Morgunblaðið - 02.02.2006, Side 2
FÁ EKKI HEITAN MAT
Foreldrar þriðjungs grunnskóla-
barna í Reykjavík kaupa ekki heitan
mat í hádeginu fyrir börn sín. Kostn-
aður við máltíðirnar er um 5.000
krónur á mánuði. Þorsteinn Hjalta-
son, skólastjóri Fellaskóla, kveðst
óttast að sumir hafi ekki efni á að
greiða fyrir matinn.
Birtu Múhameðs-myndir
Mótmælum vegna birtingar teikn-
inga af Múhameð spámanni í danska
blaðinu Jyllands-Posten var haldið
áfram í múslímalöndum í gær. Sýr-
lendingar bættust í hóp þeirra þjóða
sem hafa kallað sendiherra sinn
heim frá Kaupmannahöfn. Mörg
blöð í Evrópu birtu í gær myndirnar
umdeildu og lögðu áherslu á að ekki
kæmi til mála að samþykkja kröfur
um að tjáningarfrelsið yrði skert.
Loðnuleysi hefur áhrif
Loðnuleysið hefur haft mikil áhrif
á afkomu Austfjarðahafna. Guð-
mundur Bjarnason, bæjarstjóri
Fjarðabyggðar, segir ekki enn hægt
að mæla tapið, en gríðarlega mikið
sé í húfi fyrir hafnirnar að það sé
loðnuveiði. Hann undrast að ekki
hafi verið gefinn út kvóti fyrr.
Írönum hótað
Stórveldin fimm í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna og Þýskaland
náðu í gær samkomulagi um að biðja
Alþjóðakjarnorkumálastofnunina
um að fá öryggisráðið til að fjalla um
meint brot Írana á banni við kjarn-
orkuvopnasmíði.
Y f i r l i t
2 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 30
Fréttaskýring 8 Viðhorf 32
Úr verinu 14 Minningar 40/43
Erlent 16/17 Brids
Minn staður 18 Hestar 45
Austurland 19 Dagbók 48/51
Höfuðborgin 20 Myndasögur 48
Akureyri 20 Velvakandi 49
Suðurnes 21 Staður&stund 50/51
Landið 21 Leikhús 52
Daglegt líf 22/23 Bíó 54/57
Neytendur 24/25 Ljósvakamiðlar 58
Menning 26, 51/57 Veður 59
Umræðan 28/37 Staksteinar 59
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, frétta-
stjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræð-
an|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, el-
ly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
„ÉG LÆRÐI það á bernskudögum
mínum í blaðamennsku á Morg-
unblaðinu að byltingar á blöðum
væru ekki skynsamlegar en ég vona
að við eigum eftir að þróa Frétta-
blaðið fram á við. Það hefur verið í
örum vexti á skömmum tíma og í
skemmtilegri þróun. Ég vona að
okkur muni takast að þróa blaðið
áfram. Öll blöð taka smám saman
breytingum og lagast að breyttum
aðstæðum í þjóðfélaginu á hverjum
tíma. Það ætlum við okkur að gera.“
Þetta segir Þorsteinn Pálsson,
fyrrverandi sendiherra og ráðherra,
sem hefur verið ráðinn ritstjóri
Fréttablaðsins. Þorsteinn tekur við
starfinu 23. febrúar og mun starfa
við hlið Kára Jónassonar ritstjóra.
Þorsteinn starfaði um árabil við
fjölmiðla á áttunda áratugnum, fyrst
sem blaðamaður á Morgunblaðinu
og síðar var hann ritstjóri Vísis.
„Það er að vísu orðinn meira en ald-
arfjórðungur síð-
an,“ segir Þor-
steinn, „en ég
hlaut mína eld-
skírn á Morg-
unblaðinu og á
mjög góðar minn-
ingar þaðan. Ég
var svo ritstjóri á
Vísi í nokkur ár,“
segir hann.
Þorsteinn segir það leggjast mjög
vel í sig að hefja aftur störf á fjöl-
miðlum. Það sé bæði tilhlökkunar-
efni og áskorun að takast á við
blaðamennskuna á ný.
