Réttur


Réttur - 01.04.1982, Side 13

Réttur - 01.04.1982, Side 13
Hernaðarbáknið liður í heimsvaldastefnunni Ef litið er á hernaðarlega hlið þessarar yfirdrottnunar, þá leynir það sér ekki meðal hinna ríku iðnríkja að þau hafa orðið að skapa mikið hernaðar- og iðnaðarbákn heimafyrir, en uppbygging þess verið réttlætt með skýrskotun til ógnar frá hinum ,,svo- nefndu sósialísku ríkjum”. Afleiðing þessa hefur best verið lýst i kveðjuávarpi Eisenhowers Bandaríkjaforseta í janúar 1961, þar sem hann varar þjóð sina við þeirri hættu sem lýðræðinu stafi af samsteypu hernaðar- og iðnaðarhagsmuna: ,,Við höfum neyðst til að koma á fót föstum hergagnaiðnaði í stórum stíl. Þar við bætist að 3 Vi millj. manna, karla og kvenna, starfa beinlínis i þágu hersins. Á hverju ári verjum við til varnarmála einna, meiru en nemur nettótekjum allra bandarískra iðn- fyrirtækja ... þessi samruni gífurlegs hernaðarbákns og viðamikils her- gagnaiðnaðar er nýtt fyrirbæri í bandarískri sögu. Heildaráhrifin á sviði efnahags, stjónmála og jafnvel andlegrar menningar — gætir í hverri borg, stofnunum hvers einstaks ríkis og á hverri skrifstofu sambandsstjórn- arinnar.” 3 Síðan þessi aðvörun var flutt bandarisku þjóðinni hafa fimm forsetar setið við völd, en hernaðarbáknið vaxið eins og púkinn á fjósbitanum. Sama má segja um þróunina í fjölmörgum voldugum ríkjum. Menn hafa gjarnana einskorðað mat sitt á vígbúnaðarkapphlaupinu með því að skýrskota til mótsetninganna milli austurs og ,,Mig langar aðeins að vitna í bandarískar skýrslur um þá mengun sem fylgir venjum manna í neysluþjóðfélagi. Hver Bandaríkja- maður kastar að meðaltali á ævi sinni 10.000 flöskum, sem ekki verða notaðar aftur, 17.500 dósum, 27.000 flöskulokum, 2,3 bílum, 35 gúmdekkjum og 126 tonnum af sorpi, og af hans völdum berast 9,8 tonn af úrgangsefnum út í andrúms- loftið. Bandaríska heilbrigðisráðu- neytið hefur skýrt frá því, að árlega sé kastað í Bandaríkjunum 3.500 miljónum tonna af föstum úrgangs- efnum, en þar er m.a. um að rœða 7 miljónir bíla, 20 miljónir tonna af pappír, 48 miljón dósir, 26.000 mil- jón flöskur og krukkur; 5.000 mil- jón tonn af steinefnum og málmum og 142 miljón tonn af reyk og eitur- efnum og daglega mengar hver Bandaríkjamaður 300 lítra af vatni. Það er sannarlega ekki furða, þótt menn spyrji, hvort mannkynið sé ekki á góðri leið tneð að drukkna í sínu eigin sorpi. " Magnús Kjartansson: ,,Hagvexti eru takmörk sett", í safnritinu „Elds er þörf", Rvík, 1979, bls. 182-183. vesturs. Þegar fjallað er um heimsvalda- stefnuna hlýtur athyglin hins vegar að bein- ast fyrst og fremst að mótsetningunum milli Norðurs og Suðurs. 77

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.