Morgunblaðið - 08.01.2006, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 61
MENNING
- Velferðarsvið
Húsaleigubætur
Sviðsstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal
endurnýja umsókn um húsaleigubætur árlega í upphafi árs og gildir umsóknin til
ársloka.
Umsækjendur um húsaleigubætur í Reykjavík eru minntir á að skila umsókn fyrir
árið 2006 til Þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar í síðasta lagi 16. janúar
næstkomandi.
Þeir sem eiga lögheimili í Miðbæ eða Hlíðum hafi samband við
Þjónustumiðstöð Miðborgar/Hlíða, Skúlagötu 21, sími 411 1600.
Þeir sem eiga lögheimili í Vesturbæ hafi samband við Þjónustumiðstöð
Vesturbæjar, Hjarðarhaga 45-47, sími 411 1700.
Þeir sem eiga lögheimili í Laugardal eða Háaleiti hafi samband við
Þjónustumiðstöð Laugardals/Háaleitis, Síðumúla 39, sími 411 1500.
Þeir sem eiga lögheimili í Breiðholti hafi samband við Þjónustumiðstöð
Breiðholts, Álfabakka 12, sími 411 1300.
Þeir sem eiga lögheimili í Árbæ, Grafarholti eða Norðlingaholti hafi
samband við Þjónustumiðstöð Árbæjar/Grafarholts, Bæjarhálsi 1, sími
411 1200.
Þeir sem eiga lögheimili í Grafarvogi eða Kjalarnesi hafi samband við
Þjónustumiðstöð Grafarvogs, Langarima 21, sími 411 1400.
SÝNING sem ber yfirskriftina,
Eigi skal höggva, stendur yfir um
þessar mundir í Snorrastofu í
Reykholti.
Um er að ræða sýningu á
teiknuðum myndum eftir nem-
endur í 7. bekk grunnskólans í
Borgarnesi.
Myndirnar voru upphaflega
hluti af verkefni í samfélagsfræði
um Snorra Sturluson sem nem-
endurnir unnu ásamt kennara
sínum veturinn 2004–2005.
Á litríkum myndunum má sjá
helstu atburði úr ævi Snorra
Sturlusonar.
Á sýningunni eru einnig gamlir
leikmunir frá miðri síðustu öld,
ættaðir úr Bolungarvík. Þá gerði
Bjarni nokkur Magnússon frá
Tröð, sem var mikill hagleiks-
maður og atkvæðamikill í leik-
húslífi staðarins. Þá smíðaði Örn-
ólfur Guðmundsson skjöld og
sverð sem einnig eru uppi á vegg.
Sýningin, Eigi skal höggva,
mun standa uppi fram á vor. Á
sýningunni er búið að setja upp
teikniaðstöðu fyrir börn og eru
þau hvött til þess að teikna mynd
af Snorra og skila í þar til gerð-
an kassa.
Að sýningu lokinni verða þrjár
myndir dregnar út og höfundum
þeirra sendur glaðningur.
Hægt er að skoða sýningar
Snorrastofu alla virka daga frá
kl. 9.00–17.00.
Morgunblaðið/Golli
Eigi skal höggva
í Snorrastofu
K
ammersveitin Ísafold
og Íslenska óperan
standa fyrir Vín-
artónleikum með
óvenjulegu sniði í
kvöld kl. 20. Flutt verða verk sem
voru útsett fyrir kammersveit og
flutt af „Félagi um einkaflutning
tónverka“, „Verein für musikal-
ische Privataufführungen“, sem
tónskáldið Arnold Schönberg
stofnaði ásamt fleirum í Vínarborg
árið 1918.
Stjórnandi Ísafoldar er Daníel
Bjarnason og segir hann tón-
leikana í kvöld svo sannarlega ekki
hefðbundna Vínartónleika. „Venju-
legir Vínartónleikar snúast að svo
til öllu leyti um Johann Strauss og
hans fjölskyldu. Þessir tónleikar
okkar snúast hins vegar um seinni
Vínarskólann, því við erum að
leika útsetningar meðlima hans;
Arnolds Schönberg og nemenda
hans,“ segir hann í samtali við
Morgunblaðið.
