Morgunblaðið - 08.01.2006, Síða 63
JUST
FRIENDS
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 14 ára Sýnd kl. 2 og 4 ísl tal kl. 2 og 5 B.i. 14 ára
20% afsláttur af miðaverði
fyrir viðskiptavini KB Banka
Sýnd kl. 3, 6, 9 og 11 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 8 og 10
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11 B.i. 14 ára
JUST FRIENDS
20% afsláttur af miðaverði
fyrir viðskiptavini KB Banka Stranglega bönnuð innan 16 ára
ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM
SJÚKUSTU
FANTASÍUR
ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA!
ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM
SJÚKUSTU
FANTASÍUR
ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA!
Stranglega bönnuð innan 16 ára
eeee
Ó.Ö.H. / DV
eee
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
eeee
Ó.Ö.H. / DV
Sími 551 9000Miðasala opnar kl. 14.30
eeee
H.J. / MBL
“…mikið og
skemmtilegt
sjónarspil...”
....eiturgóð mynd....
Sirkus 30.12.05
eeee
Dóri DNA / DV
eeee
HJ / MBL
ryan reynolds amy smart
FEITASTI
GRÍNSMELLUR ÁRSINS!
Hann elskar hana.
Hún elskar hann ekki.
Sýnd kl. 3 Íslenskt tal
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
TIL F ST S I SI S - I S .
T ! S I S T 400 KR. . 400 KR. .
400 KR Í BÍÓ*
* Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
eee
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
A.G. / BLAÐIÐ
A.G. / BLAÐIÐ
Sími 553 2075
miðasala opnar
kl. 17.30
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 2006 63
Einn merkasti leikstjóri Bolly-wood, Mahesh Bhatt, undirbýr
nú tökur á kvikmynd sem mun að
miklu leyti byggjast á sprenging-
unum í London á síðasta ári.
Kvikmyndin sem mun hljóta nafn-
ið Suicide Bomber, fjallar um bresk-
an múslima af asískum ættum sem
er orðinn fráhverfur vestrænum
lifnaðarháttum. Myndin mun bæði
gerast í Bretlandi og Indlandi og
söguhetjan verður leikin af 21 árs
gömlum syni Bhatt.
Leikstjórinn, sem er þekktur fyrir
að taka á umdeildum málum í kvik-
myndum sínum, segist með mynd-
inni vilja breiða þann boðskap út að
íslam sé trú sem snúist um frið og
samúð. Segir hann að hugmyndin
hafi kviknað í kjölfar hryðjuverka-
árásanna í New York þegar ísl-
amstrúin var úthrópuð á Vest-
urlöndum sem villimannatrú.
Bhatt sakar Bandaríkin um
hryðjuverk og sjálfsmorðsspreng-
ingar í hinum íslamska heimi og í
kvikmyndinni muni hann reyna að
sýna að það séu í raun Vesturlönd
sem ali upp hryðjuverkamenn með
háttalagi sínu. „Í kvikmyndinni mun
ég þó sýna að sjálfsmorðssprengju-
menn séu í raun að ófrægja íslamska
trú.“
Tökur á myndinni munu hefjast í
júlí á þessu ári en ráðgert er að
frumsýna hana í desember.
Fólk folk@mbl.is
Reuters
TÓNLISTARMAÐURINN Eyj-
ólfur B. Eyvindarson eða Sesar A
eins og hann er ef til vill betur
þekktur var staddur hér á landi
yfir hátíðarnar en hann hefur
dvalið undanfarin þrjú ár í Barce-
lona og stundað nám í kvikmynda-
leikstjórn og Miðjarðarhafseld-
húsi. Áður hafði Eyjólfur gefið út
plöturnar Stormurinn á eftir logn-
inu, sem hefur verið nefnd fyrsta
rappplatan, eingöngu á íslensku
og Gerðu það sjálfur, auk þess
sem hann stóð að framleiðslu á
Rímnamíni.
„Ég fór upphaflega út til að
læra kvikmyndaleikstjórn og klár-
aði það nám síðasta sumar. Þá tók
ég tónlistina fyrir en fór einnig í
kokkanám til að eiga úr meiru að
moða, enda vann ég á sínum tíma
sem kokkur á ýmsum veit-
ingastöðum í Reykjavík samfara
því að sinna tónlistinni.“
Sesar A segir að tónlist sín hafi
tekið miklum breytingum eftir að
hann fluttist til Spánar en þar hélt
hann áfram að semja tónlist og
texta með leikstjórnarnáminu og
vorið 2004 kláraði hann EP-
plötuna Of gott …. Hún inniheldur
meðal annarra lögin „Nema hvað“
en þar var bróðir Eyjólfs, Erpur
„Blazroca“, gestarappari og „Efn-
islega gæði“, þar sem Bobbi vand-
ræðagemsi kemur við sögu.
Eyjólfur segir að á þessum
tímapunkti hafi hann gengið í
gegnum töluverðar breytingar í
lífi sínu og því ákveðið að fresta
útgáfunni á EP-plötunni um sinn
en hún átti að vera undanfari LP-
plötunnar … til að vera satt.
„Á svipuðum tíma komst ég í
samband við tónlistarhópinn IFS
(International Family of Sound)
sem kom fram reglulega í gamla
bænum í Barcelona þar sem ég
bjó. Þeir buðu mér að spila með
sér á einum tónleikum og stuttu
seinna gekk ég til liðs við sveit-
ina.“
Eyjólfur segist fljótlega hafa
orðið mjög virkur í sveitinni og
ásamt Philsen frá Hamborg hafi
hann séð um framkvæmdastjórn
sveitarinnar auk þess sem Eyjólf-
ur stýrir upptökum.
„Grunnurinn er rapp en svo er
þarna líka að finna áhrif frá
reggí-, fönk- og sálartónlist og
mín hugmynd er að blanda mis-
munandi stefnum saman og vinna
úr því heila plötu. Mínar grunn-
forsendur eru ryþmískt hip hop en
þetta er að taka á sig mjög fjöl-
breytta mynd. Þegar mest er er-
um við fimmtán á sviðinu; níu ein-
staklingar frá átta löndum sem
rappa og syngja á sex tungu-
málum auk hljómsveitar.“
Eyjólfur er nú farinn aftur til
Barcelona þar sem hann heldur
áfram með kokkanámið en einnig
á að klára upptökur að lögum fyr-
ir IFS sem síðar munu fara á EP-
plötu sem sveitin mun nota til
kynningar. Þar að auki hyggst
hann gera myndband við eitt laga
IFS og nýta þá um leið sambönd
sín sem hann aflaði sér í kvik-
myndaskólanum. Þá stendur einn-
ig til að klippa myndband við lagið
„Nema hvað“.
„Nú tekur við að kynna IFS
bæði í Þýskalandi og Englandi en
miðað við hvað hip hop á Spáni er
skammt á veg komið sjáum við
ýmis tækifæri þar.“
Tónlist | Eyjólfur B. Eyvindarson er með mörg járn í eldinum
Sesar A í Barcelona
Morgunblaðið/Þorkell
Sesar A hefur undanfarin ár lært bæði til kokks og kvikmyndaleikstjóra
auk þess að sinna tónlistargyðjunni.
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is