Morgunblaðið - 08.01.2006, Page 1

Morgunblaðið - 08.01.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 7. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Stelpurnar fá strák Pétur Jóhann úr Strákunum fer úr einu gríninu í annað | 62 Tímaritið og Atvinna Tímaritið | Grænn maður í leikskólanum  Fegurð heimsins í fyrirrúmi Atvinna | Hvernig á að meta starfsf́ólkið?  Dæmt til að greiða 11,5 milljarða í skaðabætur 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 MENNIRNIR eru litlir í samanburði við jökla landsins eins og sannast á myndinni. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá Svínafellsjökli var miklu rigningarveðri að slota og var það mikið sjónarspil þegar birtan dansaði á jöklinum. Þessi litadýrð íslenskrar náttúru hefur löngum heillað margan og þar á meðal þennan náttúruunnanda sem virti fyrir sér jökulinn og hans nánasta umhverfi í stilltu veðrinu. Að undanförnu hefur Svínafellsjökull hopað lítillega og við það hefur myndast lítið lón þar sem jökullinn sat áður og þykir það mikil náttúrufegurð þar sem ís, vatn og jörð mæt- ast. Morgunblaðið/RAX Við rætur Svínafellsjökuls „ÞETTA var alveg hræðilegt en samt yndislegt að hægt var að bjarga barninu,“ segir Lilja Dóra Michelsen, stuðningsfulltrúi í Lindaskóla, sem náði að blása lífi í um tveggja mánaða gamlan dreng sem var næstum kafn- aður við matvöruverslun í Kópavogi á miðvikudag. Litli drengurinn var orðinn helblár þegar Lilja blés lífi í hann. Hún hafði farið á námskeið í skyndihjálp á vinnustað sín- um deginum áður og segir að það hafi eflaust hjálpað sér við að bregðast jafn hratt við og raun bar vitni. Spurð um aðdraganda björgunarinnar segir Lilja að hún hafi verið búin að versla og stödd við kassann þegar kona kom inn í verslunina með lítið barn í fanginu og hrópaði karlmannsnafn. „Ég hélt fyrst að það væri vegna þess að lítið barn hefði hlaupið á undan henni, en svo tekur maðurinn sem er fyrir framan mig á kassanum á rás að konunni,“ segir hún. Fljótlega tók Lilja eftir því að barnið var orðið helblátt í framan. „Ég hugsa með mér hvort enginn ætli að gera neitt, hleyp út á eftir manninum og segist geta reynt að blása lífi í barnið. Fað- irinn spyr hvort ég kunni það. Ég svara að ég viti það ekki en ég hafi verið á skyndihjálparnámskeiði í gær,“ segir Lilja. „Ég blæs í barnið og er búin að blása kannski um sex sinnum þegar ég heyri smell. Um leið segir fað- irinn mér að þetta sé komið.“ Lilja segir að þegar björgunin var afstaðin hafi for- eldrar litla drengsins tjáð henni að hann væri haldinn fæðingargalla. Gallinn lýsi sér þannig að barki hans sé linur og fari fyrir öndunaropið. Þau hafi tjáð henni að hann hafi tvisvar sinnum áður hætt að anda en þá hafi verið nóg að fara með drenginn út á svalir svo hann jafn- aði sig. Móðirin, sem beið úti í bíl með barnið meðan fað- irinn verslaði, hafði því farið með barnið út úr bílnum þegar það hætti að anda en það ekki dugað til. Mikilvægt að kunna skyndihjálp Lilja segir að samstarfskona sín úr Lindaskóla hafi einnig komið inn í verslunina um það leyti sem atvikið átti sér stað. Hafi hún hlynnt að móður drengsins, sem hafi verið í miklu áfalli eftir atburðinn. „Það var margt fólk í búðinni þegar þetta gerðist en það virtust bara vera við tvær sem gerðum eitthvað,“ segir hún og bætir við að þær hafi báðar verið meðvitaðar vegna námskeiðs- ins sem þær höfðu nýlokið. Lilja kveðst hafa tekið mörg slík námskeið, enda hafi hún alla tíð unnið þar sem börn eru. Þá hafi hún verið skáti sem unglingur. Lilja segir að eftir björgunina á miðvikudag myndi hún ekki hika við að gera slíkt hið sama aftur kæmu þær aðstæður upp. