Réttur - 01.08.1979, Síða 34
F relsisbarátta
Kúrda
Þjóðfrelsisbarátta Kúrdaþjóðarinnar er
einn af harmleikjum nútímans.
Kúrdaþjóðin er ein af elstu þjóðum
jarðarinnar. í gijmlum sumeriskum heim-
ildurn er hennar getið 2300 árum fyrir
Krists burð.
Kúrdarnir skiptast upp á milli ólíkra
ríkja og er oft erfitt að áætla fjölda þeirra,
enda alls ekki viðurkenndir sem þjóð
sums staðar. Eftir því sem næst verður
komist búa um 8 miljónir Kúrda í Tyrk-
landi, 51/2 nailjón í íran, 1—2 miljónir í
írak, I/2 miljón í Sýrlandi og ca. 89.000
í Sovétríkjunum.
Aðbúnaðurinn er óskaplega misjafn í
hinum ýmsu löndum.
-*
Kúrdarnir í Sovétríkjunum búa flestir
í lýðveldinu Aserbejdsjan. Þeir njóta þar
þjóðfrelsis, hafa sjálfir stjórn á menning-
málum sínum, hafa sína eign skóla,
prenta rit og annað á kúrdisku. Meiri-
hlutinn af þeim um það bil 500 ritum,
sem komu út á kúrdisku frá 1920 til 1970
var prentaður í Sovétríkjunum. Einnig
hafa verið framleiddar grammafónplötur
með þjóðlegri kúrdiskri músík.
*
í Tyrklandi, þessu þokkalega banda-
lagsríki Islands í Nató „til verndar lýð-
ræði og þjóðfrelsi", — eru Kúrdarnir alls
ekki viðurkenndir sem jóð, heldur kall-
aðir „Fjalla-Tyrkir“. Þverbrjóta tyrknesk
yfirvöld alla sanminga, sem þau hafa orð-
ið að gera um sjálfsforræði Kúrda.
Tungumál þeirra er bannað, uppreisn-
ir þeirra í Tyrklandi 1925, 1930, 1936-7
hafa verið kæfðar í blóði, hundruð þús-
unda Kúrda verið drepnir og land jieirra
lagt í eyði. Árásir herlögreglu Tyrkjanna
„]andermas“ halda stöðugt áfram. Pynt-
ingar gagnvart Kúrdum, einnig börnum
og nauðganir Tyrkja gagnvart kúrdísk-
um konum eru margsannaðar. í 800
þorpum Kúrdanna drotna tyrkneskir
„Agas“ sem lénsherrar er halda fólkinu
í ánauð. Hámarksaldur Kúrda þar er 45
ár. Lækna eða hjúkrunarfólk er aðeins
að finna í 5% af þorpunum, tveir þriðju
hlutar Kúrdanna verða að fara 150 kíló-
metra til jress að ná til læknis. Helmingur
allra barna deyr áður en jrau ná skóla-
aldri. 60.000 börn af kúrdaættum fá yfir-
leitt enga skólakennslu, kennara vantar.
í Tyrklandi er ólæsið yfirleitt 45%, en
meðal Kúrdanna 75%.
Þannig er reynt með öllu móti að halda
Kúrdum niðri í Tyrklandi. Þeir fáu, sem
geta brotist til mennta, verða eðlilega
róttækir sósíalistar.
Þýskur rithöfundur, Júrgen Roth, var
tekinn þar fastur fyrir tveim árum af Jrví
hann var að reyna að rannsaka ástandið
íyrir Amnesty International. Hann kvað
Jrá tíð nú liðna að Kúrdarnir í Tyrk-
landi myndu horfa aðgerðarlausir á bar-
áttu landa sinna í írak.
-fc
Höfuðleiðtogi Kúrda í frelsisbaráttu
þeirra var löngum MústafaBarsani. Hann
hafði haft aðsetur í Kúrdahéruðum Sov-
étríkjanna lrá jrví eina Kúrdaríkið, sem
stolnað hefur verið og stóðst aðeins tæpt
ár (23. janúar 1946 til 31. mars 1947) og
var staðsett í norðurhluta írans, höfuð-
170