Morgunblaðið - 08.01.2006, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 43
UMRÆÐAN
ÁRIÐ 2005 hefur verið við-
burðaríkt í starfi Vöku, félags lýð-
ræðissinnaðra stúd-
enta. Þegar litið er til
baka yfir heilt ár eru
ákveðnir atburðir sem
reynast minnisstæðari
en aðrir. Það er þó eitt
sem stendur upp úr og
það er sá stóri hópur
góðs fólks sem að starf-
inu kemur og gerir fé-
lagið að því afli sem það
er. Ekki eingöngu
styrkir það félagið gíf-
urlega að hafa slíkan
mannauð að leita til
þegar hagsmunabar-
átta stúdenta er annars
vegar, heldur er seint
hægt að vanmeta fé-
lagslega þáttinn í starfi
sem þessu og gefur það
starfinu aukið gildi
þegar unnið er í góðra
vina hópi.
Stærsti atburðurinn
í háskólapólitíkinni, og
um leið í starfi þeirra
fylkinga sem leggja þá
störf sín í dóm stúd-
enta, eru tvímælalaust
háskólakosningarnar
sem fóru fram dagana
10.–11. febrúar sl. Vaka
hafði verið í meirihluta Stúdentaráðs
síðustu þrjú árin, en að þessu sinni
varð niðurstaðan sú eftir stranga
kosningabaráttu að upp kom odd-
astaða í ráðinu; Vaka fékk 4 fulltrúa,
Röskva 4 og H-listinn 1. Starfið í
Stúdentaráði hefur verið lærdóms-
ríkt að vissu leyti og ýmsum af okkar
hugmyndum verið hægt að hrinda í
framkvæmd, sérstaklega í þeim
fastanefndum sem Vaka veitir for-
mennsku.
Menntamálanefnd hefur verið
mjög virk og þar hefur verið sér-
staklega ánægjulegt að endurvekja
heimasíðuna prof.is til að hafa eftirlit
með einkunnaskilum kennara, auk
þess sem kennslukönnun á vegum
stúdenta var gerð nú á haustönn í
fyrsta skipti, og á hún að geta veitt
kennurum í Háskólanum mikilvægt
aðhald og stuðlað að betri kennslu.
Hagsmunanefnd hefur einnig í
störfum sínum verið öflug á þessu
starfsári við að bæta aðstöðu nem-
enda í skólanum. Opnunartími í bygg-
ingum hefur mörgum nemandanum
þótt full stuttur og því var það eitt af
forgangsverkefnum
nefndarinnar í ár að
bæta úr því; árangurinn
varð sá að bæði í vor- og
jólaprófum þessa árs
hafa þrjár byggingar
verið opnar til fjögur á
nóttunni og opnunartími
annarra bygginga verið
rýmkaður. Þetta fékkst
með því að Vökuliðar
ásamt fleirum tóku sig
til og vöktuðu byggingar
til að tryggja lengdan
opnunartíma. Allt eru
þetta skref í rétta átt, og
við erum ánægð með
þann árangur sem þeg-
ar hefur náðst. Við verð-
um að sjálfsögðu að
setja markið sífellt
hærra til að stúdentar
fái notið eins góðrar
þjónustu og skólinn get-
ur mögulega veitt þeim.
Alþjóðanefnd hefur
unnið gott starf í þágu
þeirra fjölmörgu er-
lendu stúdenta sem
nema við skólann.
Nefndin hefur útvegað
íslenska tengiliði fyrir
þá erlendu nema sem
þess óska. Einnig stóð Alþjóða-
nefndin fyrir vel heppnuðu átaki þar
sem erlendum nemum var boðið í
jólamat hjá íslenskum fjölskyldum og
vakti með því afar jákvæða og verð-
skuldaða athygli á aðstæðum er-
lendra nema yfir hátíðirnar.
Af öðrum málum í Stúdentaráði má
nefna breytingar á úthlutunarreglum
LÍN í maí sl. sem voru býsna róttæk-
ar, og nokkuð umdeildar, en vonandi
verða nauðsynleg skref í átt að af-
námi skerðingarhlutfalls tekin í fram-
haldinu. Stúdenta- og Lánasjóðsdag-
arnir voru haldnir á haustönn og
heppnuðust ágætlega. Staðan í Stúd-
entaráði hefur þó haft þau áhrif að
ákveðið frumkvæði hefur vantað í
störf þess og er það ósk okkar að því
verði hægt að breyta á komandi ári.
