Réttur - 01.08.1975, Side 57
ERLEND
VIÐSJÁ HlMH
ÍTALÍA
Það gætir mjög upplausnar í flokki „kristi-
legra demókrata" í Italíu eftir hinn sögulega
sigur Kommúnistaflokks Italíu í bæjarstjórn-
arkosningunum 15. júní í sumar.
Forsætisráðherra flokksins Moro sagði m.a.
í ræðu: „Það hefur verið brotið við blað í
sögu landsins, nýr kafli hefst .... Við erum
ekki vinsæll flokkur, ef flokkur vor á að end-
urfæðast, þá verður hann að losa sig við
hroka valdsins. Framtíðin er ekki lengur bara
á okkar valdi." Kvað hann nauðsynlegt að
skapa nýja jákvæða afstöðu til kommúnism-
ans.
Fyrir ári síðan hefði svona yfirlýsing þessa
manns vakið stórkostlega eftirtekt. Nú eru
þessi ummæli aðeins veikur endurhljómur al-
menningsálitsins á Italíu.
„Kristilegi demókrataflokkurinn" er spillt-
ur flokkur, hneykslin fylgja honum sem
skugginn, foringja á hann enga, er duga, og
frumkvæði er þar ekki að finna. Einn af
starfsmönnum flokksins lýsti því nýlega,
hvernig flokkurinn væri að „leika ríkisstjórn"
alltaf með sömu gagnslausu mönnunum:
„Við látum Rumor koma í stað Fanfani,
Piccoli í stað Rumors, Colombo í stað Piccoli
og Andreotti í stað Colombo — þangað til
KPI (Kommúnistaflokkur Italíu) loksins
kemur í stað DC („Demochristiani").
Þær ellefu miljónir ítalskra kjósenda, sem
nú greiddu atkvæði með ítalska kommúnista-
flokknum, eru sá múrveggur, sem hindrar
fasistana í valdatöku, því flokkurinn er reiðu-
búinn að mæta þeim á götunni eins og 1960,
er slíkt valdarán fasista vofði yfir og komm-
únistarnir sýndu vald sitt á gömnni. En flokk-
urinn er líka reiðubúinn að stjórna, þegar
fólkið felur honum það — og því hefur hann
nú borgarstjórana í flestum stærsm borgum
Italíu, — sumstaðar með aðstoð Sósíalista-
flokksins, en svo mikið er álit Kommúnista-
flokksins og upplausnin hjá hægri flokkun-
um: „kristilegum" og „krötum" að t.d. í
Milanó greiddu tveir bæjarfulltrúar hinna
fyrrnefndu og þrír hinna síðarnefndu atkvæði
með kommúnismm í borgarráðið — og voru
auðvitað strax reknir úr þessum flokkum.
Þeir kommúnistar, er annars standa vinstra
megin við Kommúnistaflokk Italíu, svo sem
flokkur sá, sem kenndur er við tímaritið
Manifesto („Manifesto-PDUP") og fékk tæpa
háifa miljón atkvæða í kosningunum (1,8%)
kýs í borgarstjórnunum með Kommúnista-
flokknum og átti nýlega í samingum við
miðstjórn K.F. Italíu í húsi miðstjórnarinnar
í Róm — þrátt fyrir mikinn meiningarmun.
Fer því fjarri að þessir „vinstri kommúnistar"
líti á ítalska Kommúnistaflokkinn sem ein-
hvern sósíaldemókratiskan flokk. Raunsæi er
ríkt hjá þessum aðilum öllum.
VENEZUELA
Vene2uela þjóðnýtir nú olíuiðnaðinn frá
201