Spurður álits á þeim miklu deilum
sem verið hafa í þjóðfélaginu á um-
liðnum misserum um málefni fjöl-
miðla og eignarhald þeirra segir
Þorsteinn að sú umræða hafi að
mestu átt sér stað á þeim tíma sem
hann sat á friðarstóli sendiherra og
fylgdist með úr fjarlægð.
„Í dag horfi ég fyrst og fremst
fram á við en ekki aftur á bak á deil-
ur liðins tíma, sem ég kom ekki einu
sinni að,“ bætir hann við. Er hann
var spurður hvort bakgrunnur hans
í stjórnmálum gæfi tilefni til að ætla
að pólitískra áhrifa myndi gæta í rit-
stjórn Fréttablaðsins svaraði Þor-
steinn: „Það er löngu liðin tíð að
blöð séu rekin á flokksgrundvelli og
það verða engar tilhneigingar í þá
veru.“
Styrkja blaðið sem vettvang
þjóðmálaumræðu
Ari Edwald, sem tók við starfi
forstjóra 365 miðla í gær, segir að
skv. hans upplýsingum hafi hug-
myndir um að fá Þorstein til starfa
komið nokkrum sinnum upp innan
fyrirtækisins. Það hafi svo komið í
hans hlut að láta reyna á þessa hug-
mynd og segist Ari vera mjög
ánægður með að Þorsteinn fékkst
um borð til að stýra Fréttablaðinu.
„Mér hefur alltaf fundist af mín-
um kynnum af honum að hjarta
hans slægi töluvert í blaðamennsk-
unni. En þennan aldarfjórðung sem
hann hefur verið fjarri þeim vett-
vangi, hefur hann gegnt krefjandi
störfum og æðstu embættum og
bætt mjög miklu við sig. Það er því
ómetanlegt að fá mann með slíka
reynslu og yfirsýn yfir menn og mál-
efni og íslenskt þjóðfélag, auk þess
sem öllu máli skiptir að Þorsteinn er
af öllum talinn vera mjög hæfur
maður og heiðarlegur.“
Spurður hvort ráðning Þorsteins
feli í sér einhverja stefnubreytingu í
útgáfu Fréttablaðsins segir Ari svo
ekki vera á annan hátt en að vera
viðbótarskref í uppbyggingu blaðs-
ins. „Með því að fá svona öflugan
mann til liðs við ritstjórnina erum
við auðvitað að gera okkur vonir um
að blaðið geti enn frekar orðið leið-
andi afl í íslenskri þjóðmálaumræðu.
Jafnframt því að verða útbreiddari
frétta- og auglýsingamiðill, er verið
að styrkja það sem vettvang þjóð-
málaumræðu og auka dýptina í um-
fjöllun blaðsins. Síðan er að sjálf-
sögðu ritstjóranna að stjórna
blaðinu og þróa áfram á þeim
grundvelli sem lagður hefur verið.“
Byltingar á blöðum ekki skynsamlegar
Þorsteinn Pálsson
Þorsteinn Pálsson tekur við starfi ritstjóra Fréttablaðsins 23. febrúar nk.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
ÁRNI M. Mathiesen fjármálaráð-
herra sagði á Alþingi í gær að eng-
ar áætlanir væru um það að tak-
marka með nýrri reglugerð
vöruúrval í komuverslun Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE).
Samkvæmt 104. gr. tollalaga nr.
88/2005 á fjármálaráðherra að
ákveða með reglugerð hvaða vörur
er heimilt að selja í tollfrjálsri
komuverslun. Hjálmar Árnason,
þingflokksformaður Framsókn-
arflokksins, sagði á Alþingi í gær
að fregnir af því að takmarka ætti
vöruúrvalið hefðu komið af-
skaplega illa við menn og spurði
hann ráðherra hvort einhver flugu-
fótur væri fyrir þeim.
Árni svaraði því til að unnið væri
að fyrrgreindri reglugerð í ráðu-
neytinu. „En það eru engar áætl-
anir um það að takmarka það neitt
sérstaklega,“ sagði hann.