Störf Vöku takmarkast þó síður en
svo við Stúdentaráð og hefur stjórn
félagsins einnig haft mörg járn í eld-
inum í vetur og bryddað upp á ýms-
um nýjungum.
Má þar fyrst nefna pókerkvöld
Vöku sem haldin hafa verið á tveggja
vikna fresti í allan vetur við mjög góð-
ar undirtektir, og verður gaman að
geta haldið enn fleiri slík kvöld, og
tekið þátt í þeim, á nýju ári. Einnig
hefur félagið reglulega verið með
partý af ýmsu tagi ásamt málefna- og
kynningarfundum. Þá stóðum við fyr-
ir svokallaðri RokkVöku nú í haust
sem og mjög skemmtilegu hagyrð-
ingakvöldi á vordögum. Í febrúar sl.
varð félagið svo 70 ára og að sjálf-
sögðu var fagnað vel af því tilefni.
Til viðbótar við alla atburðina sem
félagið stendur fyrir fara Vökuliðar í
alls kyns skemmti- og vinnuferðir á
eigin vegum þar sem gjarnan fæðast
góðar hugmyndir og gleðin og gam-
anið sjaldan langt undan. Engin und-
antekning varð á því á þessu ári og
voru Húsafell, Vestmannaeyjar og
Laugarvatn meðal þeirra staða sem
fengu að njóta samverustunda með
Vökufólki. Hér stiklum við þó aðeins
á stóru enda verður svona upptalning
seint tæmandi, en ljóst er að starf
Vöku á vettvangi jafnt stjórnar sem
Stúdentaráðs hefur verið við-
burðaríkt og skemmtilegt þetta árið.
Síðastliðið ár hefur gefið okkur af-
ar mikið og er það von okkar og trú
að næsta ár verði jafnvel ennþá betra,
og er enginn vafi á að það gangi eftir
ef haldið verður áfram á þeirri braut
sem félagið er á.
Því horfum við með mikilli til-
hlökkun til ársins 2006 um leið og við
þökkum öllum þeim sem hafa stutt
okkur á liðnu ári; megi nýja árið
verða ykkur og hagsmunabaráttu
stúdenta happadrjúgt.
Áramótakveðja Vöku
Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir
og Þorgeir Arnar Jónsson líta
yfir liðið ár
’Því horfum við meðmikilli tilhlökkun til árs-
ins 2006 um leið og við
þökkum öllum þeim sem
hafa stutt okkur á liðnu
ári …‘
Inga Hrefna
Sveinbjarnardóttir
Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir er
formaður Vöku og Þorgeir Arnar
Jónsson varaformaður Vöku.
Þorgeir Arnar
Jónsson
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Opið hús - Háteigsvegur 40
Glæsileg 93,3 fm íbúð í kjallara með sér-
inngangi. Íbúðin skiptist í anddyri, hol,
eldhús, geymslu/þvottahús, baðherbergi,
stofu og borðstofu, sem áður var svefn-
herbergi. Stutt í alla þjónustu. Íbúðin er
mjög rúmgóð og nýtast stofurnar sér-
staklega vel. Íbúðin er ekki mikið niður-
grafin. Eignin verður til sýnis og sölu í
dag (sunnudag) á milli kl. 14-15. Þórarinn
á bjöllu. V. 17,9 m. 5406
Ásgarður - Fallegt raðhús
Fallegt og vel skipulagt raðhús sem
skiptist í kjallara, hæð og ris. 1. hæð:
Forstofa, gangur, eldhús og stofa.
2. hæð: 3 herbergi og bað. Kjallari:
þvottahús og geymslupláss. Timburver-
önd og garður til suðurs. 5358
Stigahlíð - Góð staðsetning
Falleg, björt og mikið endurnýjuð 3ja
herb. íbúð á 1. hæð, sem skiptist í for-
stofu, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi,
eldhús og baðherbergi. V. 16,7 m. 5559
Lækjasmári - Sérinngangur
Glæsileg og nýleg 3 herbergja 87,3 fm
íbúð á jarðhæð í fjórbýlishúsi með sér-
inngangi og innbyggðum 26,5 fm bílskúr.