Útsetningar á tveimur
Vínarvölsum
Johann Strauss kemur engu að
síður þó nokkuð við sögu á tónleik-
unum, því sveitin ætlar að leika
tvo valsa Strauss yngri, en í út-
setningum Schönbergs og Antons
von Webern. Þannig hefjast tón-
leikarnir á sálmaútsetningunum
Weihnachtsmusik eftir Arnold
Schönberg, en síðan taka við
Schatzwalzer eftir Johann Strauss
yngri í útsetningu Antons von
Webern og Kaiserwalzer eftir Jo-
hann Strauss yngri í útsetningu
Arnolds Schönberg. Eftir hlé eru
svo á efnisskránni Síðdegi skóg-
arpúkans eftir Claude Debussy í
útsetningu Benno Sachs og Arn-
olds Schönberg, og Lieder eines
fahrenden Gesellen eftir Gustav
Mahler í útsetningu Arnolds
Schönberg. „Síðustu tvö verkin eru
kannski mest einkennandi fyrir
þetta félag sem við erum að líta til,
„Verein für musikalische Priva-
taufführungen“, en þau eru útsetn-
ingar á frægum tónsmíðum.“
Daníel segir útsetningarnar í öll-
um tilfellum ekki svo langt frá
upphaflegu tónverkunum og útsetj-
arana oftast nokkuð trúa fyr-
irmyndum sínum. Útsetningarnar
séu gerðar af miklu listfengi og
kunnáttu. „Þeir bera greinilega
mikla virðingu fyrir því sem þeir
eru að útsetja – markmiðið virðist
vera að útsetja sem best miðað við
þá hljóðfæraskipan sem þeir eru
með, sem er auðvitað talsvert
minni en verkin eru upphaflega
skrifuð fyrir.“
Hentar tónlistarstefnu vel
Kammersveitin Ísafold var
stofnuð árið 2003 og sérhæfir sig í
flutningi tónlistar 20. og 21. aldar.
Um er að ræða kammersveit sem
á tónlistartungumálinu ítölsku
myndi kallast „sinfonietta“, eða
„lítil sinfóníuhljómsveit“, og er
sveitin skipuð ungu tónlistarfólki
sem flest er í framhaldsnámi er-
lendis. Að þessu sinni eru hljóð-
færaleikararnir tólf talsins, en
sveitin hefur að auki fengið til liðs
við sig Ágúst Ólafsson baritón,
sem mun syngja með henni ljóð
Gustavs Mahlers.
Aðspurður segir Daníel efnis-
skrána á tónleikunum nú koma vel
heim og saman við tónlistarstefnu
Ísafoldar. „Okkar markmið hjá
Ísafold hefur ekki verið að flytja
eingöngu nýja tónlist, heldur 20.
og 21. aldar tónlist. Það þýðir al-
veg aftur til ársins 1900, þess
vegna,“ segir hann. „Þessi verk
sem við flytjum nú falla mjög vel
inn í það, þó að fyrirmyndirnar
sjálfar séu skrifaðar nokkru fyrr.
Þetta er skemmtilegur gluggi inn í
það tímabil sem þær voru skrif-
aðar á, gegnum þennan seinni Vín-
arskóla.“
Að mati Daníels eru valsar Jo-
hanns Strauss afar skemmtilegir,
þó að hann viðurkenni að sér þyki
erfitt að hlusta á 20 slíka í röð.
„En við erum nú bara með tvo, og
þeir eru mjög skemmtilegir. Eftir
hlé leikum við síðan þessi tvö
meistaraverk; Debussy og Mahler,
sem eru kannski ekki alveg sama
léttmetið. Það mætast því hlátur
og grátur á þessum tónleikum,“
segir hann að síðustu.
Tónlist | Kammersveitin Ísafold með Vínartónleika með óvenjulegu sniði í Íslensku óperunni
Seinni Vínarskól-
anum gerð skil
Morgunblaðið/Ásdís
Daníel Bjarnason, stjórnandi Kammersveitarinnar Ísafoldar, ræðir við einsöngvarann Ágúst Ólafsson. Ísafold og
Ágúst koma fram á tónleikum í Íslensku óperunni í kvöld.
Kammersveitin Ísafold kemur
fram á Öðruvísi Vínartónleikum í
Íslensku óperunni í kvöld kl. 20.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is