Morgunblaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 19
MINNSTAÐUR
KIA umboðið á Íslandi er í e igu Heklu hf.
Laugavegi 172 • Reykjavík • sími 590 5700
KIA er sá bílaframleiðandi sem er í mestum vexti í
heiminum í dag. Það er ekkert skrýtið þegar hægt
er að bjóða þessi gæði á svona verði.
KIA Rio, enn einn glæsilegur fólksbíll úr smiðju KIA.
Gæði, kraftur og hagkvæmni eru hér í fyrirrúmi. Rio er
búinn aksturstölvu, átta öryggisloftpúðum, ABS
hemlalæsivörn, álfelgum og öflugri en sparneytinni
1,6 lítra 112 hestafla CVVT bensínvél.
KIA Picanto, lipur, fallegur og nútímalegur
smábíll. Rúmgóður og ríkulega útbúinn.
Það sakar ekki að verðið á sér ekki hliðstæðu.
11.289 kr. á mánuði*
15.582 kr. á mánuði*
KIA Cerato, rúmgóður og kraftmikill, 2,0 lítra, 144
hestöfl. Ríkulegur staðalbúnaður, átta öryggisloftpúðar,
aksturstölva, álfelgur o.fl.
17.067 kr. á mánuði*
*miðað við SP-bílasamning til 84 mán. og 30% innborgun
Picanto
Cerato
Rio
KIA Rio • 1,6 • 5 dyra • 5 gíra • verð 1.498.000
KIA Cerato • 2,0 • 4 dyra • 5 gíra • verð 1.648.000
KIA Picanto • 1,0 • 5 dyra • 5 gíra • verð 1.088.000
Nýtt
barnaherbergi
www.flugger.is
Stórhöfða 44
110 Reykjavík
Sími 567 4400
10
3
5
6
3
Fáðu góðar hugmyndir og
sjáðu glæsilegar útfærslur í
nýja bæklingnum okkar
“Hugmyndir og góð ráð fyrir
barnaherbergið”. Bæklingin
færðu í næstu verslun
Flugger lita
Skeifan 4
Snorrabraut 56
Bæjarlind 6
Dalshraun 13
Hafnargata 90
Austursíða 2
Austurvegur 69
Hlíðarvegur 2-4
Sólbakka 8
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Á dögunum gekkst
Afl, starfsgreinafélag Austurlands,
fyrir málþinginu Áhyggjulaust ævi-
kvöld og heilbrigð æska. Þar voru
störf aðstoðarfólks á heilbrigðis-
stofnunum og í skólum til faglegrar
og siðfræðilegrar umræðu og velt
upp hvort þau séu metin að verð-
leikum. Virðingarleysi fyrir störfum
þessa hóps, og oft á tíðum óljós
starfslýsing ásamt þörf á endur-
menntunartækifærum, voru megin-
atriði þingsins.
Sverrir Mar Albertsson er fram-
kvæmdastjóri Afls. „Þátttakendur
virtust ánægðir með málþingið og
gerður var góður rómur að fram-
sögum,“ segir Sverrir. „Það er einn
gegnumgangandi þráður sem skín í
gegn og það er virðing. Það kom
fram alls staðar að fólk nýtur þess
sem það er að gera og finnur tilgang
í því. Það er að hjálpa til við að ala
upp börn eða hjúkra fólki og finnur í
því tilgang. Launamálin svíða þó.
Ég held að í sumum tilfellum svíði
kannski enn þá meira virðingarleysi
samfélagsins fyrir starfinu og óljós
staða. Nú er það okkar verkefni að
reyna að vinna úr þessu og fara í
viðræður við sveitarfélög til að
reyna að móta frekar störf eins og
skólaliða, aðstoðarfólks í skólum og
leikskólum o.s.frv., skýra þau og fá í
gang endurmenntunaráætlun. Svo
dæmi sé tekið um skólaliða þá eru
þeir, skv. framsöguerindi Sigur-
björns Marinóssonar hjá Skólaskrif-
stofu Austurlands, ómissandi í dag,
hann segir að skólarnir gætu ekki
starfað án þeirra. Þá á þetta fólk
bara fullan rétt á að fá sín störf til-
greind skýrar, metin að verðleikum
og njóta símenntunar. Sama gildir í
heilbrigðisgeiranum. Þar svíður
undan réttindaleysi og kannski er
einhver óljós staða þar líka. Afl og
önnur verkalýðsfélög hafa nú fengið
mjög skýr skilaboð, en auðvitað er
þetta eitthvað sem við höfum vitað
en þurftum staðfestingu á.“
Markhópur fyrir fræðslukerfið
Sverrir er spurður að því hvort
hann telji að hægt sé að breyta við-
horfum samfélagsins til umönnunar-
starfa? „Já, það er hægt að breyta
þeim. En eins og einn framsögu-
manna málþingsins, Vilhjálmur
Árnason, prófessor við Siðfræði-
stofnun Háskóla Íslands, benti á í
sinni framsögu, kemur sjálfsvirðing
ekki frá öðrum, hún kemur frá
manni sjálfum. Afl keyrði árið 2002
menntasmiðju í öllum byggðarlög-
um á Austurlandi og í vetur framtíð-
arsmiðju í flestum byggðarlögum.
Þetta eru fyrst og fremst sjálfs-
styrkingarnámskeið þangað sem
menn sækja sér þrótt og sjálfs-
traust.“
Sverrir segir aðstoðarfólk heil-
brigðisstofnana og skóla sækja sér
endurmenntun í vaxandi mæli.
Hann nefnir sem dæmi að á Vopna-
firði eru nú fimm konur í sjúkraliða-
fjarnámi, sem hófu sína endurmennt
í menntasmiðju Afls 2002. „Þessi
hópur er mjög skynsamlegur mark-
hópur fyrir fræðslukerfið, þetta er
klárt fólk með reynslu. Ég reikna
með að við reynum að virkja það
fólk sem mætti á málþingið fyrir að-
alfundinn og þar getum við lagt
fram símenntunaráætlun fyrir
þennan hóp. Afl eitt og sér getur þó
ekki breytt neinu; við verðum að
hjóla í heilbrigðisstofnanirnar,
skólana, sveitarfélögin og sannfæra
aðila um að við getum í sameiningu,
ásamt Fræðsluneti Austurlands og
framhaldsskólunum, sett upp t.d.
skólaliðanám eða nám fyrir aðstoð-
arfólk í heilbrigðiskerfinu, námskeið
sem lendir ekki á háskólastigi eins
og sjúkraliðanámið gerði, heldur
verði opið öllum, óháð menntunar-
stigi. Úrvinnslan á þessu kemur þó
til með að taka tíma.“
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Virðing í brennidepli Afl starfsgreinafélag stóð fyrir málþingi um stöðu umönnunarstarfa.
Afl vill símenntunaráætlun fyrir aðstoðarfólk
í skólum og á heilbrigðisstofnunum
Umönnunarstörf verði
metin að verðleikum
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
austurland@mbl.is