Geymsla er inn af bílskúr. Íbúðin skiptist
þannig: Stofa, eldhús, tvö svefnherbergi,
baðherbergi, þvottahús og forstofa. Úr
stofu er gengið út á ca 50 fm afgirta sér-
lóð með hellulagðri verönd. V. 25,8 m.
5537
Kaplaskjólsvegur - Laus strax
Vel staðsett og rúmgóð fimm herbergja
132 fm endaíbúð í fallegu fjölbýli í hjarta
Vesturbæjar. Íbúðin skiptist í hol, 4 svefn-
herbergi, stofu, baðherbergi og eldhús
auk þess er aukaherbergi í kjallara, ásamt
sérgeymslu og sameiginlegu þvottahúsi.
V. 25,9 m. 5490
Árskógar - Með bílskýli
Falleg og björt 96 fm 3ja herbergja íbúð á 7.
hæð í húsi fyrir eldri borgara í Mjóddinni,
ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin snýr í suð-
ur og vestur og er glæsilegt útsýni úr henni.
Íbúðin skiptist í hol, eldhús, baðherbergi,
þvottahús, tvö herbergi og stofu. Í kjallara er
sérgeymsla og öll sameign hússins er á 1.
hæð þ.m.t. öll þjónusta við eldri borgara.
Innangengt í þjónustumiðstöð þar sem er
matur, tómstundir og heilsugæsla. 5536
Gvendargeisli - Falleg eign, bílskýli
Glæsileg 4ra herbergja íbúð ásamt stæði í
lokaðri bílageymslu. Íbúðin er í fallegri
nýrri 3ja hæða blokk og er á efstu hæð.
Gengið er inn sérinngang af svölum inn í
íbúðina. Allur frágangur að utan er snyrti-
legur, flísar á gólfi stigahúss og húsið er
steinað að utan. Íbúðin skiptist í 3 svefn-
herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi,
geymslu og þvottahús. V. 27,5 m. 5534
Klapparhlíð - Glæsileg
Ný og glæsileg 3ja herbergja endaíbúð á
jarðhæð, sem skiptist í forstofu, gang,
hjónaherbergi, barnaherbergi, baðher-
bergi, sérþvottahús, sérgeymslu, stofu og
eldhús. Sérlóð er fyrir framan íbúðina. V.
20,5 m. 5557
Hjarðarhagi "Kennarablokkin"
Vel skipulögð 120 fm, 5 herbergja íbúð á
4. hæð sem skiptist í hol, gestasnyrtingu,
3 herbergi, borðstofu, stofu, eldhús og
baðherbergi. Húsið hefur nýlega verið
standsett. Það er klætt að austan- og
sunnanverðu en að vestan- og norðan-
verðu er húsið nýviðgert og málað. Lóðin
er standsett og eru göngustígar nýhellu-
lagðir og upphitaðir. V. 24,9 m. 5526
Sölusýning í dag á glæsilegum fullfrág.
íb. í Rauðavaði nr. 1-11 frá kl. 14-16
Erum með í einkasölu glæsilegar
fullbúnar (án gólfefna 2ja, 3ja og 4ra
herb. íbúðir í nýjum 3ja hæða hús-
um. Mjög gott útsýni er úr hluta
íbúðanna og er sérinngangur af
svölum í íbúðir nr. 5-7 og 9-11.
Íbúðirnar eru/verða innréttaðar með
vönduðum innréttingum frá HTH að
hluta til að vali kaupenda. Baðherb.
eru með baðkari og flísal. í hurðar-
hæð. Sérgeymslur innan íbúða og
sérþvottahús í öllum íbúðum. Stæði
í mjög góðu bílahúsi fylgir öllum
íbúðum.
2ja herb. 93,5 fm íb. kosta 19,5 millj.
3ja herb. 108,5 fm íb. kosta 22,8-23,5 millj.
4ra herb. 118,5-119 fm kosta 25,9 millj.
Sölusýning verður í dag
sunnudag frá kl. 14-16
og verða sölumenn
frá Valhöll á staðnum.