Morgunblaðið - 08.01.2006, Side 28
28 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Vegna magninnkaupa og nýrra
samninga við frændur okkar,
getum við boðið Saab 9-3
á ævintýralegu verði. Áratugum
saman hefur SAAB verið frem-
stur á meðal lúxusbifreiða.
Hann er valinn öruggasti bíllinn
í sínum flokki ár eftir ár og er
sérstaklega hannaður fyrir skandi-
navískar aðstæður. Kynntu þér
Saab 9-3, skynsamasta valið.
saab.is
Öll verð eru fengin frá netsíðum
viðkomandi bílaumboða.
Skynsemismælirinn
Mercedes-Benz
C230 K
Kr. 3.875.000
Lexus IS 250
Kr. 3.800.000
Volvo S60
Kr. 3.520.000
Audi A4
Kr. 2.930.000
BMW 318i
Kr. 2.820.000
Volvo S40
Kr. 2.770.000
Saab 93
Kr. 2.290.000
VW Passat
Kr. 2.690.000
Audi A3
Kr. 2.690.000
Allt um íþróttir
helgarinnar
Vöruhönnun og arkitektúr íFrakklandi hefur veriðsterkur þáttur í menninguFrakka í áraraðir. Hönn-
uðir á borð við Hector Gumiard,
Charlotte Perriand, Eileen Grey og
Le Corbusier voru frumkvöðlar á
sínu sviði og lögðu góðan grunn fyrir
komandi kynslóðir franskra hönn-
uða. Í dag er að finna marga áhuga-
verða hönnuði í Frakklandi sem vert
er að skoða nánar. Einn þeirra er
Matali Crasset. Hún nam vöruhönn-
un í háskólanum E.N.C.I sem er
einn af fremstu hönnunarskólum í
Frakklandi. Að loknu námi árið 1991
sneri hún sér alfarið að hönnun og er
í dag einn af fremstu vöruhönnuðum
Frakklands.
Býr sér til atburðarásir og sögur
Talið er að verkefnið When Jim
came to Paris hafi opnað margar dyr
fyrir Matali Crasset. Sérstaklega
fannst fólki áhugavert hvernig hún
bjó sér til atburðarás og sögu til að
komast nær verkefninu. Hún hugs-
aði sér þá sögu hvernig það væri ef
sögupersónan Jim kæmi til Parísar,
hvað þyrfti að vera til staðar? Verk-
efnið samanstendur af vekjara-
klukku, dýnu og ljósi sem allt hefðu
verið nauðsynlegir hlutir fyrir Jim
þegar hann kæmi í heimsókn.
Atburðarásir og sögur eru aðferð-
ir sem Matali Crasset notar oft og
tíðum þegar hún tekst á við verkefni
á borð við When Jim came to Paris.
Verkefnin verða skemmtilegri fyrir
vikið og höfða jafnvel til breiðari
markaðs.
Fyrsta sýningin á When Jim came
to Paris-verkefninu var á Hús-
gagnasýningunni í Mílanó árið 1998
og segir hún sjálf að þessi sýning
hafi verið mjög mikilvæg fyrir vel-
gengni hennar sem hönnuður.
Fleiri sýningar fylgdu í kjölfarið
og árið 2000 var Matali Crasset boð-
ið að taka þátt í sýningunni The pet-
it enfants de Starck. Ástæðan var sú
að frá árunum 1993 til 1998 vann
hún hjá Philippe Starck. Á þeim ár-
um var hún yfirhönnuður Tim Tom-
hópsins og sá um alla útlitshönnun
fyrir Thomson-fyrirtækið. Sam-
starfið var mjög gott milli Philippe
Starck og Matali Crasset og voru
ákveðin vinnubrögð hjá Philippe
Starck sem hún tileinkaði sér. Þau
vinnubrögð voru einna helst að vera
opin fyrir nýjum hlutum og sérhæfa
sig ekki í einum hlut heldur taka að
sér ólík verkefni.
Hi-hótelið – ólíkir heimar
Margt fylgdi í kjölfar The petit
enfants-sýningarinnar, því nákvæm-
lega á sama tíma voru eigendur Hi-
hótelsins, Chapelet and Elouarghi,
að leita að hönnuðum í Hi-hótel-
verkefnið. Þau fóru á helstu hönn-
unarsýningar í París, Mílanó og
New York til að leita uppi áhuga-
verða hönnuði. Í þessari leit hittu
þau á franskan þjón sem kom með
þá uppástungu að líta á hönnuði sem
höfðu unnið undir Philippe Starck.
Þeim leist vel á þá hugmynd, þar
sem Philippe Starck var einn af
þeirra uppáhalds hönnuðum. Þau
kíktu á sýninguna The petit enfants
de Starck þar sem þau sáu verk Ma-
tali Crasset. Þeim leist vel á hennar
vinnu og völdu hana í verkefnið.