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að kunna skyndihjálp. „Ég vona bara að allir, ekki síst þeir sem eiga barn, fari á skyndihjálparnámskeið,“ segir Lilja Dóra Michelsen. Tókst að blása lífi í tveggja mánaða gamalt barn Hafði farið á námskeið í skyndihjálp deginum áður Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is KÖNNUN, sem birt var í Bret- landi í gær, bend- ir til þess að rúm- ur helmingur 62 þingmanna Frjálslyndra demókrata vilji að Charles Kennedy segi af sér sem leiðtogi flokksins. Þá hafa um 25 þingmannanna skrifað undir yfirlýsingu um að þeir ætli ekki að starfa með Kennedy sem leiðtoga. Þeir kröfðust þess að hann tæki ekki þátt í leiðtogakjöri sem hann boðaði til eftir að hafa viður- kennt að hann hefði glímt við áfeng- isvanda síðustu misseri. Áður hafði hann neitað því í viðtölum við breska fjölmiðla. Kennedy kvaðst ekki ætla að segja af sér og taldi sig njóta stuðnings „yfirgnæfandi“ meirihluta félaga í flokknum. The Daily Telegraph birti þó könnun sem bendir til þess að að- eins 27% flokksfélaganna vilji að Kennedy fari fyrir Frjálslyndum demókrötum í næstu þingkosn- ingum. Blaðið sagði að yfirlýsing þingmannanna 25 þýddi að dagar Kennedys sem flokksleiðtoga væru í raun taldir. Þingmenn hafna Kennedy Charles Kennedy Detroit. AP. | Viðvörun um að neytendur ættu ekki að nota hita- byssu sem hárþurrku hefur verið valin hjákátlegasta viðvörun lið- ins árs á vörumiðum. Hitabyssan gefur frá sér allt að 540 stiga hita á Celsius. Er þetta í níunda sinn sem bandarísk samtök veita verðlaun fyrir hjákátlegustu viðvaranir ársins til að henda gaman að þeirri tilhneigingu Bandaríkja- manna að höfða skaðabótamál og áhrifum hennar á vörumerk- ingar. Verðlaun voru einnig veitt fyr- ir næstkynlegustu viðvörunina, en hún fylgdi eldhúshníf: „Reynið aldrei að grípa fallandi hníf.“ Þriðju verðlaunin voru veitt fyrir hanastélsmunnþurrku með korti af siglingaleið umhverfis eyju við strönd Suður-Kaliforníu: „Notist ekki við stjórn skipa eða báta.“ Heiðursverðlaun voru veitt fyr- ir viðvörun á flösku af þurrkuðu gaupuþvagi sem notað er til að fæla skordýr frá garðplöntum: „Ekki ætlað til neyslu.“ Hitabyssa er ekki hárþurrka Jerúsalem. AFP. | Læknar sem reyna að bjarga lífi Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, tóku nýja skannmynd af heila hans í gær- morgun þegar hon- um var enn haldið í svefndái á sjúkrahúsi í Jerúsalem. Talsmaður sjúkrahússins sagði að nýja heilaskannið hefði verið ákveðið fyrirfram og benti ekki til þess að ástand forsætisráðherrans hefði versnað. Líðan Sharons var sögð „alvarleg en stöðug“ eftir að hann gekkst undir þriðju heilaskurðaðgerðina frá því á miðvikudag þegar hann var fluttur á sjúkrahús vegna heilablóðfalls. Læknar Sharons sögðu að ekki væri hægt að meta hvort hann hefði orðið fyrir var- anlegum heilaskemmdum fyrr en í fyrsta lagi í dag þegar dregið verður úr lyfjagjöfinni sem heldur honum í svefndái. Sérfræðingar sögðu horfurn- ar á bata enn slæmar. Batahorf- ur Sharons metnar Ariel Sharon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.