ákveðið þar að
kljúfa Jafnaðarmannafélagið, ef ekki tækist
að vinna það við formannskosningu. Sama
kvöld var haldinn fundur í fulltrúaráði verk-
lýðsfélaganna í Reykjavík. Þar höfðu samein-
ingarmenn % hluta atkvæða, en andstæðing-
arnir mættu ekki, nema einn til að vitna, og
var samþykkt þar vantraust á sambandsstjórn,
St. Jóhann, Jón Axel og Soffíu, kosið í stjórn
Alþýðubrauðgerðarinnar og gefið umboð fyr-
ir hlutabréf í Alþýðuhúsinu. Á aðalfundi
34