Þetta var mikið verk sem reyndi á
ólíkar hliðar hönnunar sem hentaði
Matali Crasset vel. Hún fékk til liðs
við sig fleiri hönnuði og að lokum
varð til hótel sem innihélt níu ólíka
heima, þ.e. 38 herbergi sem skiptust
í níu þemu. Herbergið digital room
ættu tölvuáhugamenn ekki að láta
fram hjá sér fara. Veggirnir eru eins
og stórir pixelar og húsgögnin eru
sem tölvuskjáir. Þeir sem eru að
leitast eftir kyrrð og ró ættu að
panta sér herbergið white&white
þar sem einfaldleiki og hreinleiki
eru allsráðandi. Allt í rýminu er
hvítt, bæði veggir og hlutir. Einung-
is er um einn hlut að ræða í rýminu
en það er hvítt borð sem stendur á
miðju gólfi og hægt er að breyta í
rúm. En ef verið er að leita eftir lífi
og fjöri þá er herbergið Mono space
tilvalið. Mikil litadýrð er í herberg-
inu sem skiptist í þrjú svæði þar sem
hvert svæði hefur sinn lit. Ásamt því
að hanna öll herbergin þá kom Ma-
tali Crasset að hönnun matarstells-
ins Hi-link og ljósinu Hi-light sem
lýsir upp vel heppnaða innanhúss-
hönnun Hi-hótelsins.
Fjölbreytileikinn allsráðandi
Áhugavert er að sjá hvað Matali
Crasset nær yfir stórt svið hönnun-
ar þ.e. innanhússarkitektúr, vöru-
hönnun, grafíska hönnun og einnig
sýningarhönnun. Hún hefur verið
mjög iðin við að hanna sýningar,
meðal annars setti hún upp sýningu
á Sunic-ilmvatninu í gallerí Candy í
Prag árið 2002. Matali Crasset var
með fingurna alls staðar og tók einn-
ig þátt í útlitshönnun Sunic-ilm-
vatnsins. Glasið hefur lögun lampa
en innan lampans er form ljósaperu
sem fyllt er með ilmvatninu. Hún
hefur komið að hönnun fleiri ilm-
vatnsglasa, eins og t.d. fyrir Kenzo
og Clarins.
Oft og tíðum fylgja teikningar
með verkefnum hennar. Annars
vegar er um að ræða teiknimynda-
sögur sem segja frá atburðarásinni
sem hún bjó sér til í vinnuferlinu,
eins og í verkefninu When Jim came
to Paris. Hins vegar gerir hún teikn-
ingar sem gætu komið í stað ljós-
myndar, t.d. í verkefninu Phytholab
sem Matali Crasset vann fyrir fyr-
irtækið Dornbract árið 2002. Ný og
betri sýn á baðherbergi var út-
gangspunktur Matali Crasset þegar
hún vann verkefnið. Hún ákvað að
engin þörf væri fyrir spegla á bað-
herberginu. Hún taldi að miklir
speglar í baðherbergi gætu stundum
verið truflandi fyrir fólk sem væri
mikið að spá í útlitið. Þess í stað kom
hún með hugmynd að speglalausu
baðherbergi sem hafði að geyma
blátt baðker úr akríl þar sem blóma-
pottar skreyttu hvern krók og kima.
Hér átti notandinn að njóta þess að
vera inni á baðherberginu, slappa af
og njóta snertingar og ilms.
Fjölbreytileiki er einnig einkenn-
andi fyrir vörur sem hún hefur
hannað í gegnum tíðina eins og
borðið Table tray and shelves. Borð-
ið er með færanlegum plötum þann-
ig að hægt er að nota plöturnar sem
bakka ásamt því að möguleiki er á
að hengja upp plöturnar svo úr verð-
ur hilla.
Verkefnin sem hér hefur verið
fjallað um eru aðeins hluti af því sem
hún hefur tekið sér fyrir hendur.
Matali Crasset er án efa hæfileika-
ríkur hönnuður sem hefur verið
mjög kraftmikil síðastliðin ár. Verk-
efni hennar spanna breitt svið hönn-
unar og hugmyndarfræðin skipar
stóran sess í hönnunarferlinu. Ör-
læti, gestrisni og bjartsýni eru lyk-
ilhugtök í lífi og starfi Matali
Crasset.
Í hlutarins eðli – Franski hönnuðurinn Matali Crasset hefur
getið sér gott orð fyrir störf sín og er nú í fremstu röð hönn-
uða. Hún býr sér til atburðarásir og sögur í verkum sínum.
Guðrún Edda Einarsdóttir segir frá ævi og störfum Crasset.
Kraftmikil og
skapandi hönnun
Sunic-ilmvatnsflaskan.
Crasset sá um tíma um alla útlits-
hönnun fyrir Thomson-fyrirtækið.
Speglalaust baðherbergi að hætti Crasset.
Höfundur er vöruhönnuður.
Hi-link-matarstellið.