Morgunblaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
INNLENT efni í ríkissjónvarpinu
er af skornum skammti, svo vægt sé
til orða tekið. Er þetta ólíkt því sem
er í nágrannalöndum okkar á Norð-
urlöndum, að ekki sé talað um önnur
lönd Evrópu. Telst mér til að síðustu
viku liðins árs hafi innlent efni í rík-
issjónvarpinu verið um 10 klukku-
stundir, og eru þá með taldar upp-
tökur af öllum tónleikum jólanna og
messur svo og ávarp forsætisráð-
herra. Erlent efni þessa daga var um
100 klukkustundir – með öðrum orð-
um: innlent efni var þessa viku um
10 af hundraði alls sjónvarpsefnis og
er of lítið að ríkissjónvarpið gjaldi ís-
lenskri menningu aðeins tíund af
efni sínu.
Það var því gleðiefni að horfa á
þátt Gísla Sigurgeirssonar um
kjarnakonurnar Jóhönnu Jóns-
dóttur og Kristínu Ólafsdóttur í Að-
alstræti 32 á Akureyri. Þáttur Gísla
var mjög vel gerður með frábærum
svipmyndum frá liðinni tíð, auk þess
sem lífsspeki, hógværð og einlægni
kjarnakvennanna tveggja yljaði um
hjartarætunar í allri þeirri sýnd-
armennsku sem tröllríður þessari
þjóð og mörgum öðrum þjóðum,
ekki síst um jólin, sem eru að verða
ein mesta ófriðarhátíð ársins.
Megum við unnendur Ríkis-
útvarpsins fá meira að heyra – og sjá
af innlendu menningarefni og hinn
reyndi og smekkvísi útvarps- og
sjónvarpsmaður Gísli Sigurgeirsson
– svo og aðrir góðir dagskrárgerð-
armenn – fá tækifæri til þess að gera
fleiri þætti um íslenska menningu,
náttúru, sögu, bókmenntir og listir.
Þótt við séum – og eigum að vera
heimsborgarar megum við ekki
gleyma því að við erum íslenskir
heimsborgarar.
TRYGGVI GÍSLASON,
fyrrverandi skólameistari
Menntaskólans á Akureyri,
Blásölum 22, Kópavogi.
Gott sjónvarpsefni
Frá Tryggva Gíslasyni:
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is
Til sölu er ein glæsilegasta snyrtistofa/verslun landsins. Stofan er í sérinn-
réttuðu húsnæði miðsvæðis í borginni. Frábært tækifæri fyrir snyrti-, nagla-
og förðunarfræðinga. Góð aðkoma og frábær vinnuaðstaða. Mikil við-
skiptavild.
Upplýsingar á skrifstofu Miðborgar. 3844.
Glæsileg snyrtistofa -
Frábært tækifæri
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Til leigu. Hlíðasamári, Kópavogi
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
6 hæða verslunar, þjónustu
og skrifstofubygging. Mjög
góð staðsetning á einum
besta stað í Smáranum,
glæsilegt útsýni, samtals ca.
1944 fm.
● Jarðhæð - verslun og þjónusta ca 324 fm.
● 2 - 6 hæð - skrifstofur og þjónusta ca. 324 fm. hver hæð.
● Mögulegt er að skipta hverri hæð upp í 2 - 4 einingar.
● Mjög góð bílastæði eru við húsið.
● Húsið er mjög áberandi og er aðgengi og staðsetning
mjög góð.
● Húsnæðið afhendist í september 2006.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
EIGN ÓSKAST Í ÁSAHVERFINU
Í GARÐABÆ
Höfum kaupanda að raðhúsi eða parhúsi í Ásahverfinu í Garðabæ.
Áhugasamir hafi samband við Hlyn Halldórsson sölumann í gsm
698 2603 eða síma 520 7500 á skrifstofu Hraunhamars.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Fréttir í
tölvupósti