Engar áætlanir
um að takmarka
vöruúrval
FORELDRAR ellefu ára gamals
drengs lögðu í gær fram kæru hjá
lögreglunni í Reykjavík á hendur
manni sem tók son þeirra nauð-
ugan upp í bíl sinn sl. föstudag
eftir að hafa séð til hans og ann-
ars drengs kasta rusli við Suður-
landsveg. Maðurinn ók um með
drenginn í um tíu mínútur og vildi
ekki leyfa honum að hringja í for-
eldra sína.
Kærður fyrir að
færa dreng nauð-
ugan upp í bíl sinnSTEINUNN Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri opnaði í
gær nýja viðbyggingu við leikskólann Hálsakot við
Hálsasel. Með stækkun leikskólans og breytingum á
eldra húsnæði verður til ný deild sem rúmar vel á
þriðja tug þriggja til sex ára barna, auk sérkennslu-
herbergis. Þá fær starfsfólk í Hálsakoti mun betri
vinnuaðstöðu eftir breytingarnar.
Inga Dóra Jónsdóttir, leikskólastjóri í Hálsakoti, seg-
ir viðbygginguna afar þýðingarmikla. „Við erum að fá
bætta aðstöðu fyrir börn og starfsfólk og erum einnig
að taka inn yngri börn á sérstaka yngri barna deild,“
segir Inga Dóra.
Eftir stækkunina er Hálsakot fjögurra deilda leik-
skóli og dvelja þar áttatíu börn. Þar hefur um árabil
verið lögð áhersla á umhverfismennt, náttúruvísindi og
þróunarverkefni sem tengjast endurvinnslu. Hálsakot
var fyrsti leikskólinn í borginni sem fékk Grænfánann,
alþjóðlega viðurkenningu Landverndar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri gaf sér góðan tíma til að föndra eilítið með krökkunum í Hálsakoti.
Fleiri kúra í Hálsakoti
NÝTT og breytt deiliskipulag fyrir
svokallaðan Kirkjutorgsreit var aug-
lýst í gær en Kirkjutorgsreiturinn
afmarkast af Lækjargötu, Vonar-
stræti, Templarasundi, Kirkjutorgi
og Skólabrú. Tillagan gerir ráð fyrir
umtalsverðri uppbyggingu og niður-
rifi. Til stendur að rífa byggingu Ís-
landsbanka við Lækjargötu, For-
eldrahús og lága byggingu í
Vonarstræti 4b til að rýma fyrir
nýrri byggingu sem mun standa á
þessum stað. Gert er ráð fyrir að 161
bílastæði verði í kjallara hússins.
Tillagan leyfir einnig að hækka
tvö gömul hús við Templarasund og
Kirkjutorg sem og minni háttar
breytingar við önnur hús á reitnum
að uppfylltum skilyrðum.
Ragnar Atli Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins
Fasteignar ehf., eiganda Íslands-
bankahússins, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hugmyndin væri að
byggja hús sem yrði um 8.000 fer-
metrar. Til stæði að nýta bílastæði
sem standa sitt hvorum megin við Ís-
landsbankahúsið í dag undir ný-
bygginguna. Ekki hefur enn verið
ákveðið hvenær framkvæmdir hefj-
ast en beðið er eftir að borgaryfir-
völd samþykki nýtt skipulag.
Breytingar við Kirkjutorg
Tölvuteiknuð mynd af hinu nýja Íslandsbankahúsi við Lækjargötu.
LISTAKONAN
Yoko Ono er
væntanleg til
Reykjavíkur 25.
febrúar á Vetr-
arhátíð til að
ræða nánar til-
högun varðandi
listaverk sem
hún hefur gefið
borginni, Friðarsúlu.
Um er að ræða 10–15 metra háa
upplýsta glersúlu. Frá súlunni á
að stafa friðarljós til allra þjóða
heims. Utan á súluna verða
greyptar tvær ljóðlínur á mörgum
tungumálum.
Yoko Ono til
Íslands síðar
í mánuðinum