Morgunblaðið - 08.01.2006, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 53
AUÐLESIÐ EFNI
Eiður Smári
Guðjohnsen,
fyrir-liði íslenska
lands-liðsins í
knatt-spyrnu og
leik-maður enska
meistara-liðsins
Chelsea, var á
þriðju-daginn
kjörinn
íþrótta-maður
ársins 2005.
Eiður Smári fékk
fullt hús stiga í
kjörinu, sem
Samtök
íþróttafrétta-manna standa
að. „Ég er meiri háttar
stoltur með þessa
viður-kenningu og hún er
toppurinn ofan á frá-bært ár
þar sem við
unnum Englands--
meistaratitilinn.
Ég neita því ekki
að ég átti alveg
von á að verða
fyrir valinu en það
hvarflaði ekki að
mér að ná fullu
húsi.“
Eiður Smári
fékk hálfa milljón
króna í verð-laun
frá Íslands-banka,
en hann gaf
verð-launin til
sam-takanna Ein-stakra
barna.
„Þetta er það minnsta
sem ég get gert,“ sagði
hann um gjöfina.
Íþrótta-maður ársins 2005
Eiður Smári glaður
með bikarinn.
Í vikunni vöknuðu miklar um-ræður um
mun á launum for-stjóra í
stór-fyrirtækjum og almennra laun-þega.
Var það vegna hárra forstjóra-laun hárra
upphæða í starfsloka-samningum sem
gerðir höfðu verið við tvo fyrr-verandi
for-stjóra hjá FL Group. Launin voru um 4
milljónir á mánuði, en gátu fjór-faldast ef
vel gekk. Starfsloka-samningarnir voru
samtals 300 milljónir.
Jóhanna Sigurðardóttir þing-maður
segir á heima-síðu sinni á Alþingi að FL
Group hafi tekið for-ystu í þeirri
græðgis-væðingu til stjórnenda sem
staðið hefur yfir undan-farin misseri.
Hlut-hafar ættu að reka stjórnar-formann
fyrir-tækisins fyrir að leyfa sér að taka
slíka ákvörðun og al-menningur ætti að
gera kröfu um að far-gjöld verði lækkuð.
Mörður Árnason þing-maður bendir á að
miðað við meðal-laun á Íslandi þyrftu 2
meðal-jónar að vinna í 58 ár hvor til að
vinna sér inn fyrir þessari upphæð.
Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- og
iðnaðar-ráðherra mun í upp-hafi vor-þings
leggja fram nýtt frum-varp um hluta-félög
og einkahluta-félög. Í því verða ákvæði
um að laun og starfsloka-samningar
stjórnenda skuli lögð fyrir hluthafa-fund
til sam-þykktar.
Háar upphæðir í starfsloka-samningum FL Group
Alfreð hættur hjá Magdeburg
Alfreð Gíslason hefur verið
leystur frá störfum sem
þjálfari þýska
handknattleiks-liðsins
Magdeburg. Alfreð hefur
þjálfað liðið frá 1999 og undir
hans stjórn varð liðið eitt hið
sterkasta í Evrópu.
Framkvæmda-stjóri
Magdeburg segir Alfreð einn
besta handknattleiks-þjálfara
heims, en að hann hafi ekki
komist lengra með liðið. Því
hafi þessi ákvörðun verið
óhjákvæmi-leg. Alfreð tekur
við þjálfun Gummersbach
sumarið 2007.
Kvikmyndin Hostel frumsýnd
Á föstu-daginn var
hryllings-myndin Hostel
frum-sýnd á Íslandi og í
Banda-ríkjunum. Myndinni er
leik-stýrt af Íslands-vininum
Eli Roth, sem jafn-framt er
höfundur hand-rits.
Fram-leiðandi myndarinnar er
Quentin Tarantino.
Íslendingurinn Eyþór
Guðjónsson leikur stórt
hlut-verk í myndinni, sem
segir frá bakpoka-ferðalagi 3
vina, og er myndin strang-lega
bönnuð innan 16 ára.
Stutt
umhverfis-mála og að
lands-menn ættu að fá
öfluga upplýsinga-miðlun
um umhverfis-mál.
Stór-tónleikarnir „Ertu að
verða náttúru-laus?“ voru
haldnir í gær-kvöld í
Laugardals-höll. Stemningin
á tón-leikunum var stór-góð
enda löngu uppselt á þá.
Meðal þeirra sem komu
fram voru: Sigur Rós, Björk,
Damien Rice, Damon
Albarn, Egó, Mugison,
pönk-sveitin Rass, KK, Ham
og Hjálmar.
Hætta-hópurinn stóð fyrir
tón-leikunum til að vekja
at-hygli á eins-stakri náttúru
Íslands. Hópurinn hélt
blaðamanna-fund á Hótel
Borg á fimmtu-daginn, þar
sem bent var á að ríkið ætti
að veita Lands-virkjun
heil-brigt mót-vægi á sviði
Morgunblaðið/Ásdís
Hætta-hópurinn á blaðamanna-fundi.
Náttúru-legir tón-leikar
Ariel Sharon,
forsætis-ráðherra Ísraels, er
haldið sofandi eftir 7
klukku-stunda skurð-aðgerð.
Hann fékk alvar-legt
heila-blóðfall á
miðviku-daginn. Óvíst er að
hann lifi, en víst þykir að hann
muni ekki taka áfram þátt í
stjórn-málum. Ehud Olmert,
næst-ráðandi Sharons, hefur
tekið hefur við til bráða-birgða.
Veikindi Sharons hafa
valdið mikilli óvissu í
ísraelskum stjórn-málum.
Búist var við að nýi
miðju-flokkurinn hans,
Kadima, „Áfram“, myndi sigra
auð-veldlega í kosningunum í
mars-lok. Nú er spurning hvort
flokknum muni ganga vel án
for-ingjans, eða hvort
verkamanna-flokkurinn og
hægri-flokkurinn Likud munu
styrkjast, er for-ingjar þeirra
eru mjög sterkir. Amir Peretz
fer fyrir
verkamanna-flokknum, en
hann vill ganga allra lengst í
viðræðum við
Palestínu-menn.
Likud-flokknum ræður nú
Benjamin Netanyahu, afar
öflugur og reyndur
stjórnmála-maður, sem boðar
áfram-haldandi hörku í
sam-skiptum við
Palestínu-menn.
Þá veit heldur enginn hvað
við tekur í sam-skiptum
Ísraela og Palestínu-manna.
Ísraelsk stjórn-völd hafa
bannað íbúum
Austur-Jerúsalem að taka þátt
í þing-kosningum í Palestínu
25. janúar. Óvíst er nú að þær
fari fram.
Reuters
Ísraelskir menn biðja fyrir
Sharon við Grátmúrinn.
Óvissa í Ísrael
Fimmtán manns fórust þegar þak
skauta-hallar í Suður-Þýskalandi hrundi
undan snjó-þunga.
Af þeim sem létust voru 12 börn eða
unglingar. Einnig hafa fundist lík tveggja
kvenna um fertugt.
Öll voru þau frá bænum Bad Reichenhall
eða nágrenni.
Þrjátíu og fjórir slösuðust þegar þakið
hrundi, en eru ekki í lífshættu.
Ekki er enn vitað hvers vegna þakið hrundi,
en það snjóar oft mjög mikið á þessum
slóðum.
Dag-blaðið Tagesspiegel sagði
veður-fræðinga halda að um 180 tonn af snjó
hafi verið á þakinu.
Mann-skaði í skauta-höll
Reuters
Björgunar-menn við störf.
Alls 45 starfs-menn á
leik-skólum í Kópavogi sögðu
upp á miðviku-daginn.
Ástæða upp-sagnanna er
óánægja með launa-kjör.
Lang-flestir sem sögðu upp
segjast ætla að draga
upp-sögn sína til-baka verði
launin löguð. Upp-sagnirnar
taka gildi 1. apríl eða 1. maí.
Bæjar-fulltrúar
Sam-fylkingarinnar í
Kópa-vogi segja að þeir vilji
að strax verði rætt við
starfs-fólkið og að það fái
sömu laun og starfs-fólk á
leik-skólum Reykjavíkur.
Starfs-fólk leik-skóla á öllu
höfuðborgar-svæðinu bíður
lykta launamála-ráðstefnu
sveitar-félaganna 20. janúar.
Leikskóla-stjórar segja ekki
hægt að bíða enda-laust eftir
launa-leiðréttingu og því að
nám leikskóla-kennara sé
metið að verð-leikum.
Uppsagnir 45 leikskóla-
starfsmanna í Kópavogi